Fréttablaðið - 31.10.2005, Qupperneq 83
TÓNLIST
[ UMFJÖLLUN ]
Hmm... hver veit fyrir hvað þessi Z
sem prýðir nýjustu plötukápu My
Morning Jacket stendur fyrir. En
eitt er víst, að sveitin tekur heldur
óvænta stefnu á þessari nýju plötu
sinni.
Fram til þessa var hljómur þeirra
frekar gruggug útgáfa af bandarísku
sveitarokki, alls ekki ósvipað því sem
The Band og Neil Young urðu fræg-
ir fyrir á sínum tíma. Það eru enn
leifar af því eftir, en það er eins og
Jim James og félagar hafi ákveðið að
gera poppplötu með aðstoð nýjustu
hljóðtækni og vísinda.
Útkoman er frábær og án efa
það besta sem þessi magnaða sveit
hefur sent frá sér. Höfuðpaurinn og
lagahöfundurinn James hefur opnað
huga sinn fyrir nýjum flóðgáttum og
allt í einu er bilið á milli My Morning
Jacket og Flaming Lips orðið óvenju
stutt.
Það er heldur ekki svo galið að
líkja lagasmíðum Jim James við þau
lög sem Elton John gat samið áður
en hann varð feit karlkyns útgáfa af
Elisabeth Taylor. Sá gamli kolklikk-
aði hommi átti það nefnilega til að
semja frábær lög, þó svo að yngri
kynslóðir eigi erfitt með að trúa því.
Tékkið á Goodbye Yellow Brick Road
og Captain Fantastic. En aftur að My
Morning Jacket:
Það hefur heldur aldrei verið
svona mikil innlifun í söng James.
Kannski vegna þess að hann er ekki
beinlínis fæddur með englarödd og
því hefur hann kannski ekki þorað
að láta vaða, fyrr en nú. Í lok lagsins
Gideon syngur hann af öllum lífsins
sálar kröftum, eins og hann sé að
þakka skapara sínum fyrir tilvist sína.
Þeir félagar skipta nokkrum sinnum
um gír á plötunni því næsta lag strax
á eftir What a Wonderful Man er lík-
legast mesta afmælisveislulag sem
þeir hafa gert. Fullt af hamingju og
von.
Annað frábært lag er svo Anytime,
sem hefur líklegast fengið vin þeirra,
Dave Grohl, til þess að brosa út
að eyrum. Vel smíðaður rokkslag-
ari með beittum poppönglum sem
ættu að draga hvern einasta rokk-
áhugamann, með blæðandi kinn, í
land.
Það er bjart yfir Jim James þessa
dagana og hann er greinilega nægi-
lega mikill listamaður til þess að
ýta sér stöðugt á brúnina. Z er með
áhugaverðari plötum þessa árs og ég
hef það á tilfinningunni að hún eigi
bara eftir að vaxa og vaxa við hverja
hlustun.
Birgir Örn Steinarsson
Z fyrir Zorglúbb?
MY MORNING JACKET
Z
NIÐURSTAÐA: Fjórða breiðskífa My Morn-
ing Jacket er það besta sem sveitin hefur
látið frá sér fara. Sveitin hefur hlammað sér
einhverstaðar á milli bandarískrar sveitatón-
listar og tilraunapopps, og gerir vel.
Bíl af gerðinni Ford Anglina
sem var notaður í einni af Harry
Potter-myndunum hefur verið
stolið. Bíllinn hafði verið til sýnis
fyrir utan South West kvikmynda-
verið í Bretlandi.
Bíllinn var merkilegur fyrir
þær sakir að hann gat flogið en í
raun og veru er bíllinn ekki einu
sinni ökufær. Ekki er vitað hvort
þjófurinn hafi vitað að um Harry
Potter-bíl hafi verið að ræða.
Bíllinn var annað hvort dreginn í
burtu eða hífður upp.
Fljúgandi Potter-bíl stolið
HARRY POTTER Bíl sem notaður var í einni af Harry Potter-myndunum var stolið á dögunum.
Tónlistarhátíðin Iceland Airwa-
ves, sem lauk á dögunum, fær
góða dóma í hinu virta bandaríska
tímariti Rolling Stone.
Greinarhöfundurinn David
Fricke kallar hátíðina „svölustu
löngu tónleikahelgi sem haldin
er á hverju ári“. Fricke fjallar
um tónlistarmenn og hljómsveit-
ir sem hann sá á hátíðinni og er
sérstaklega hrifinn af Ghostig-
ital, Jakobínarínu, Benna Hemm
Hemm, trúbadornum Þóri, App-
arat Organ Kvartett, Kira Kira,
Daníel Ágústi og sænska trúba-
dornum José González.
Ekki er langt síðan Iceland
Airwaves fékk góða dóma á
heimasíðu bandarísku sjón-
varpsstöðvarinnar MTV. Þar
hélt greinarhöfundur ekki vatni
yfir „timburmannaferð“ sem var
farin í Bláa lónið. Einnig var hann
hrifinn af hljómsveitinni Apparat
eins og kollegi hans frá Rolling
Stone.
Svalasta tónleikahelgi ársins
DANÍEL ÁGÚST Söngvarinn Daníel Ágúst fær góða dóma hjá Rolling Stone, rétt eins og
hljómsveitir á borð við Jakobínarínu, Ghostigital og Apparat Organ Kvartett.