Fréttablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 81
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
91
83
08
/2
00
5
Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is
fyrir nánari upplýsingar og skráningu í Og1.
SJÓNVARP
Og1 lækkar verulega kostnað heimila sem eru með GSM áskrift, Heimasíma og Internet hjá Og Vodafone.
Kynntu þér einnig ávinninginn fyrir GSM, Internet og Heimasíma.
Ég fæ Sýn í 3 mánuði
og sé öll mörkin sem liðið
mitt skorar í gemsanum!
0 kr. 0 kr. 0 kr.
Allir sem skráðir eru í Og1 fá áskrift að
Sýn fyrir 0 kr. í 3 mánuði.
Tilboðsverð 1.990 kr. á mánuði
eftir það.
Allir sem skráðir eru í Og1 geta valið sitt lið í
Enska boltanum og séð öll mörkin sem liðið
skorar í GSM-símanum fyrir 0 kr.
Allir sem skráðir eru í Og1 geta valið
sitt lið í Meistaradeildinni og séð öll
mörkin úr þeim riðli og úrslita-
keppninni í GSM-símanum fyrir 0 kr.
Sýn í 3 mánuði Enski boltinn í símann Meistaradeildin í símann
Skráning þarf að berast fyrir 1. október
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
Sykur
Ég er búinn að vera að pæla soldiðí sykri undanfarið. Ég fór að lesa
utan á umbúðir á matvælum og fékk
áfall. Það er viðbættur sykur í öllu
mögulegu. Hann er ekki bara í
nammi. Meira að segja í auglýstum
hollustuvörum eins og skyri og
morgunkorni er oft mikið magn af
viðbættum sykri. Allir vita að ávextir
eru hollir. Af hverju er ekki hægt að
bragðbæta hollustuvörur með ávöxt-
um? Kannski er svarið það að sykur
er ódýr. Hann drýgir matinn og gerir
hann bragðbetri og þar af leiðandi
selst hann betur. Ég hef heyrt að
sykri sé jafnvel sprautað í kjöt til að
bragðbæta það. Ég er að sjálfsögðu
ekki að tala um náttúrulegan sykur
sem er í ýmsum matvörum frá nátt-
úrunnar hendi, heldur hvítan, unninn
sykur.
SYKURINN er að mestu framleidd-
ur í fátæku löndunum. Ég las í bók að
í Norður-Brasilíu væru um 30% íbú-
anna líkamlega og andlega fötluð af
sykuráti. Þar vinnur fólk við sykur-
framleiðsluna fyrir svo lág laun að
það hefur ekki efni á að gefa börnum
sínum annað að éta en hreinan sykur.
SYKUR er orkuríkur en algjörlega
næringarlaus. Hann gefur okkur
kraft og vekur tímabundna vellíðan.
Ofneysla á sykri er ekkert ósvipuð
fíkniefnaneyslu. Allir vita að sykur
skemmir tennurnar og maður verður
feitur af honum. En hann hefur líka
margvísleg önnur skaðleg áhrif á lík-
amann og sálarlífið. Ég held að mikið
af sjúkdómum okkar Vesturlandabúa
megi rekja til sykuráts eða líkams-
ástands þess vegna. Ekki er allur
matur næring.
ÞEGAR ÉG VAR lítill var stærsta
gosflaskan einn lítri. Núna er hún
tveir. En fólk er ekkert þyrstara nú
en þá. Gos er í rauninni ekkert
annað en bragðbætt sykurvatn. Það
er eins og einhver sé að plata mann
til að éta sífellt meira af sykri með
því að lauma honum í mat sem mann
grunar ekki að sykur sé í. Kannski
erum við orðin sykurfíklar án þess
að gera okkur grein fyrir því.
Hvenær er neysla orðin ofneysla? Er
það ekki þegar við erum byrjuð að
fá neikvæðar afleiðingar af neysl-
unni?
ÞAÐ ER ÁGÆTT að borða sykur í
hófi en þetta er komið út yfir öll
mörk. Það er í rauninni algjörlega
óþarfi að borða sykur. Héðan í frá
mun ég velja mér matvörur sem eru
án viðbætts sykurs.
jongnarr@frettabladid.is