Búnaðarrit - 01.01.1902, Blaðsíða 170
162
aðarsamir að halda. Nú kaupa þeir mest rússneska hesta,
sem eru yfir höfuð vorir verstu keppinautar, því þeir eru
stærii (um 9 kvartil) og þykja fallegri, þó þeir séu hvergi
nærri svo úthaldsgóðir né traust.bygðir sem vorir hestar.
Margir af leiðaudi mönnum Dana, eru þó á seintii árum
mjög mótfallnir því að rússneskir hestar séu fluttir inu í
landið, því þeir flytja títt með sér hættulega sjókdóma, sem
íslenzkir hestar eru alveg lausir við. Rússneskir hestar
hafa selst í Danmörku á seinustu árum frá 250—350 kr.
Enski markaðuriun hefir breyzt allmikið á seinustu ár-
um, og breytist stöðugt meira og ineira. Aður voru íslenzk-
ir hestar notaðir næstum því eingöngu til kolanámanna. Nú
er aftur á móti farið að nota rafurmagusmaskínur í námun-
um í staðinn fyrir hesta, og eftir nokkur ár inegum vér
gjöra ráð fyrir, að þær hafi útrýint hestunum að miklu leyti.
í staðinn er farið að nota hesta vora mildð meira en íyr til
lóttari aksturs, einkanlega í borgunum. Dörfin fyrir smáhesta
til þessarar notkunar vex stöðugt eftir þvi, sem liestakyn
Bretlands verða stærri og dýrari, og kostnaðarsamari að
halda. Til þessarar hrúkunar þykja þeir hestar beztir, sem
eru rúm 9 kvartil að hæð, því að sú stærð þykir bezt sam-
eiua nægilegan styrkleika með nauðsynlegum flýti og þoli,
og auk þessa eru iiestar af þeirri stærð ódýrir að halda og
þægilegir i meðferð.
Að endingu finst. mér ástæða til að geta þess, að á
seinustu tveim árum, liefir mikið verið talað um meðal hesta-
fræðiuga (hyppologe) á Bretlandi, að lramleiða liðsmannaheesta
(remonta) við kyhblöndun millum smáhestahryssa og grað-
hesta af stærri hestakynjum, og með því að Englendingar
hafa tiltölulega mjög litið af smáhestum — og Skotar enga,
eru miklar líkur til að hór opnist með tímanum, mjög góð-
ur markaður fyrir hesta vora. Þó vil eg taka það fram, að
til þess að geta notað þennan markað, þurfum vór að koma
góðu lagi á hestarækt vora, halda œttartölubœkur m. m. —
I sambaudi við þetta, vil eg geta þess, að miklar líkur eru
til, að verð á íslenzkum hestum á Bretlaudi verði mun