Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 94
88
BÚFRÆÐINGURINN
Þégar nú fclagið er lekið til starfa, Jjer að færa bókhald
þess svo, að það gefi glöggt yfirlit yfir útgjöld og tekjur
sainlagsins, svo að liægt sé að dæma um, livernig starf-
semin hefir tekizt fjárhagslega séð og gera samanburð á
milli hinna einstöku samlaga.
Niðurlag.
Hér að framan liefir verið leilazt við að skýra starf-
semi og lilutverk smjörsamlaga. Mér er það ljóst, að hér
hefir verið stiklað á stóru og að það cr margt, sem láðst
hefir að taka til meðferðar, en tilgangur þessarar greinar
er ekki sá, að vera tæmandi fræði um hin einstöku rekstr-
aratriði, lieldur að vekja atliygli manna á.þeim verkefn-
um, sem enn iiíða óleyst á sviði heimaframleiðslu mjólk-
urafurða og þá sérstaklega á sviði liins svokallaða heima-
smjörs. Mönnum hlýtur að vera ]iað ljóst, að hér er um
mikið verkefni að ræða, sem mikils er uín verl, hæði fyrir
neytendur og framlciðcndur, að l'ramkvæmt sé eftir sjálf-
sögðum hreinlætis- og heilbrigðisreglúm, án þess að fram-
leiðslan lamist af of miklum tilkostnaði.
Mín skoðun er sú, að smjörsamlög og rjómahú séu bezt
í'allin til þess að Icysa þessi verkefni af liöndum, og ég
vonast til, að reynsla komandi ára verði hliðstæð þessari
skoðun minni.
(Fyrsta smjörsamlagið hér á landi var stofnað haustið 1939 i
Búðardal í Dalasýslu og gekkst kaupfélagið þar fyrir því. Keypt
var hnoðunarvél og mótaborð fyrir kr. 000.00. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Jóni Þorleifssyni kaupfélagsstjóra er vinnukostnað-
ur við smjörið í Búðardal um 25 aurar á kg, en kostnaður alls,
])ar til er smjörið kemst á markaðsstað, um 50 aurar á kg. Bændur
munu fá um eða jrfir kr. 4.00 fyrir hvert kg smjör. Um áramótin
1939—1940 sendu um 80 bændur í Dölum smjör vikulega lil smjör-
samlagsins í Búðardal og eru talsverðar vonir þar tengdar við
þetta fyrirtæki. — Iiitsíj.)