Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 18
12
BÚFRÆÐINGURINN
alls staðar. Þá er hentugt að
rista í norðurhlið þúfnanna,
því að plönturnar þurfa
skugga og raka fyrstu tvö til
þrjú árin. Milli þúfna má
auka skuggann ineð því að
leggja þökurnar við suður-
rönd sáranna. Þegar fram
líða stundir, breytast kröfur
plantnanna þannig, að þær
vilja hafa fullt dagsljós og
hlýjan jarðveg. Þegar sáð er
í rennblautum mýrum, þá
koma upp margar og kröft-
ugar plöntur, sem stækka
annað og þriðja árið. Sé þá
Biriiisáðreitur i Hjarðarlioiti. ekki gerð framræsla, kemur
kyrkingur í gróðurinn, en
að framræslu búinni, heldur vöxturinn áfram. Þannig
hefir farið í sáðreitinum í Iljarðarholti i Laxárdal. Þegar
sáð er á skrælþurru landi, þá koma upp færri og mjög
smáar plöntur, sem stækka lítið fyrstu fjögur til fimm
árin, en upp frá því fer vöxturinn óðum að magnast. Sáð-
reiturinn á Hofi í Valnsdal er dæmi upp á þetta.
Á árunum 1927 -1933 voru stofnaðir sáðreitir eins og
hér segir:
1. Á Eyjólfsstöðum í Vatnsdul í A.-Hún., stofnaður 1927 1,0 ha
2. - Iíofi í Vatnsdal í A.-Hún., stofnaður 1927 ........ 1,0 —
3. - Haukagili i Vatnsdal í A.-Hún., stofnað.ur 1927 . . 1,0 —
1. í Hjarðarholti í Laxárdalshr. í Dalasýslu, stofn. 1928 1,0 —
5. Á Brennu i Lundarreykjadal í Borgarfjs., stofn. 1930 1,0 —
0. - Oddsstöðum i Lundarreykjad. í Borgfjs., stofn. 1930 0,5 —
7. - Gullberast. í Lundarreykjad. í Borgfjs., stofn. 1930 0,5 —
8. f Deildartungu í Reykholtsdal í Borgfjs., stofn. 1931 0,75 —
9. Á Víðivöllum í Skagafirði, stofnaður 1932 ............ 3,5 —
10. - Siglufirði, stofnaður 1933 ............................ 8,0 —
11. - Akranesi, stofnaður 1933 .............................. 0,5 —
12. 1 Varmahlíð í Skagafirði, stofnaður 1934 ............... 1,0 —