Menntamál - 01.08.1957, Blaðsíða 14
108
MENNTAMÁL
1953: Útskrifaðir 38, í kennslu fóru 28
1954: Útskrifaðir 33, í kennslu fóru 26
1955: Útskrifaðir 33, í kennslu fóru 22
1956: Útskrifaðir 35, í kennslu fóru 30
Af þessum yfirlitsskýrslum má sjá, að enda þótt megin-
hluti nýútskrifaðra kennara hafi farið í kennslustörf und-
anfarin ár, hefur samt orðið að setja æ fleiri réttindalausa
menn til kennslu í föstum barnaskólum.
í farskólahverfum hefur nemendafjöldinn lítið breytzt
í mörg ár — fer þó fremur fækkandi. Það er tilviljun, ef
maður með kennaraprófi fer í farkennslu — enda þótt
launakjör séu þar sízt lakari hlutfallslega en í föstum skól-
um. — Tala réttindalausra farkennara hefur verið svipuð
frá ári til árs og verður a. m. k., þar til kennaraprófsmönn-
um f jölgar verulega.
í unglinga- mið- og gagnfræðaskólum eru nú rúmlega
5900 nemendur og 260 fastir kennarar. Undanfarin fjögur
ár hafa þessar tölur verið sem hér segir:
SkólaáriS Tala fastra kenn.
1952— 53 192
1953— 54 195
1954— 55 203
1955— 56 211
1956— 57 260
Hér fer á eftir yfirlit um tölu kennara í skólum gagn-
fræðastigsins skólaárið 1956—57 eftir menntun þeirra:
1. Háskólapróf, flestir cand. mag......... 36 menn
2. B.A.-próf, o. þ. u. 1................... 18 menn
3. Ýmis háskólapróf, flestir guðfr........ 12 menn
4. Nokkurt háskólanám, þar af 9 með kenn-
araskólapróf ......................... 41 maður
5. Kennarapróf frá Kennaraskólanum .... 48 menn