Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 95
Brot úr íerðasögu.
Síðast liðið sumar ferðaðisl ég nokkuð um Norðurlönd i
því skyni að kynna mér landbúnaðarmál, einkum færslu
búreikninga, og veitti Búnaðarfélag Islands mér dálítinn
styrk til fararinnar. Sumt af því, er ég sá og lieyrði i för
þessari, gæti ef til vill orðið til fróðleiks fyrir lesendur
Búfræðingsins. Ég' mun því hér skýra í meginatriðum frá
því, livernig ferðalaginu var hagað, og segja frá liinu
helzla, cr ég tel, að sé til fróðleiks eða gagns fyrir þá, er
áhuga hafa á íslenzkum landbúnaðarmálum.
Ég lagði af stað til Kaupmannahafnar 6. júlí og kom
þangað að morgni hins 13. júli. í Danmörku dvaldi ég
tæpar fjórar vikur, mest við búreikningaskrifstofu Dana
i Kaupmannahöfn. Auk þess lieimsótti ég eftirtaldar bún-
aðarstofnanir: Landbúnaðarliáskólann i Kaupmannaliöfn;
búnaðarskólana i Lyngby, Dalum og Höng; tilraunastöðv-
arnar í Askov, Tylstrup, Lyngby, Ötoftegaard og tilrauna-
búgarð spiritusverksmiðjanna í Norður-Jótlandi; rann-
sóknastofnanirnar i efnafræði og jurtasjúkdómum i Lyng-
by; tilraunabúgarða rílcisins i Ililleröd, en þar eru gerðar
margs konar tilraunir með búfé; mýrarræktina norðan við
Álaborg (Store Vildmose); Heiðafélagið i Vil^org; mó-
verlismiðju á Sjálandi; mjóllcurbú, er geldc næstum ein-
göngu fyrir rafmagni, o. fl. Enn fremur var ég á stórri
landbúnaðarsýningu í Odense.
í Sviþjóð dvaldi ég tvo daga við búreikningaskrifstofu
Svía i StokklióJmi. Enn fremur slcoðaði ég eftirtaldar land-
búnaðarstofnanir: Búnaðarháskólann i Uppsölum og beit-
artilraunir þar; búnaðarstofnunina í Alnarp, en þar starf-