Morgunn


Morgunn - 01.06.1976, Page 23

Morgunn - 01.06.1976, Page 23
SVO SEM MAÐURINN SAIR . . . 21 Hvernig gat þessa einfalda en viturlega kenning brotið í bág við þann ramma um framþróun mannsins sem endur- holdgunarkenningin gerði ráð fyrir? Og hvernig gat þessi kærleikskenning yfirleitt brotið í bág við nokkur hinna miklu trúarbragða heimsins? „Ekki skaltu aðra særa á þann hátt að það myndi sjálfan þig særa“, hafði Buddha sagt. „Þetta er meginkjarni skyldunnar: gerðu öðrum ekkert sem valda myndi sjálfum þér sársauka, ef það væri við þig gert,“ er kennt er í ritningu Hindúa. Og hvorki Hindatrú né Buddha- trú gátu fundið nokkurt ósamræmi milli kærleikslögmálsins og þess andlega þróunarlögmáls, sem nefnt hefur verið endur- holdgunarkenning. Ekki nægði þetta samt til þess að sannfæra Cayce. Þegar hann var tíu ára hafði honum verið gefið eintak af Biblíunni. Þessi bók hafði heillað hann. Þá hét hann því að lesa hana spjaldanna milli ár hvert af ævi sinni. Og þegar hann var búinn að lesa hana nægilega oft til þess að ná upp árunum áður en hann varð læs, hélt liann þessu áfram kerfisbundið einu sinni á ári. 1 þessari elskuðu bók hafði hann aldrei öll þessi ár rekist á orðið endurholdgun. Hvers vegna minntist Biblían aldrei á endurholdgun, og það sem meira var um vert, ekki heldur Kristur sjálfur? Lammers svaraði því til, að ef til vill hefði Kristur gert það. Það má aldrei gleyma því, að hann kenndi lærisveinum sín- um margt, sem hann ekki kenndi fjöldanum. Og enda þótt hann hefði haldið fram endurholdgunarkenningunni við al- menning, þá ber þess að minnast, að hinar upphaflegu frá- sagnir af kenningum hans hafa orðið fyrir margs konar breyt- ingum gegnum aldirnar, sökum þess skilnings sem lagður var í orð hans og vegna þýðinga gegn um mörg tungumál. Þess vegna kunna margar raunverulegra kenninga Krists að vera glataðar oss. Einn staður í Biblíunni hefur þó varðveist að minnsta kosti. Það er þar sem Kristur sagði lærisveinum sin- um að Jóhannes skírari væri Elía endurfæddur (Mattheus 17:12-13). Að visu notaði hann ekki orðið endurholdgaður, en hann sagði þó: „Eg segi yður, að Elía er nú þegar kom-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.