Hlín - 01.01.1922, Blaðsíða 12
%
10 Hliti
miði sínu hugðist fjelagið að ná með því að kosta þar
til hæfa stúlku til að læra hjúkrunarstörf.
Fyrsta árið komst þetta þó eigi í framkvæmd, og það
eina sem fjelagið gat starfað það árið var að skjóta
saman gjöfum: fötum, matvælum og peningum og færa
það fátækum fyrir jólin, og þeim sið hefir verið haldið
síðan.
*> Árið 1916 var sent hjúkrunarkonuefni til Akureyrar-
sjúkrahúss, til að nema hjúkrun, og tók hún til starfa
í fjelaginu um áramót 1916 — 17 og hafði þann starfa í
3 ár. Nú er ný hjúkrunarkona fengin.
Fjelagið veitir ókeypis hjúkrun á öllum fátækari heimilum.
Peninga hefir fjelagið látið af mörkum í ýmsum sjúk-
dómstilfellum og nema gjöld þess árlega að meðaltali
kr. 300.00. Auk þess'hefir fjelagið síðastliðið ár gefið
Akureyrarsjúkrahúsi 15 ullarábreiður.
Síðastliðinn vetur gekst fjelagið fyrir því að handa-
vinnunámsskeið fyrir ungar stúlkur (kvenfatasaumur o.
fl.) var haldið á Dalvík, sóttu það 10 stúlkur.
Á ársskemtun fjelagsins hafa konur oft haft með sjer
heimagerða muni, þeir voru fyrst hafðir til sýnis og svo
seldir á samkomunni og andvirðið látið ganga í fjelags-
sjóð.
í Sambandsfjelag norðlenskra kvenna gekk fjelagið ár-
ið 1920.
Fjelagatala hefir aukist úr 30 upp i 60. Árstillag er
nú 2.00 kr. — Sjóð hefir fjelagið myndað af tekjuafgangin-
um og er hann nú nokkuð á 3. þús. krónur.
Pað er ljóst af því sem að framan er skrað, að iðgjöld
fjelagsins hefðu hrokkið skamt til að standast þann
kostnað, sem það hefur haft og til að mynda sjóð þann,
sem fyrir er, enda er mikill meiri hluti þeirra peninga,
er fjelagið hefur haft og hefur, fengin með frjálsum sam-
skotum meðal fjelagskvenna og með því að halda að minsta
kosti eina skemtisamkomu árlega. Ennfremur hafa ein-