Fréttablaðið - 31.10.2005, Blaðsíða 6
6 31. október 2005 MÁNUDAGUR
�������������������������������
������������������
�
�����������������
�����������������
������������������ ��� ������
���������������������������������
����������������������������������
����������������������������
���������������
�����������������������������
�����������������������������������
���������������������������
�������������������
��������
�����������������������������������������������������������������������������������������
BRETLAND, AP Dan Brown, höfund-
ur metsölubókarinnar Da Vinci
lykillinn, sem selst hefur í tuttugu
og fimm milljónum eintaka um
allan heim, stendur nú frammi
fyrir ákæru um ritstuld. Er það
í annað sinn sem hann er borinn
slíkum sökum.
Hann var sýknaður af ákæru
um ritstuld í Bandaríkjunum
síðastliðið sumar en nú eru það
tveir breskir rithöfundar sem saka
hann um að hafa stolið meginfléttu
og hugmyndum úr tveimur bóka
þeirra. Hér er um að ræða meint
hjónaband Jesú Krists og Maríu
Magdalenu og barn þeirra. ■
Höfundur Da Vinci lykilsins:
Brown kærður
fyrir ritstuld
ELDUR Í BLAÐAGÁMI Eldur kom
upp í blaðagámi í Breiðholti í gær og var
slökkviliðið í Reykjavík kallað á svæðið.
Eldurinn var mikill og þurfti að fjarlægja
gáminn. Vel tókst að ráða niðurlögum
eldsins og engin hætta skapaðist.
SLÖKKVILIÐIÐ
Ranglega var greint frá í sunnudagsblaði
Fréttablaðsins að á aðalfundi Samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafi
verið samþykkt ályktun þess efnis að
ekki kæmi til greina að flytja starfsemi
Reykjavíkurflugvallar til Keflavíkur.
Ályktunin sjálf, sem flutt var af Kristjáni
Sveinbjörnssyni bæjarfulltrúa á Álfta-
nesi, hlaut ekki samþykki. Árni Þór Sig-
urðsson borgarfulltrúi lagði fram tillögu
þess efnis að vísa ályktun Kristjáns til
svæðisskipulagsráðs höfuðborgarsvæð-
isins og var sú tillaga samþykkt.
LEIÐRÉTTING
BRETLAND, AP Bresk stjórnvöld
íhuga um þessar mundir að koma
á drykkjubanni í samgöngutækj-
um á borð við lestum og strætis-
vögnum.
Vonast stjórnvöld til að farþeg-
ar þessara farartækja fái þannig
frið fyrir drukknum einstakl-
ingum og hópum sem hafa gert
mörgum lífið leitt í gegnum tíð-
ina. Bannið myndi einnig koma í
veg fyrir að fólk gæti fengið sér
áfengi með matnum sem það borð-
ar í samgöngutækjunum. Ekki er
talið líklegt að bannið myndi ná
til flugvéla. Frumvarpið hefur
þegar mætt nokkurri andstöðu
hjá almenningi. ■
Frumvarp í Bretlandi:
Drykkjubann
verði í lestum
INDLAND, AP Rúmlega tuttugu
manns hafa verið handteknir í
Nýju-Delí, höfuðborg Indlands,
grunaðir um aðild að þremur
hryðjuverkaárásum í landinu sem
urðu að minnsta kosti 61 manni að
bana. Um 190 manns til viðbótar
særðust.
Lögregla réðst inn í tugi lítilla
hótela í borginni og handsamaði
hina grunuðu. Að sögn yfirvalda
höfðu hún töluvert af nýjum upp-
lýsingum um árásirnar upp úr
krafsinu.
Yfirvöld leita meðal annars að
manni á þrítugsaldri sem gekk
inn í strætisvagn skömmu fyrir
árásirnar og neitað að borga far-
gjaldið. Þegar hann steig aftur út
úr vagninum skildi hann eftir sig
svartan poka sem sprakk skömmu
síðar.
Neyðarástandi var lýst yfir
eftir árásirnar sem voru gerð-
ar á tvo markaði í höfuðborginni
á laugardagskvöld. Manmohan
Singh, forsætisráðherra Indlands,
sagði að árásirnar myndu ekki slá
þjóðina út af laginu. „Við munum
ekki leyfa þeim að bera sigur úr
býtum. Við erum staðráðin í því
að berjast gegn hryðjuverkum,“
sagði Singh, sem hélt neyðarfund
í þinginu í gær vegna árásanna.
Maður sem sagðist tala fyrir
hönd islömsku skæruliðahreyfing-
arinnar Inquilab Mahaz lýsti áby-
rgð á árásunum á hendur hreyf-
ingarinnar. Hún er lítt þekkt, en
tengist pakistönsku samtökunum
Lashkar-e-Tayyaba sem eru talin
róttækustu hryðjuverkasamtökin
í Kasmír-héraði.
Árásirnar í Nýju-Delí voru
gerðar aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir að Indland og Pak-
istan hófu viðræður um að opna
landamærin í Kasmír-héraði til að
auðvelda matar- og læknisaðstoð
fyrir fórnarlömb jarðskjálftans á
svæðinu sem varð um 80 þúsund
manns að bana, flestum búsettum
í Pakistan.
freyr@frettabladid.is
Tuttugu handteknir í
kjölfar hryðjuverka
Meira en tveir tugir manna hafa verið handteknir í Indlandi, grunaðir um aðild
að mannskæðum hryðjuverkaárásum í höfuðborg landsins á laugardag. Að
minnsta kosti sextíu og einn maður fórst og tæplega tvö hundruð særðust.
SORGMÆDDIR ÆTTINGJAR Ættingjar Kanchan Choudhary, sem fórst í hryðjuverkaárásunum á laugardaginn, bíða grátandi eftir líki hennar á
sjúkrahúsi í Nýju-Delí. AP/MYND
RÚSSLAND AP Mörghundruð manns
komu saman í Moskvu í gær til að
minnast pólitískra fórnarlamba
frá tímum Svovétríkjanna. Fórn-
arlömb, aðstandendur þeirra,
stjórnmálamenn og ýmsir mann-
réttindasinnar mættu á fundinn
og lögðu blóm og kerti á minnis-
merki sem reist var til heiðurs
fórnarlömbunum.
Talið er að um 20 milljón-
ir manna hafi verið kúgaðar og
pyntaðar í pólitískum hreinsunum
stjórnvalda frá uppreisn bolsév-
íka árið 1917 til dauða Stalíns árið
1953. Frá því að Sovétríkin hrundu
árið 1991 hefur fórnarlambanna
verið minnst þann 30. október ár
hvert. ■
Pólitískra fórnarlamba minnst:
Fjöldafundur
í Moskvu
MINNTUST FÓRNARLAMBANNA Fjöldi fólks
safnaðist saman í Moskvu í gær. 18 KÍLÓ AF HERÓÍNI FUNDUST
Lögreglan í Makedóníu lagði hald á 18,6
kíló af heróíni í vörubíl sem var á leið til
Kosovo. Verðmæti eiturlyfjanna er talið
rúmar 70 milljónir króna. Tveir Make-
dóníumenn voru handteknir grunaðir
um smyglið.
MAKEDÓNÍA
ÁKÆRÐIR FYRIR BARSMÍÐAR
Tveir bandarískir hermenn hafa verið
ákærðir fyrir að hafa ráðist á tvo fanga í
suðurhluta Afganistans. Eru þeir sakaðir
um að hafa lamið fangana í brjóstkass-
ann, í axlirnar og í magann. Þurftu þeir á
læknishjálp að halda eftir barsmíðarnar.
AFGANISTAN
DAN BROWN Breskir rithöfundar hafa kært
Brown.
FERÐAMÁL Gistiheimilið Brekku-
kot í Sólheimum hlaut umhverfis-
verðlaun Ferðamálaráðs í ár. Eig-
endur Brekkukots hafa markað
sér stefnu í anda grænnar ferða-
þjónustu og leggja áherslu á sjálf-
bærar byggingar, eigin orkuöflun,
lífræna ræktun, vinnslu afurða úr
náttúrulegum efnum og endur-
vinnslu. Ferðamálasetur Íslands
veitti í fyrsta sinn 100.000 króna
verðlaun fyrir framúrskarandi
lokaverkefni um ferðamál sem
unnið er af nemanda við háskóla
hér á landi. Verðlaunin hlaut Anne
Maria Sparf fyrir MS-ritgerð sína
sem fjallaði um möguleika lítilla
og meðalstórra ferðaþjónustufyr-
irtækja til að bæta frammistöðu
sína í umhverfismálum með hjálp
umhverfisviðmiðunar.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra ávarpaði ráðstefnugesti.
Ráðherra sagði í ræðu sinni að
fyrirhugað tónlistar- og ráðstefnu-
hús í miðborg Reykjavíkur væri
stærsta markaðsaðgerð í íslenskri
ferðaþjónustu fyrr og síðar. Tón-
listarhúsið hefði alla burði til að
stækka íslenskan ferðamarkað og
lengja ferðamannatímann.
Sturla talaði einnig um nauðsyn
þess að meta stöðu og langtíma-
áhrif sem gengisþróun hefur á
ferðaþjónustuna. Hann sagði ljóst
að innlend fyrirtæki sem byggja
tekjur sínar á erlendum gjald-
miðlum búi við krappa stöðu. - jóa
Ferðamálaráðstefnan 2005:
Brekkukot hlýtur viðurkenningu
UMHVERFISVERÐLAUN TIL BREKKUKOTS Aðalheiður Ásta Jakobsdóttir frá gistiheimilinu
Brekkukoti ásamt Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra og Ísólfi Gylfa Pálmasyni starf-
andi formanni Ferðamálaráðs. MYND/FERÐAMÁLARÁÐ
KJÖRKASSINN
Eiga útvegsmenn fiskinn í
sjónum?
JÁ 11%
NEI 89%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ertu búin/-n að setja vetrardekk
undir bílinn?
BANDARÍKIN, AP Aldrei hafa jafn
mörg bandarísk börn fæðst utan
hjónabands og nú. Næstum því
1,5 milljónir barna fæddust utan
hjónabands í Bandaríkjunum í
fyrra og þróunin virðist öll vera
í þá áttina. Alls fæddust fjórar
milljónir barna í Bandaríkjunum
árið 2004.
Ekki er um unglingavandamál
að ræða því ríflega 83 prósent
þeirra kvenna sem eignast barn
utan hjónabands eru á þrítugs-
aldri. Þessu var öfugt farið fyrir
þremur áratugum þegar um 50
prósent þeirra kvenna sem eign-
uðust barn utan hjónabands voru
innan við tvítugt. Fleiri konur á
aldrinum 25 til 29 ára eignast nú
barn utan hjónabands. Nam aukn-
ingin 14 prósentum milli áranna
2002 til 2004.
Bandarískar konur kjósa í
dag að ganga seinna í hjóna-
band en áður en það er ekki næg
ástæða til að útskýra breyting-
arnar. Rannsóknir sýna að flest-
ar þessar ógiftu mæður eru illa
staddar fjárhagslega og hafa
aðeins lokið grunnskólaprófi. Það
veldur sérfræðingum talsverðum
áhyggjum.
Fjölskyldumynstur bandarískra fjölskyldna að breytast:
Ógiftum mæðrum fjölgar
BARNEIGNIR Í BANDARÍKJUNUM Unglinga-
fæðingum hefur fækkað en einstæðum
mæðrum á þrítugsaldri fjölgar.