Fréttablaðið - 31.10.2005, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
Pantanir í síma 483 4700
info@hotel-ork.is • www.hotel-ork.is
jólaeyra
page 1
Thursday, October 13, 2005 13:08
Composite
ARNALDUR INDRIÐASON
Vetrarborgin kemur
út á miðnætti
Gestir geta fengið hlutverk í Mýrinni
FÓLK 34
VEÐUR Vitlaust veður var í Vestur
Húnavatnssýslu í gær og höfðu
Lögregla og björgunarsveitir á
svæðinu í nógu að snúast. Úrkoma
var mikil og skyggni ekkert svo
margir vegfarendur lentu í vand-
ræðum. Einhverjir voru fastir í
bílum sínum vegna ófærðar eða
þorðu ekki að aka áfram vegna
skyggnis. Þá höfnuðu nokkrir bílar
út af.
Að sögn lögreglunnar á Blöndu-
ósi var veðrið svo slæmt að flestir
hættu sér ekki út úr bílum sínum.
Björgunarsveitir á Blönduósi,
Hvammstanga og Laugabakka
voru kallaðar út og aðstoðuðu veg-
farendur við að koma sér af stað
eða fluttu fólkið í skjól.
Að sögn Óla Þórs Árnasonar,
veðurfræðings hjá Veðurstofu
Íslands má búast með áframhald-
andi éljagangi á Norður- og Aust-
urlandi í dag. Hann reiknar með
því að um miðja vikuna fari að
hlýna og snjóa gæti farið að leysa
á miðvikudag eða fimmtudag.
Aftakaveður á Norðvesturlandi:
Fólk fast í bílum
ÖRN ÁRNASON:
Endurnýjaði pallinn
svo hann er sem nýr
*hús *fasteignir
Í MIÐJU BLAÐSINS
Flýgur frjáls
Ítalinn og tónlist-
armaðurinn Leone
Tinganelli lætur
drauminn rætast
með sinni fyrstu
plötu þar sem
hann syngur um
ástina og lífið.
FÓLK 34
MÁNUDAGUR
31. október 2005 – 294. tölublað – 5. árgangur Sími: 550 5000
����������������������
�
��
�
�
SLYDDA EÐA SNJÓKOMA á
Vestfjörðum og Norðurlandi, rigning
eða slydda austan og suðaustan til.
Gæti dropað suðvestan til. Hiti 2-5 stig
syðra en við frostmark nyrðra.
VEÐUR 4
ÍRAK Varnarmálaráðuneyti Banda-
ríkjanna telur að 26.000 Írakar hafi
látist í árásum skæruliða í landinu
síðan í janúar á síðasta ári.
Tala þeirra sem falla dagslega
virðist jafnframt vera að aukast
jafnt og þétt samkvæmt ráðu-
neytinu. Þetta eru fyrstu opin-
beru tölurnar sem eru birtar af
mannfalli Íraka á þessu tímabili.
Að sögn ráðuneytisins deyja eða
særast yfir 60 heimamenn á degi
hverjum.
Stríðið í Írak:
Um 26 þúsund
Írakar fallnir
STJÓRNMÁL Megn óánægja er meðal
sveitarstjórnarmanna í Suðvestur-
kjördæmi með breytt fyrirkomu-
lag í samskiptum við þingmenn
kjördæmisins. Í umræðum utan
dagskrár á fundi Sambands sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu
(SSH) á föstudag var talað um að
sniðganga fundinn.
Í stað þess að funda með hverri
sveitarstjórn fyrir sig verður stór
fundur í félagsheimili Kópavogs í
dag. Árni M. Mathiesen, fjármál-
aráðherra og fyrsti þingmaður
kjördæmisins, boðaði til fundarins
fyrir hönd þingmannanna.
Sveitarstjórnarmenn telja sig
sumir ekki geta tjáð sig jafnfrjáls-
lega við þingmennina og öðrum
finnst tímasetning in erfið. „Það er
svolítið einkennilegt að boða þetta
á vinnutíma því flestir bæjarfull-
trúar eru náttúrlega í fullri vinnu,“
segir Ásgerður Halldórsdóttir, for-
seti bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi.
„Á föstudaginn heyrði maður að
rosalegur urgur var í liðinu,“ segir
Einar Sveinbjörnsson, bæjarfull-
trúi í Garðabæ. Hann segir að í ljósi
þess hve þingmenn mættu illa á
fund SSH hafi verið rætt um að snið-
ganga fundinn í dag. Einungis þrír
af 33 þingmönnum Reykjavíkurkjör-
dæmanna og Suðvesturkjördæmis,
Guðmundur Hallvarðsson, Sigurrós
Þorgrímsdóttir og Valdimar Leó Fri-
ðriksson, mættu fyrir helgi.
Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi
í Kópavogi, segir óánægju mikla
með tilhögun fundarins. „Það er
kjördæmavika og öllu troðið á einn
dag. Auðvitað eiga þingmennirnir
að koma og ræða okkar mál í sveit-
arfélaginu. Það er eins og verið sé
að ota bæjarfélögunum saman,“
segir hann og telur lítinn áhuga á
því meðal sveitarstjórnarmanna að
metast um hvaða vegaframkvæmd-
ir ættu helst að vera í forgangi.
Guðmundur Rúnar Árnason,
bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, tekur
undir að svo virtist sem sveitar-
félögum væri att saman. „Þetta er
náttúrlega ekki boðlegt og ekki sti-
llt upp fyrir sveitarfélögin, heldur
þannig að þetta sé sem þægilegast
fyrir þingmennina.“
Ármann Kr. Ólafsson, sem bæði
er bæjarstjórnarmaður í Kópavogi
og aðstoðarmaður Árna Mathiesen,
segir nýtt fyrirkomulag eiga að hafa
í för með sér meiri heildarsýn á mál
kjördæmisins. „Lagt er upp með að
fá fulltrúa vegagerðar og ráðuneyta
til að fara yfir verkefni á sameigin-
legum fundi þar sem þingmenn og
sveitarstjórnarmenn geta skiptst á
skoðunum,“ segir hann og furðar
sig á óánægjuröddum. -oká
Sniðganga fund
með þingmönnum
Sveitarstjórnarmenn í Suðvesturkjördæmi eru ósáttir við þingmenn kjördæmis-
ins. Ráðstefna á að koma í stað hefðbundinna funda í kjördæmaviku.
Stelpudagur hjá Haukum
Kvennalið Hauka
í handbolta og
körfubolta voru í
eldlínunni í gær
að Ásvöllum. Hið
unga körfuboltalið
félagsins lagði
Keflavík og svo
vann handbolta-
liðið góðan sigur á
Stjörnunni.
ÍÞRÓTTIR 27
Byltingin
Um konur á vinnumarkaði var haft
hugtakið „að vinna úti“, sem hljómaði
óneitanlega svolítið eins og að „verða
úti“. Vinnumarkaðurinn var með
öðrum orðum skil-
greindur sem útlönd
fyrir konur, útskúfun
– eða útlegð.
Í DAG 16
ROSA PARKS BORIN TIL GRAFAR Hundruð manna voru viðstödd minningarathöfn í Alabama þegar Rosa Parks var borin til grafar í gær.
Parks, sem var 92 ára þegar hún lést, er frægust fyrir að hafa neitað að standa upp fyrir hvítum manni í strætisvagni í Alabama árið 1955.
Er hún almennt talin eiga stóran þátt í jafnréttisbaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum.
SÆRÐ ÍRÖSK STÚLKA Fjöldi Íraka hefur
særst síðan ráðist var inn í landið.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Hvorki Gísli
Marteinn Baldursson né Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson sem berjast
um fyrsta sætið á lista sjálfstæð-
ismanna í komandi borgarstjór-
anarkosningum telja tímabært að
huga að eyjabyggð. Í vor kynnti
borgarstjórnarflokkur Sjálfstæð-
isflokks hugmyndir um allt að 30
þúsund manna byggð í Örfirisey,
Álfsey, Engey, Viðey og í Geld-
inganesi.
„Hugmyndir okkar sjálfstæð-
ismanna voru góðar til að sýna
fram á suma af þeim möguleikum
sem okkur standa til boða í fram-
tíðarbyggingarlandi. Við verðum
hins vegar að horfast í augu við
staðreyndir,“ segir Gísli Mart-
einn og bendir á að Reykvíkingum
muni ekki fjölga um nema 20 til 30
þúsund til ársins 2045. „Framtíð-
arbyggingarland okkar Reykvík-
inga tel ég að sé í Geldinganesi
þar sem við getum gert fallega 10
þúsund manna byggð og í Vatns-
mýri þar sem við getum sett til
dæmis 15 þúsund manna byggð.“
Hugmyndir um eyjabyggð telur
hann ekki vera inni í myndinni
næstu 50 árin.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
áréttar að hugmyndirnar sem
borgarstjórnarflokkurinn kyn-
nti í vor hafi verið framtíðarsýn
sem í meginatriðum hafi fengið
mjög góðar undirtektir. „Umfjöll-
un okkar um nýjar skipulagshug-
myndir og framtíðarsýn í þeim
efnum og umfjöllun um önnur
mikilvæg skipulagsmál, svo sem
Vatnsmýrina, hafa breytt og frísk-
að umfjöllun borgarbúa um þessi
mikilvægu hagsmunamál,“ segir
hann og telur framtíðarbygging-
arland borgarinnar vera í Geld-
inganesi, Úlfarsfelli, Vatnsmýri
og svo kannski eyjabyggð. „Þarna
erum við að tala um ferli og land-
nýtingu sem eiga mun sér stað á
næstu áratugum.“ - óká
Baráttumenn um oddvitasæti sjálfstæðismanna í Reykjavík:
Hættir við byggð í eyjunum