Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2004, Síða 51

Náttúrufræðingurinn - 2004, Síða 51
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags HEIMILDIR um Glámujökul Taka má undir með Sigurði Þórarinssyni að nafnið Glámuheiði bendi eindregið gegn því að þar hafi verið jökull á fyrstu öldum Islands- byggðar, en Glámu-heitið vísar vissulega til þess að hálendið hafi verið snjóflekkótt meðan land umhverfis var snjólaust (4. mynd). Á minnismiðum Áma Magnús- sonar, sem gefnir vom út undir nafninu Chorographica Islandica, sten- dur undir fyrirsögninni „í ísa- fjarðarsýslu 1649" meðal annars: „Gláma er jökull". Þessi orð standa með upptalningu jökla og er Gláma sú eina sem ekki ber jökulnafn og þess vegna hefur Áma þótt þurfa áréttingar við. Ekki er ljóst hvaðan hann hafði þær upplýsingar. Nýnæmi er að korti T. H. H. Knopf af Vestfjörðum frá árinu 1733 fyrir hversu ítarlegt það er. Það er talið byggt á kortum Magnúsar Arasonar sem var frá Haga á Barðaströnd. Á kortinu stendur skýrum stöfum „Glauma Iokull" inn af Amarfirði. Svo virðist sem svæðið, þar sem jöklinum er ætlaður staður, sé svolítið skyggt. Það er og fyrsta kort sem nefnir Drangajökul á nafn en á korti Þórðar Þorlákssonar biskups frá 1670 stend- ur „Lonioklar" upp af Snæfjalla- strönd. Fjöllistamaðurinn séra Hjalti Þorsteinsson í Vatnsfirði bætti um betur árið 1743 og teiknaði sér til gamans vandað kort af Vestfjörðum, sem nú er varðveitt í afriti Sæ- mundar Hólm. Ekki varð á betri mann kosið til verksins því að séra Hjalti var þjóðhagi og hafði verið prestur og prófastur í Vatnsfirði í hálfa öld er hann dró upp kortið. Á því er Glámujökull merktur svo og Glámuvegur. Þrátt fyrir að telja megi séra Hjalta meðal kunnugustu manna þar um slóðir, hefur hann of langt á milli Glámujökuls og Amar- fjarðar og em fjallvegir almennt of langir á uppdrættinum. í Sýslulýsingum 1744-1749 geta tveir sýslumenn um Glámujökul. Ólafur Ámason “ segir Þingmanna- heiði teygja sig norður að hinu mikla jökulfjalli Glámu í Isafjarðarsýslu („... strækker sig i Nord ind til det stoere Jökulfield udi Isefiordssyssel Gláma ..."). Erlendur Ólafsson13 greinir nokkurn mun á Drangajökli og Glámu. Drangajökul kallar hann ísfjall eða þakinn ævarandi jökli „(mons crystallinus seu perpetua glacie obductus)" en Glámu jökul- hettu eða jökultind „(jugum glaciale)". Undir þetta tekur séra Bjöm Halldórsson í Sauðlauksdal, sem ritar um 1785 í orðabók sína svofellda skýringu: „Gláma, f. albor, albities, Hvidhed, deraf Navnet paa et vist Isbjærg. inde nom. pr. montis, perpetuo nivi opbsiti". Latneska skýringu séra Bjöms á gldmu mætti að sögn Gottskálks Jenssonar út- leggja svo: Hvíta, hvítur litur .. .paðan er dregið nafnið áfjalli sem er pakið sísnævi. Eggert Ólafsson ritar svo í ferðabók sína: „Yfir hana [Glámu] hefur verið lagður langur og örðugur fjallvegur, sem að nokkm leyti liggur yfir jökul. Hann heitir Glámuheiði." Auklreldur segir hann: „Undan rótum beggja jökl- anna, Glámu og Drangajökuls ..., kemur jökulvatn, vikur og hraun- grýti af því tæi, að ekki þarf að fara í grafgötur um það, að hið innra em fjöll þessi brunnin og umbylt eins og aðrir jöklar á fslandi." (Þýðing Stein- dórs Steindórssonar úr dönsku.) Þar birtist sú almenna trú 18. aldar manna að jöklar séu jafnframt eld- fjöll. í eldra riti sínu Enarrationes... getur Eggert þess að aðeins nokkrir smálækir falli frá Glámu og hinn stærsti þeirra rertni í Skötufjörð. Það er væntanlega Hundsá sem á upp- tök sín í austurhlíðum Glámu, en ekki hefur þess verið getið fyrr eða síðar að hún beri jökulvatn. Umræða sem snertir Glámu á 19. öld er mest á einn veg hvað jökul- eðlið varðar. í bréfi til Brynjólfs Péturssonar og Konráðs Gíslasonar 31. ágúst 1840 kemst Jónas Hall- grímsson svo að orði: „Illur vegur á Vesturlandi og Gláma skárst því þar fer maður á blessuðum jökli." Að undirlagi Jónasar efndi Hið íslenska bókmenntafélag til lýsingar á öllum sýslum og sóknum íslands undir 3. mynd. Lautenantavarða á Sjónfríð, hlaðin árið 1806. Mynd sennilega tekin 1927. - Leutenants' Cairn built in 1806 on Sjónfríð, the highest peak in the Gláma area. Photo probably of 1927. Ljósm./Photo: NN. miðja 19. öld. Þar sem allmargar sóknir liggja að Glámu fer ekki hjá því að hennar sé þar víða getið, enda var Glámuheiði aðalfjallvegur milli byggðarlaga þótt hann væri orðinn fáfarinn er þar kom sögu. í öllum tilvikum er vitnað til hennar sem jökuls en þó með ýmsu orðalagi sem hér er til vitnað (Sóknalýsingar Vestfjarða 1 og II). Ólafur Sívertsen, prófastur í Flatey, ritar svo: „... Þingmannaheiði, holtafjall, er liggur alla götu norðvestur fyrir ofan Arnarfjörð til Glámujökuls í ísa- fjarðarsýslu ...". Einnig ritar hann um Vattardalsá og segir hana „... falla langan veg eftir fjöllum norðan undan Glámujökli." Síra Hálfdan Einarsson á Brjánslæk svarar spumingu um jökla svo: „Engir jökl- ar fyrr en norður af Vatnsdal og Lækjarheiði, þá Gláma tekur við." Þórður ÞorgrímssoiV prestur í Otradal lýsir landinu svo: „Sóknin sunnan og vestan fram takmarkast af fjallgarði þeim, sem frá sjó gengur til austurs og beygist svo til land- norðurs og gengur norður urn Glámujökul ...". Sigurður Jónsson/ 49
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.