Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 2
Áskorun um bindindismál
Vín- og tóbaksbindindisfélög Hvanneyringa sendu Alþingi
haustið 1939 áskorun þess efnis, að þau skora á hið háa Alþingi
að vinna að því, að opinberir starfsmenn neyti ekki áfengis. Enn
fremur skoruðu félögin á liið háa Alþingi að vinna að þvi, að
sterkar kröfur væru gerðar til allra barnakennara um, að þeir
neyti hvorki tóbaks eða áfengis.
Félögin vilja í þessu sambandi taka eftirfarandi fram:
1. Okkur er ljóst, enda viðurkennd staðreynd, að öll neyzla
áfengis sljóvgar og veikir starfsþrek og starfshæfileika manna.
I3að er J)ví ekki ncma sanngjörn krafa liins opinbcra til allra
starfsmanna sinna, að þeir ekki neyti áfengis.
2. Við erum þess fullviss, að ef opinberir starfsmenn sæjnsl
aldrci undir áhrifum áfengis, myndi það hafa hina mestu þýð-
ingu fyrir bindindismálin í heild og að áfengisnautnin myndi
þá stórum minnka og e. t. v. fengist þá grundvöllur undir þá
nauðsyn að láta áfengið hverfa af íslandi.
3. hað er kunnugt, að annar aðilinn, sem mestu ræður um upp-
eldi borgaranna í þjóðfélaginu, eru barnakennararnir. Það skiptir
því þjóðfélagið miklu að vanda val þeirra sem allra bezt. Ung-
lingarnir taka kennara sína yfirleitt sér til fyrirmyndar. Barna-
kennararnir móta börnin inn á ákveðnar brautir meðal annars
með þeirri fyrirmynd, sem þeir eru börnunum. Það verður að
teljast alveg óverjandi, að unglingakennarar neyti tóbaks eða á-
fengis og kenni á þann hátt ungmennunum þessa lesti, sem hlýtur
að verða hverjum manni og konu til varanlegs tjóns og bölvunar
í lífsbaráttunni.
Að síðuslu vilja svo félögin skora á liið háa Alþingi að hlut-
ast lil um, að áfengi verði aldrei veitt í þeim veizlum, sem haldnar
eru og kostaðar af opinberu fé.
Framli. á 3. kápusíðu.