Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2004, Side 10

Náttúrufræðingurinn - 2004, Side 10
Náttúrufræðingurinn 10. mynd. Hraunrennsli úr gosstöðinni í2750 m hæð ífyrstu morgunskímunni séð úr suðvestri. Ljósm. Gertrud Keim, 3. jan. 2003. kannski Hkja við vatnsósa hrísgrjón. Steindirnar ólivín og pýroxen myndast stöðugt úr bráðinni sem við það breytist úr frumstæðri kviku í etnaít. Frumstæða kvikan nær venjulega ekki yfirborði.15 Á þessu stigi mynduðu fremur umbrotalítil en stöðug gos eldkeilu sem upphaflega reis 7 km austsuð- austur af núverandi fjalli en virknin færðist síðan smám saman vestur á bóginn. Etnufjall í dag er myndað úr að minnsta kosti fjórum sam- vöxnum eldkeilum. Fyrir 14.000 árum endaði tímaskeið „Cratere Ellittico" eða „Sporöskjulaga gígs- ins", fyrirrennara eldkeilunnar í dag. Hann var nálægt þeim stað þar sem toppgígamir eru nú, en í leifum hans finnast þróaðri bergtegundir Etnu á borð við trakýbasalt, trakýandesít og dílalaust trakýt. Gígurinn splundr- aðist í gríðarlegu þeytigosi sem framleiddi nokkra rúmkílómetra af trakýtískum vikri og skildi eftir sig öskju sem nú er að hluta til grafin undir toppgígunum fjórum. Gjósku- lög benda til þess að endalok fyrri eldkeilnanna hafi orðið á svipaðan hátt.14 Af því sem sagt hefur verið hl þessa er ljóst að náin tengsl eru milli innri byggingar eldfjalls annars vegar og gosefna og goshegðunar hins vegar. Þróun KVIKUNNAR OG HAMFARAGOSIN Djúpa kvikuhólfið undir Etnu gæti ekki framleitt þróaðri kviku en etnaít því kringumstæður þar, svo sem þrýstingur og hitastig, eru ekki heppilegar. Til þess þarf kvikuhólf á minna dýpi.14 Þyngdar- og bylgju- hraðamælingar sýna reyndar að umfangsmikið innskot er að finna milli frá 1 km og niður á a.m.k. 18 km dýpi undir sjávarmáli. Það er í laginu eins og flaska á hvolfi, um 10 km breitt efst en mjókkar í 4 km er neður dregur. Það liggur undir suðurhluta Öxnadals (Valle del Bove) og inn undir toppgígana. Bergið í þessu innskoti er storknað nema í vesturhlutanum, milli 3 og 5 km dýpis, þar sem er kvikufyllt svæði.6,7 í því myndast þróuð, seig og þar með sprengivirk kvika, hugsanlega trakýbasalt og traký- andesít, við kristöllun plagíóklass. Hólfið er í snertingu við setlög og kvikan meltir hugsanlega setberg sem m.a. eykur hlutfall vatns í kvikunni.14 Talið er að kvika hafi streymt inn í þetta hólf síðan 1994.1 goshrinunni 2001-2003 skárust tveir gangar út úr því meðfram brota- línum í berginu milli storknaðs inn- skotsbergs og setlaganna í kring og fluttu þessa gasríku og plagíóklas- snauðu kviku, með amfiból- kristöllum og sandsteinsbrotum, til yfirborðs.6, 7 Utþensla fjallsins og sprungumyndun samfara henni hefur einnig hleypt af stað venjulegri kviku, sem kom upp samtímis ofar í fjallinu. Stór innskot af þessu tagi eru trú- lega orðin til vegna ójafns spennu- sviðs í og undir Etnu. Þegar nýtt kvikuinnskot kemur inn neðanfrá ryður það eldri kvikunni út. I sumum tilfellum, þegar gamla kvikan hefur náð háu þróunarstigi og innheldur mikið gas, leiðir þetta til stórgoss sem tæmir kvikuhólfið, sem síðan hrynur og myndar öskju. 8

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.