Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2004, Síða 45

Náttúrufræðingurinn - 2004, Síða 45
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 6. mynd. Prótínsmíð á ríbósómi. Lestur táknmáls mRNA-keðju hefur hafist á upphafstáknunum AUG og er keðjan nú orðin fimm amínósýrur á lengd. Sjötta aminósýran er að tengjast þeirri fimrntu. mRNA-sam- eindin er afrit afgetii. Nýtt peptíðtengi að myndast mRNA tRNA4 á förum as7-tRNA7 nálgast tákni tákni tákni tákni tákni tákni tákni Færsla ríbósóms as, as2 as3 as4 ass as6 as7 sameindir lífvísisins hvatað fleiri en eitt efnahvarf. Við þessar bolla- leggingar verður hins vegar að hafa í huga að áætlaður lágmarksfjöldi gena er miðaður við lífveru sem getur fengið nær allar nauðsynlegar lífrænar smásameindir úr umhverfi sínu. Frekar ólíklegt er að RNA- lífvísamir hafi notið slíks munaðar. Hins vegar hafa þeir að líkindum komist af með mun færri tegundir smásameinda en nútímafrumur. Sennilega voru RNA-sameindir lífvísisins, sem kalla mætti ríbósím- gen, ekki tengdar saman í langa litn- inga heldur sjálfstæðar og eftirmyn- daðar óháð hver annarri eða fáeinar saman. Eftirmyndun þeirra hefur verið fremur ónákvæm og ný afbrigði eða stökkbrigði þeirra hafa stöðugt verið að myndast. Lífvísam- ir hafa tæpast skipt sér á reglu- bundinn hátt, en hugsanlegt er að þeir hafi verið í nokkurs konar sam- býli þar sem erfðaefni gat flust á milli lífvísa. Slíkt fyrirkomulag gæti hafa stuðlað að góðri nýtingu lífefna. Samkeppni hefur því ef til verið milli samfélaga lífvísa ekki síður en milli eininga innan samfélaganna. Hin háa tíðni stökkbreytinga og sterkir valkraftar hafa stuðlað að örri þróun. En slíkir lífvísar hljóta að hafa verið mjög viðkvæmir fyrir um- hverfisbreytingum og ekki verður giskað á hve margar ámóta tilraunir til lífs hafa verið unnar fyrir gýg. Flestir sem fjallað hafa um RNA- skeiðið telja að það hafi verið frekar stutt. í nýlegri yfirlitsgrein13 er því úthlutað tímabilinu frá því fyrir u.þ.b. 3,8 til 3,6 milljörðum ára. Þetta mat tekur greinilega mið af því að þau merki um bakteríulíf sem menn telja sig hafa fundið í um 3,5 millj- arða ára gömlu bergi séu áreiðanleg. Hins vegar hefur það nú verið dregið í efa, eins og sagt var frá í fyrri grein.1 Upphaf PRÓTÍNMYNDUNAR Telja má næsta víst að smíð prótína hafi hafist áður en DNA kom fram sem erfðaefni. T.d. er talið mjög ólík- legt að RNA hafi getað hvatað umbreytingu ríbósa í deoxýríbósa sem er forsenda DNA-myndunar.19 Til þess hafi þurft prótín, eiginlegt ensím. Flest er hins vegar á huldu um það hvernig smíð prótína hefur hafist og hvemig sú skipan komst á sem nú einkennir allar frumur, að ákveðin röð kima í kjamsým ráði stöðu amínósýru í peptíðkeðju prótíns. Þegar grafist er fyrir um upphaf prótínsmíðar er vandinn litlu minni en þegar reynt er að átta sig á uppmna allra fyrstu lífvísanna. Það verður tæpast talið sjálfsagt að lífvísir á RNA-stigi finni upp á því að framleiða prótín eftir forskrift RNA-sameinda. Þvert á móti verða það að teljast undur og stórmerki. Óhjákvæmilega skýtur sú hugsun upp kollinum að margar tilraunir til lífs, bæði hér á jörðinni og á öðmm reikistjömum í alheimi, hafi strand- að á þessu stigi. Varla er hugsandi að líf sem treystir á RNA eitt saman, bæði sem erfðaefni og líflivata, geti náð miklum þroska. Mergurinn málsins er að prótín em miklum mun hæfari hvatar lífefnahvarfa en RNA og er fjölhæfni þeirra í þeim efnum lítil takmörk sett. Auk þess em þau kjörin byggingarefni fmmu- hluta og frumulíffæra og nýtast til ótal annarra sérhæfðra starfa. Erfið- ara er að segja hversu langt líf gæti náð án DNA með RNA sem erfðaefni og prótín sem hvata efna- hvarfa. Ef á hefði reynt hefðu lífverur hugsanlega getað náð mun meiri nákvæmni við eftirmyndun RNA en raun ber vitni í nútímafrum- um. Óstöðugleiki RNA-sam- eindanna hefði væntanlega verið erfiðari viðfangs. Til þess að betur skiljist hve gríðarlega mikið þurfti til þess að koma prótínsmíð á í RNA-lífvís- inum skal prótínsmíð í nútímafmmu lýst í stuttu máli með hliðsjón af 6. 43
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.