Menntamál - 01.08.1957, Blaðsíða 13
MENNTAMAL
107
fyrir, að skólar gætu ekki byrjað störf að haustinu á
réttum tíma.
En nú er „öldin önnur“ og hefur verið síðan 1940 —
og þó einkum síðustu árin. Þótt skólastjóra- og kennara-
stöður hafi verið auglýstar lausar til umsóknar að sumar-
lagi, hafa fáar eða engar umsóknir borizt um allmargar
þeirra frá mönnum með kennaraprófi. Þetta hefur jafn-
vel átt sér stað í kaupstaðarskólum, bæði barnaskólum
og framhaldsskólum. Þá hefur og oft verið mjög erfitt
að útvega menn með kennaraprófi í stöður, sem losnað
hafa skyndilega, t. d. við það, að kennari eða skólastjóri
var settur í aðra stöðu. Þetta hefur orðið til þess, að þeim
mönnum hefur fjölgað verulega síðari árin, sem fengið
hafa stöður við fasta skóla og gagnfræðaskóla án þess
að hafa áður lokið kennaraprófi. Allt hefur þetta orðið
til þess, að allmargir skólar hafa ekki getað hafið kennslu
á réttum tíma.
Til glöggvunar á því, hvernig nú er ástatt um vöntun
á kennurum með kennaraprófi í barnaskólum og gagn-
fræðaskólum, set ég hér yfirlit um tölu kennara með og
án kennararéttinda. Vegna barnaskólanna nær yfirlit
þetta til 5 síðustu ára, en vegna gagnfræðaskólanna að-
eins til yfirstandandi skólaárs.
í barnaskólum var tala fastra kennara og aukinn kenn-
ara fjöldi f. f. skólaári sem hér segir:
Skólaárið. Pastir kennarar Farkennarar Fjölgun
alls án k.pr. alls án k.pr. kenn. alls
1952—53 488 12 89 51 17
1953—54 518 12 93 54 34
1954—55 545 13 85 52 19
1955—56 565 31 80 57 15
1956—57 622 34 81 54 58
Af þeim nemendum Kennaraskólans, sem luku almennu
kennaraprófi síðustu 4 árin, var tala þeirra, er fóru í
kennslu á sama hausti, sem hér segir: