Búnaðarrit - 01.01.1902, Blaðsíða 148
140
um árum var byrjað á sjógarði fyrir neðan Stokkseyrarbæ,
en komst skamt á veg. Síðastliðinn vetur var nokkuð unn-
ið að þessu verki, en þó minua en æskilegt liefði verið.
Garðurinn er afarnauðsynlegur, bæði til þess að verja t.ún
og kálgarða fyrir skemdum af sjávarróti, og svo til þess að
meiri not verði að landiuu á þessu svæði en nú er. Undir
eins og garður væri gjörður, er skýldi landiuu fyrir áföllum,
mundi það tekið til ræktunar, bæði uudir túu og matjurta-
reiti.
Vegalengdiu, sem eg fór yfir eða inældi, er 1450 faðmar.
Kostnaðurinn er mjög stórvægilegur. Eftir áætlun ininni
nemur hanu alls, 15,200 kr.
Upp að Hvanneyri var eg seudur 25. apríl, til þess
að vera þar, meðan prófið við mjólkurskólanu fór fram. Und-
ir prófið gengu 5 stúlkur, er dvalið höfðu á skólauum frá
1. febrúar.
Samkvæmt beiðni amtsráðsius í Austuramtinu til Bún-
aðarfólagsins um, að það sendi þangað mann austur tilþess
að leiðbeina í jarðabótum o. s. frv., var mér falið að fara
þá ferð, og ferðast. þar um. Eg lagði af stað með „Ceres“
til Austfjai'ða, 18. maí, og kom aftur til Reykjavikur 28.
júni. Skýrsla um þessa ferð, er birt í Búuaðarr. og
verður henuar því eigi getið frekar hér.
Austur í Arnes- og Rangárvallasýslu íór eg 4. sept., til
þess, meðal annars, að líta eftir og taka út, skurði,er heitið
liaíði verið styrks til frá Búuaðarfélaginu. Var 19 daga í
þeirri ferð.
Skurðir þeir, sem eg skoðaði og tók út eru þessir:
1. Skurður í Plóðakeldu í Safarmýri. Sérstök skýrsla
or þegar gefin um hann, og verður því slept að lýsa hon-
um hér.
2. Krosskurður í Austur-Landeyjum. Hann er enn eigi
fullgjör. Af honum eru nú fullgjörðir 1780 íaðmar á lengd,
8—10 fet á breidd og 2 fet á dýpt. Það verða 187280
teu.f. Dagsverkið liefi eg gjört 800 ten.fet, og eru þetta því
457 ‘/a dagsverk,