Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2004, Qupperneq 6

Náttúrufræðingurinn - 2004, Qupperneq 6
Náttúrufræðingurinn 2. mynd. Hraunáll séður niður urn op ípaki hraunhellis. Hvítar útfellingar í kring um opið. Ljósm. Richard Kölbl, mars 1999. myndarlegasta hraungos síðustu ára með tilkomumiklum hraunálum (2. mynd) og myndun súlulaga hraun- drýla (3. mynd; ekki ólík Kerlingar- hnúkum á Selvogsheiði, nema algul). Þetta sjónarspil stóð fram í nóvember 1999 en þá höfðu ellefu milljón rúmmetrar af hrauni komið upp. Síðsumars 1999 hófust þeyti- gosin á ný í öllum toppgígunum nema Norðausturgígnum og 3. mynd. Hraundrýli í rauðum og gulum litum vegna brennisteinsútfellinga. Suð- austurgígurinn í baksýn. Ljósm. Richard Kölbl, mars 1999. breyttist Nýigígur verulega í útliti. Gígveggirnir hrundu nokkrum sinnum og langar hrauntraðir teygðu sig niður vesturhlíðar Ehru. Aska féll yfir þorpin Milo, Fomazzo og nokk ur fleiri, en verulegt tjón varð þó ekki að sinni enda virknin hátt uppi í fjallinu. Stóð þessi gos- virkni, einkum í Suðausturgígnum, með nokkrum hléum fram í júlí 2001.2'3 GOSIN 2001 OG 2002-2003 Þartn 14. júlí 2001 hófst gos í Suð- austurgígnum samfara jarðskjálfta- virkni í suðurhlíðum Etnu vegna kvikuhreyfinga. Dagana 17.-19. júlí opnaðist löng gossprunga með stefnu norður-suður í 2000 til 3000 m hæð og þvert yfir fjallstindinn (4. mynd). Þessi sprungustefna er sjaldgæf í Etnu. Hraun rann yfir aðkomuhús kláfferju í hlíðum fjalls- ins og lagði hana í rúst. Ferðamaður hryggbrotnaði er hann varð fyrir hraunkúlu þegar kröftug sprenging varð í „Laghetto" eða Tjamargíg í 2600 m hæð. Maðurinn var að virða fýrir sér hrauntungumar sem skriðu yfir ferðamannabæinn Rifugio Sapienza, sem er í þriggja kflómetra fjarlægð frá gígnum. Það sem var óvenjulegt og mjög áberandi í gosinu 2001 voru stórir amfiból- kristallarc (5. mynd), lausir í ösk- unni, allt að 8 cm langir og næstum 1 cm breiðir, en þeir komu eingöngu úr neðri hluta spmngunnar sem var í 2100 til 2550 m hæð. Með þeim komu upp sandsteinshnyðlingar, u.þ.b. 30 cm í þvermál.4, 5 Amfibólkristallar em einkum algengir í þeim hraunum Etnu sem mnnu fyrir rúmlega 15.000 ámm, þegar síðast varð hamfaragos í fjallinu, en það gos minnir um margt á gosið í Helenufjalli (Mt. St. Helens) í Washingtonríki í Bandaríkjunum í maí 1980. I gosmyndunum yngri en 15.000 ára hafa amfibólkristallar aðeins fundist í fáum hlvikum og þá helst sem bráðnaðar leifar af stærri kristöllum. Þetta á t.d. við um hraun frá miklu gosi sem varð árið 122 f.Kr. og einnig hraun frá 1892 (munnl. upplýs. Sonja Calvari, Massimo Pompilio). Það þóttu því mikil tíðindi að kristallar af þessu tagi skyldu birtast að nýju í verulegum mæli í hraunum Etnu. Sú spurning vaknaði hvort aðfærslurásir kvik- unnar í Etnu og um leið goshegðun fjallsins væri að taka nýja og hættu- legri stefnu. Svohljóðandi frétt barst um heiminn: „Etna gýs vatni í fyrsta skipti í 15.000 ár!" Jafnvel stærri fréttastofur Evrópu könnuðu þó ekki nánar hvað þetta þýddi í raun og veru. Þessi goshegðun vakti á hinn bóginn athygli undirritaðs, sem fékk tækifæri til að ferðast ókeypis aðra leiðina til Sikileyjar. Daginn áður en lagt var af stað, 9. ágúst 2001, var eins og skrúfað hefði verið fyrir alla virkni í gosstöðvunum enda þótt flestir hefðu búist við að gosið héldi áfram mánuðum saman. Það er því ekki óhugsandi að ókeypis farmiði að spúandi eldfjalli geti reynst ágætis slökkvitæki þótt um slíkt verði ekki rætt frekar hér. Gosið stóð aðeins í tæpar þrjár vikur og reyndar fór að draga úr því strax efhr tvær vikur. Amfibólið og áberandi þeytigosavirkni í neðri hluta sprungunnar báru vott um að c Amfiból: Hópur silíkatsteinda meö tvöföldum keðjum kísilferflötunga. Amfiból hafa m.a. vatn bundið í kristalbyggingu sinni og eru því kölluð „vatnaðar" steindir. 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.