Morgunn


Morgunn - 01.06.1976, Page 22

Morgunn - 01.06.1976, Page 22
20 MORGUNN að leiðarljósi í siðferðilegum efnum. Yissulega væru til trú- flokkar í Austurlöndum og Indlandi, sem kenndu sálnaflakk úr mannsmynd til dýrs. En þetta væri mistúlkun hinnar sönnu endurholdgunarkenningar. Jafnvel kristnidómurinn væri einnig til í afskræmdum og villandi myndum. Það væri þvi ekki viturlegt að láta lauslega kynningu á þessum afmynd- unum loka hug sinum fyrir þeim sannleik sem felast kynni i frumtrúnni. Lammers gat bætt við þetta ýmsum nánari útskýringum. Endurholdgun táknar þróun, sagði hann. Þróun mannsand- ans gegn um mörg líf á jörðinni, hvert á fætur öðru. Ýmist fæðist vera sem karlmaður eða kvenmaður, fátækur eða rikur, ýmist tilheyrir hún þessum kyoþættinum eða hinum, þangað til andinn hefur náð þeirri fullkomnun, sem Kristur sagði oss að keppa að. Sálin er eins og leikari, sem tekur að sér mis- munandi hlutverk og klæðist mismunandi búningum frá kvöldi til kvölds. Eða lík hönd sem íklæðist glófa efnislíkama um stund og skiftir síðar aftur um hanska, þegar sá fyrri er slitinn orðinn. Fjöldi gáfaðra manna á Vesturlöndum hafa fallist á þessa kenningu og skrifað um hana. Þannig trúði heimspekingurinn Schopenhauer statt og stöðugt á hana. Sama máli gegndi um Emerson, Walt Whitmann, Göthe, Giordino Bruno, Plotinus, Pyþagóras og Plató. En svar Cayces við þessu var, að þetta væri nú svo sem allt gott og blessað, en hvað um kristnina? Væri hann ekki að af- neita Kristi og kenningum hans, ef hann féllist á endurholdg- unarkenninguna? Lammers kvað það fjarri sanni. Hvað væri í rauninni kjam- inn i kenningu Krists? Lögfræðingur úr flokki farisea hefði eitt sinn spurt Krist þessarar spurningar og svar hans var: „Þú skalt elska drottinn, Guð þinn, af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum huga þínum . . . Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Á þessum tveimur boðorð- um byggist allt lögmálið og spámennirnir." (Mattheus 22. 37-40).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.