Fréttablaðið - 31.10.2005, Blaðsíða 25
7MÁNUDAGUR 31. október 2005
Bragi Björnsson
lögmaður
og löggiltur
fasteignasali
Úlfar Þ. Davíðsson
sölustjóri
Börkur Hrafnsson
lögmaður
og löggiltur
fasteignasali
HÁTÚN 6A
SÍMI
5 12 12 12
FAX
5 12 12 13
Netfang:
foss@foss.is
FASTEIGNASALA
Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, Fax 512 12 13, Netfang foss@foss.is
VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR
VEGNA MIKILLAR SÖLU UPP Á SÍÐKASTIÐ VANTAR OKKUR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ.
ENDILEGA HAFIÐ SAMBAND VIÐ SÖLUMENN OKKAR Í SIMA 512 1212
FAGRIHJALLI-KÓPAVOGUR
Vel skipulagt og bjart 228,3 fm parhús á
þremur hæðum á góðum stað í Kópavogi. 4
svefnherb. eru í húsinu auk góðs fataherb.
Tvær stofur, borðstofa/sólstofa og fallegt
opið eldhús. Parket og flísar eru á gólfum.
Tvö baðherbergi eru í íbúðinni. 46,3 fm við-
arsólpallur. Góður 46,3 fm bílskúr. Góð eign á eftirsóttum stað. Verð 44,9 m.
FROSTAFOLD - GRAFARVOGUR
Góð 3ja herbergja 95,6 fm íbúð ásamt
stæði í bílageymslu við Frostafold í Reykja-
vík. Forstofa með skáp. Eldhús er opið, hvít
snyrtileg innrétting. Stofa er stór og björt
með parketi á gólfi. Útgengt er á góðar
svalir frá stofu. Baðherbergi er stórt, tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Tvö svefnerbergi. Hús í góðu ásigkomulagi. Verð 19,3 milljónir.
FÍFULIND - KÓPAVOGUR
4ja herbergja íbúð, 104,4 fm í Lindunum í
Kópavogi. Úr stofu er útgengt á svalir sem
snúa til suðurs. Eldhús með fallegum við-
arinnréttingum. Við eldhúsið er sér þvotta-
hús með flísum á gólfi. Þrjú rúmgóð svefn-
herbergi. Baðherbergi Flísalagt gólf og veggir. Stutt í alla þjónustu, leikskóla,
skóla, verslanir og td. Smáralind. Verð 23,9 milljónir.
LJÓSHEIMAR-ÚTSÝNI
Glæsileg 2ja herbergja 79,4 fm íbúð á 9. hæð
í lyftuhúsi. íbúðin var standsett árið 2000.
Inng. með fallegum flísum. Opið eldhús. Búr
innaf eldhúsi með tengi fyrir þvottavél.
Stórar ca 18 fm svalir með frábæru útsýni.
Rúmgóð stofa. frábært útsýni. Verð 16,9
milljónir.
FRAMNESVEGUR - RIS
Hlýleg og vel skipulögð risíbúð við Fram-
nesveg í Reykjavík. Íbúðin er nýlega
standsett. Baðherbergi flísalagt hólf í gólf.
Svefnherbergi með fallegum nýjum fata-
skáp. Hvíttað eikarparket á gólfum. Inn-
felld halogen-lýsing er í íbúðinni. Ris er yf-
ir hluta af íbúð. Falleg íbúð á vinsælum stað í vesturbænum. Verð 14 milljónir.
AUÐBREKKA - SÉRHÆÐ Í KÓP.
Góð 5 herb. sérhæð alls 135 fm (þar af 25,2
fm bílskúr). Íbúð mikið endurnýjuð og hús í
góðu ásigkomulagi. Forstofa með fataskáp.
Stórt eldhús. Tvær samliggjandi stofur. Góð-
ar svalir. 3 svefnh. Góður 25,2 fm bílskúr með
góðri 5 fm gryfju fylgir eigninni. Björt sérhæð
í Kópavogi. Verð 23,9 m.
REYNIMELUR - ÞRIGGJA HERB.
Erum með í sölu 3ja herbergja,72,5 fm íbúð
á efstu hæð í fjögurra hæða fjölbýlishúsi
við Reynimel í vesturbæ Reykjavíkur.
Stofa og borðstofa í alrými. Rúmgóðar
svalir frá stofu. Glæsilegt útsýni. Sameign
er snyrtileg. Góð íbúð á afar eftirsóttum
stað í vesturbænum. Verð 18,2 milljónir
VESTURVALLAGATA - FALLEG
Falleg og rúmgóð 65,4 fm 2ja herb. íbúð á
4. hæð. Íbúðin er afar snyrtileg með nýleg-
um gólfefnum. Frábært útsýni. Stórt eld-
hús. Björt stofa með útgengi á rúmgóðar
svalir sem snúa til suðurs. Baðherbergið
er rúmg. Björt og rúmgóð eign með ein-
stöku útsýni á afar eftirsóttum stað í vesturbæ Reykjavíkur. Verð 15,9 m.
Fr
um
TJARNARSTÍGUR - SÉRH. Á SELTJ.
Erum með í sölu fallega efri sérhæð ásamt
bílskúr á eftirsóttum stað á Seltjarnarnesi.
Hæðin er björt og opin. 4 svefnherb. eru í
íbúðinni. Baðherbergi er nýlega standsett.
Stofa, borðstofa og eldhús í alrými, dökkt
parket á gólfum. Eldhús með nýlegri og fallegri viðarinnréttingu, vönduð tæki.
Flísalagðar svalir með góðu útsýni. Stutt er í alla þjónustu. Verð 31,9 m.
ÁLFKONUHVARF - 4RA HERB.
Stórglæsileg 120 fm 4ja herb. íbúð í fallegu
fjölbýli, með sérinng. af svölum og stæði í
bílsk. Stofa og borðst. með parketi á gólfi.
Rúmg. svalir. Eldhúsið með flísum á gólfi,
vönduðum innréttingum og eldhústækjum
,háfur yfir eldavél. Stór og fallegt baðherb.
Þrjú stór og björt parketlögð sv.herb. með skápum. Þv.hús í íbúð. Verð 30,5 millj.
FUNALIND-ÚTSÝNI
Rúmg. 3ja herb. íbúð með góðu útsýni á
efstu hæð í 4ra hæða fjölbýli. Parket er á
flestum gólfum nema baði og þv.h. Hol með
fataskáp. 2 sv.herb. með góðu úts. og fatask.
Bað er flísalagt. Stofa og borðst. í alrými. Út-
g. á sv. frá stofu. Eldh. er með eldhúskr., fal-
leg viðarinnrétt. Innaf eldhúsi er sérþv.h. Lóð með leiktækjum. Verð 21,5 millj.
HÖRGSHOLT - 2JA HERBERGJA
Björt 2ja herb. íbúð á jarðh. alls 57,3 fm í
húsi byggðu 1993 við Hörgsholt í Hf. Hol
með fatask. Stofa, eldhús og borðst. í opnu
rými. Ljóst parket á gólfum. Útfrá stofu er
gengið útá rúmg. viðarverönd. Eldh. með
fallegri innr. Sv.herb. með fatask., parket á gólfi. Baðherb. er rúmg., flísal. hólf í
gólf með baðkari,tengi fyrir þv.v. Rúmg. geymsla með glugga. Verð 13,7 millj.
Arkitekt: Kristín Guðmundsdóttir
SEGIR FRÁ VERKI SÍNU
Arinn sem er líka skjávarpi
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR HANNAÐI MJÖG SKEMMTILEGAN ARIN Í HÚSI Í GARÐABÆNUM. HÚN ÁKVAÐ AÐ SAM-
EINA TÆKNIÁHUGA HEIMILISFÓLKS VIÐ NOTALEGHEIT ARINELDS.
„Ég valdi arininn því hann er skemmtileg hugmynd og öðruvísi
að sýna en þetta hefðbundna baðherbergja- og eldhúsinnlit,“
segir Kristín Guðmundsdóttir innanhúsarkitekt aðspurð um
skemmtilegt verk eftir sig.
Breytingin á arninum var hluti af allsherjar yfirferð sem Kristín
gerði á húsi í Garðabænum. Frá arninum geislar ekki einungis
hlýju heldur einnig ýmiss konar myndum. „Arinninn var í mjög
gamaldags útfærslu fyrir en ég vildi gera heimilið dálítið nú-
tímalegra. Fjölskyldufaðirinn er tölvutækjakarl og síðan eru tveir
unglingsstrákar á heimilinu sem pæla mikið í græjum. Það kom
aldrei annað til greina en að hafa eitthvað geðveikt sjónvarp og
það endaði á því að arinninn varð líka að skjávarpa.“
Uppbygging og litir eru mjög stílhreinir. Arinninn er málaður
með hvítri, mattri málningu svo að skjámyndin komi vel út. Síð-
an liggur svört granítplata þvert yfir neðri hluta hans en efri
hlutinn samanstendur af gifsplötum á stálgrind og þaðan kem-
ur lýsing bæði til hliðanna og undir.
„Þetta er mjög skemmtileg samsetning, fólk getur notið hlýjunnar frá arninum um leið og það horfir á risastórt sjón-
varp,“ segir Kristín sem hefur í mörgu að snúast en fyrir utan að hanna heimili sér hún um fyrirtæki, ímynd þeirra og
útlit. Hægt er að sjá verk Kristínar á heimasíðunni www.innark.is.
Nýi arinninn er
einnig skjávarpi.
Teikning af hönnuninni.
Yfir neðri hluta
arinsins liggur
granítplata.
Arinninn var
gamaldags fyrir
breytingar.
06-07-fast efni lesið 30.10.2005 16:48 Page 3