Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 9
BÚFRÆÐINGURINN
/
kennara, sem margir munu hafa hugsað til með söknuði.
Föstudagskvöldið og laugardagsmorguninn var einkuin
sá tími, er Hvanneyringum var ætlað að eiga sjálfum,
án allrar þvingunar, og mun liann óspart hafa verið not-
aður.
Eftir hádegi á laugardag var haldinn fundur í nem-
endafélaginu Hvanneyringur, og stóð hann fram undir
kvöld með einu fundarhléi. Verður honum lýst á öðrum
stað liér i ritinu.
Um kvoldið var svo setzt að kvöldverði í hinni veg-
legu Skagfirðingabúð, og ,sátu þar undir borðum um 200
manns, Hvanneyringar og gestir skólans. Fór borðhaldið
fram liið ánægjulegasta með ræðuliöldum og söng, enda
var margs að minnast. Þar voru dregnar fram myndir af
löngu liðnum ánægjulegum skólavistarárum. Þar var
minnst starfsmanna skólans, sem nú eru liðnir eða
horfnir að öðrum störfum og þá fyrst og fremst Hall-
dórs Vilhjálmssonar, enda voru flestir i þessum lióp
nemendur lians. Þar var beint nokkrum orðum til hús-
freyja hans og Hjartar Snorrasonar, er báðar voru þarna
viðstaddar og til hinna tryggu vinnuhjúa Halldórs, er svo
margir Hvanneyringar könnuðust við. Þessir tóku til
máls: Runólfur Sveinsson skólastjóri, Guðmundur Jóns-
son kennari, Þorgils Guðmundsson kennari i Reykholti,
Björn Bjarnarson í Grafarholti, Bjarni Ásgeirsson á
Reykjum, Sigurjón Kristjánsson i Krumshólum, Kristinn
Guðmundsson á Mosfelli og Helgi Hjörvar Reykjavik.
Og vafalaust hafa ýmsir átt eftir að iétta á hjarta sínu,
er borðhaldinu var slitið litlu fyrir miðnætti.
Sunnudagurinn 25. júni rann upp — aðalhátíðisdagur
Hvanneyrarmótsins. Veðrið var þurrt og gott, en nokkur
stormur. Eftir morgunverð gengu menn til leika að forn-
um sið, og var háður knattspyrnuleikur á milli eldri
Hvanneyringa og þeirra Hvanneyringa, er voru heimilis-
fastir á Hvanneyri. Dómari var Þorgils Guðmnndsson
kennari í Reykliolti. Leikar fóru svo, að hinir eldri háru
sigur af hólmi með tveinmr mörkum gegn einu. Klukkan