Vikan

Issue

Vikan - 02.12.1965, Page 55

Vikan - 02.12.1965, Page 55
 HONIG Bolungavík Framhald af bls. 35. hann í lykkju í skammdekkinu. Lengd skorðunnar var talsvert meiri en sem nam hæð skips- síðunnar og myndaði hún þann- ig um það bil 30 gráða horn við skipshliðina efst. Skorðumaðurinn lét skorðuna vísa út og fram í hreyfingar- stefnu skipsins, þannig að hún væri alltaf viðbúin. Hann varð að halda henni sem mest á lofti því að ekki mátti hún festast, þá hefði hún kastað skipinu yfir. Hann varð alltaf að hafa auga á steinnybbu, sem skorðan gæti járnað i, ef til hennar þyrfti að taka, því að lausamöl skreið und an henni og varð hún þá gagns- laus. Ef þessir stóru bátar tóku að hallast, mátti skorðumaðurinn því ekki byrja á því, sem eðli- legast hefði verið, að forða sér sem lengst í burtu, heldur varð hann að leggja líf sitt og limi við verkið og bregða snöggt við og finna viðhald fyrir skorðuna og það gat orðið dýrt, ef það handtak brást. Þegar sett var svo þröngt á milli að hallranga þurfti höfðinu til að það slyppi á milli bátanna, þurfti ekki fjörugt ímyndunar- afi til að sjá andlit sitt fyrir sér eða réttara andlitsleysi, ef bátn- um veitti og viðhald skorðunnar brysti. Hér eru ekki rúm til að lýsa setningi bolvísku vélbátanna eins og þyrfti, þar sem þetta voru merkileg og einstæð vinnubrögð í atvinnusögu okkar. Þegar vélbátaútgerð hófst, hefði verið eðlilegast að Bolunga- vík hefði lagzt í eyði, nema þar hefði haldizt við lítilsháttar trillubátaútgerð og nokkur gras- býli. En þarna var blómlegt at- vinnulíf í lok áraskipatímans, og engin þreytumerki á fólki. Þrótt- mikið fólk leitar jafnan ein- hverra úrræða. Bolvíkingar lögðu heldur ekki upp laupana og hurfu á brott, þó að stutt væri að fara til ísafjarðar, sem blómg- aðist strax í byrjun þilskipaút- gerðar sökum lífhafnar sinnar, heldur settu þeir, eins og áður segir vélbátana á bökum sér, og hófu síðan byggingu brimbrjóts og urðu til slíks fyrstir manna hérlendis. Bygging brimbrjótsins hófst 1911 og það er enn verið að byggja hann. Og það hefur ekki verið slegið slöku við, síður en svo. Litla hreppsfélagið hefur alla tíð stunið undir þessari byrði, en aldrei hefur nokkur maður heyrt Bolvíkinga mæla æðruorð. Á hverju vori byrjuðu þeir daprir á svip en möglunarlaust, að týna burtu grjótrústina undan vetrin- um og notuðu síðan sumarið til að hlaða upp fyrir brimið að brjóta næsta vetur. Loks var horfið að því að búa til landspildu fyrir utan hann, og stendur hann nú, Brjótur, þegar þetta er skrifað, en hvort það verður þegar Vikan kemur út með greininni, um það skal engu spáð. Þó eru til þess lík- indi, því að nú mun um helming- ur Brjótsins á þurru um fjöru. Nú hefði þurft að nefna marga XX XX si JtK XX XX XX XX XX xx X X X XX EGGERT KRISTJANSSON & CO. HF. SllVII 11400 SmkmhmmmSSnnSiISnnSSSnSSkSmSk M OIMI G V ö R U ] VÖRUR VIKAN 48. tbl. gg

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.