Morgunblaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009 „ÞETTA hefur gengið ótrúlega vel, ekki síst miðað við að í hópnum er fólk á aldrinum 14-49 ára og sumir að fara í fyrsta skipti í svona hjóla- ferð,“ segir Bragi Björnsson, leið- angursstjóri í Bjarnabruninu svo- nefnda. Í því hefur hópur úr skátafélaginu Ægisbúum hjólað yf- ir Sprengisand í minningu félaga síns, Bjarna Páls Kristinssonar, sem lést fyrir ári úr krabbameini, þá tvítugur að aldri. Í gær hjólaði hópurinn í Mývatns- sveit úr Kiðagili. „Þegar við vökn- uðum á sunnudag í Nýjadal voru 10-12 metrar á sekúndu og mót- vindur svo við ákváðum að aka yfir í Kiðagil.“ Í staðinn stendur til að hjóla hringinn í kring um Mývatn í dag en á morgun, þegar ár er liðið frá andláti Bjarna, sækir hópurinn minningarathöfn um hann í kirkj- unni í Dimmuborgum. Vegurinn yfir Sprengisand er ekki sá sléttasti að hjóla eftir. „Fólk finnur aðeins fyrir eymslum en þó gengur enginn hjólbeinóttur eftir ferðina.“ ben@mbl.is Enginn gengur hjól- beinóttur eftir ferðina Í minningu Bjarna Hjólagarparnir fundu bæði fyrir rykinu og holunum á veginum en létu þó ekki deigan síga. JAFNVEL þótt bæði norsk og bresk stjórnvöld hyggist bólusetja alla íbúa beggja landa við svínaflensu, munu þau þurfa að for- gangsraða bólu- efninu með sama hætti og íslensk stjórnvöld. Þetta segir Haraldur Briem sóttvarna- læknir og bendir á að bóluefnið muni berast þjóð- unum í smáum skömmtun frá hausti og fram að áramótum. „Á þeim tímapunkti höfum við hins veg- ar möguleika á að kaupa meira bólu- efni ef aðstæður gefa tilefni til,“ segir Haraldur. Að hans sögn felst gríð- arlegur kostnaður í því að kaupa bóluefni fyrir alla þjóðina sem verði svo hugsanlega aldrei þörf fyrir. „Menn verða því að stefna þessu inn í einhvern skynsemisfarveg. Við metum stöðuna sem svo að þegar bóluefnið loks verður tilbúið með haustinu, muni útbreiðsla svínaflens- unnar hafa verið með þeim hætti að stór hópur landsmanna verði þegar búinn að fá veikina,“ segir Haraldur og bætir við: „Ég tel að við séum nokkuð vel varin með því að bólu- setja helming þjóðarinnar og um- fram allt þá sem eru í áhættuhópi, s.s. fólk með undirliggjandi sjúk- dóma á borð við hjarta- og lungna- sjúkdóma.“ Inflúensulyf fyrir 40% þjóðar Haraldur minnir á að í landinu séu inflúensulyf fyrir tæplega 40% lands- manna, en lyfin eru notuð til að lækna þá sem sýkst hafa af veirunni. „Reynslan sýnir að árlega sýkjast um 10% landsmanna í hverjum inflú- ensufaraldri, en í heimsfaraldri ger- um við ráð fyrir að 50% landsmanna sýkist,“ segir Haraldur, en tekur fram að enn sé þó of snemmt að spá fyrir um hvernig svínaflensan muni hegða sér. Spurður hvernig for- gangsraðað verði, þ.e. hverjum bólu- efnið muni standa til boða hérlendis, segist Haraldur búast við því að sótt- varnastofnun ESB komi með ákveðnar ráðleggingar. Segir hann erfitt að meta þetta fyrirfram og bregðast þurfi við þegar ljóst verði hvaða hópar verði fyrir mestu sjúk- dómsbyrðinni. Aðspurður segir Haraldur meiri- hluta þeirra sem nú þegar hafa smit- ast af svínaflensunni vera ungt fólk. Tekur hann fram að það þurfi ekki endilega að þýða að ungt fólk sé við- kvæmara fyrir veirunni, eins og gilti um spænsku veikina á sínum tíma, heldur geti þetta einfaldlega endur- speglað þá staðreynd að ungt fólk er frekar á ferð og flugi um heiminn. Vangaveltur hafa verið uppi um það hvort stór hópur fólks sextíu ára og eldri sé með gamalt mótefni við flensunni og því betur varið, en Har- aldur segir allt of snemmt að segja til um það. silja@mbl.is Erum nokk- uð vel varin Haraldur Briem Aðrir þurfa líka að forgangsraða við bólusetningu Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 Patti Húsgögn Landsins mesta úrval af sófasettum íslen sk fr amle iðsla M-87 DL-634 3+1+1 Aspen-lux Man 8356 Leðursett 3+1+1 NICE man-8183 3+1+1 50%afsláttur Öll sófaborð íslen sk fr amle iðsla Roma Tungusófar Sófasett Stakir sófar Hornsófar íslen sk fr amle iðsla íslen sk fr amle iðsla íslen sk fr amle iðsla íslen sk fr amle iðsla með seldum settum BonnAspen sws 8922 tilboð gildir aðeins til 17. júli 99.900 kr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.