Morgunblaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 32
HARRY Potter og blendingsprinsinn tekur upp þráðinn þar sem hinn illi Voldemort er kominn úr felum og framfylgja dráparar skipunum hans um illvirki jafnt í muggaheimi og í heimi garldra- manna. Á sama tíma vinna Dumbeldore og Harry að því að varpa ljósi á fortíð hins illa galdramanns með hjálp Horatios Slughorn, fyrrverandi yfir- manns Slytherin-heimavistarinnar. Áhorfendur fá einnig að fylgjast með Draco Malfoy sem reynir af öllum mætti að framfylgja dulinni skipun Volde- morts innan veggja Hogwarts. Sjötta myndin um Harry Potter og félaga hans í Hogwarts er þó fyndnari og rómantískari en fyrri myndirnar. Aðal- persónurnar eru nú unglingar með öllum þeim hormónasveiflum og skondnu aðstæðum sem þeim aldri geta fylgt. Fyndið og skemmtilegt Aðspurð segir Emma Watson (Hermione Gran- ger) að það hafi verið mjög spennandi að koma aft- ur til starfa við Harry Potter, sérstaklega þar sem Blendingsprinsinn sé meira í ætt við rómantískar gamanmyndir en fyrri myndirnar. „Áherslan er alla vega meiri á léttu hliðina. Þar sem myndirnar geta stundum verið ansi dimmar og þungar þá skemmtum við okkur vel við að gera þessa mynd eins fyndna og skemmtilega og við gátum“. Leikstjórinn David Yates stýrir hér sinni ann- arri Harry Potter-mynd, en hann stýrði einnig þeirri fimmtu um Harry Potter og Fönixregluna. Hann lýsir Blendingsprinsinum sem mjög mik- ilvægri mynd í heildarsögunni, í henni komi fram lykilatriði í baráttunni milli góðs og ills. Það sé einnig áhugavert að þegar hér er komið sögu eru aðalpersónurnar að þroskast úr börnum í fullorðna einstaklinga og samband Harrys við Dumbeldore þróast að sambandi tveggja jafningja en ekki kennara og nemanda. Jim Broadbent gengur til liðs við leikarahópinn sem Horatio Slughorn, fyrrverandi prófessor við Hogwarts sem er að mati Dumbeldores lykillinn að gátunni um fortíð Toms Riddle. Dumbeldore og Harry fá Slughorn til að snúa aftur til Hogwarts með það að markmiði að ná upplýsingum frá hon- um sem þeir telja að geti skýrt hvernig Tom Riddle tókst að verða að hinum volduga Voldemort. Jim segir að það hafi í raun komið skemmtilega á óvart hversu auðvelt og ljúft það hafi verið að ganga til liðs við hópinn. „Það var yndisleg og einstök upp- lifun að ganga til liðs við Potter-heiminn sem hefur verið í gangi þetta lengi. Það er einnig einstaklega skemmtilegt að vinna við stórmynd sem er vitað að muni slá í gegn“. Unglingsárin Ungu leikararnir sammælast um að það hafi ver- ið mjög gaman að fá að leika hormónafulla ung- linga. Þau séu öll um það bil einu til tveimur árum Hormónabomba í Hogwarts Sjötta kvikmyndin um Harry Potter verður frumsýnd hér á landi á morgun. Sesselía Mar- grét Árnadóttir sótti blaða- mannafund í London þar sem leikstjóri og aðalleikarar mynd- arinnar sátu fyrir svörum. Töfrandi Harry og Hermione í nýju myndinni. Reuters Aðalleikararnir Rupert Grint, Emma Watson og Daniel Radcliffe koma til heimsfrumsýningar á Harry Potter and the Half Blood Prince á Leicester Square í Lundúnum hinn 7. júlí síðastliðinn. eldri en persónurnar í myndunum og hafi því getað nýtt sér eigin reynslu af unglingsárunum. Jessie (Lavender Brown) segir að myndin nái mjög vel hvernig unglingum líður. „Þegar ég var á þessum aldri var ég rosalega spennt fyrir strákum, ég varð alveg ótrúlega ástfangin og gat svo orðið rosalega niðurdregin þegar sú ást var ekki endurgoldin. Mín persóna, Lavender, er í raun bara venjulegur unglingur með stórt hjarta sem er alveg heltekin af Ron“. Rupert Grint (Ron Weasley) og Jessie eru þó sammála um að það hafi verið svolítið vandræða- legt að leika í kossaatriðum, sérstaklega þar sem þau hafi verið að hittast í annað sinn þegar taka átti upp kossaatriði í herbergi fullu af fólki. Aðspurð segjast þau ekki halda að kossaflensið komi til með að valda óánægju hjá yngri aðdáend- um Harrys Potter. Daniel Radcliffe (Harry Potter) ráðleggur þeim sem eru viðkvæmir fyrir kossum að loka einfaldlega augunum og opna þau svo aftur þegar kossinum er lokið. Tom Felton (Draco Malfoy) og Daniel eru annars sammála um að það sé kannski verið að gera of mikið úr meintu kossa- flensi, það sé í rauninni bara einn og einn koss í myndinni. „Það er ekki eins og það sé hálftími af kossum, þegar litið er á heildina þá er þetta frekar milt. Ef þú hugsar um venjulega unglingaskóla þá er þetta líka ansi milt miðað við það sem gengur og gerist.“ Líf eftir Harry Potter? Aðspurð um framtíðaráform sín svara Rupert, Emma og Daniel því til að þau langi til þess að halda áfram í leiklistinni. Emma tekur fram að bæði Rupert og Daniel hafi leikið í öðrum bíó- myndum og leikritum fyrir utan Harry Potter. Þeir séu því nú þegar að skapa sér nafn utan þeirra mynda. Hennar leið til að aftengjast Hermione sé í rauninni í gegnum tískuheiminn og módelstörf. „Ég hef verið svo upptekin við námið mitt að ég hef í rauninni ekki haft tíma til að vinna við aðrar myndir, það getur líka verið mjög erfitt að fá um- boðsstofur til þess að líta þig öðrum augum en sem Harry Potter-persónuna þína.“ Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum er Emma á leið í háskóla í Bandaríkjunum í haust og segist hún hlakka til að fá að vera venjulegur unglingur um tíma. „Ég hef alltaf haft mjög gaman af því að læra, ég vil helst aldrei hætta því, það var draumur minn að mennta mig áður en ég byrjaði að leika og ég sé enga ástæðu til þess að láta frægðina koma í veg fyrir að sá draumur rætist.“ Henni er þó mikið í mun að leiðrétta það sem hefur heyrst í fjöl- miðlum að hún sé hætt að leika, „hingað til hefur mér tekist að sameina leikstörfin og námið og það ætti ekki að breytast í framtíðinni“. sesseliamargret@gmail.com Ungu leikararnir eru allir sammála um að það verði mjög sorglegt að kveðja Harry Potter eftir 10 ára vinnu við myndirnar, en tökum á áttundu og síð- ustu kvikmyndinni á að ljúka á næsta ári. Tilfinn- ingarnar verði þó líklega blendnar þar sem enda- lokum Harry Potter- myndanna fylgi ákveðið frelsi. Þau komi til með að geta tekið að sér önnur verkefni og þurfi ekki lengur að svara tilboðum á þá leið að þau verði því miður upptekin næstu fjögur árin. Tom Felton svarar því til að hann komi alla vega ekki til með að sakna aflitaða hárs- ins. „Ég veit það hljómar ótrúlega en þetta er ekki raunverulegi háraliturinn minn, það verð- ur gaman að geta tekið að sér verkefni án ljósa kollsins,“ segir hann. Munu sakna Potters Tom Felton MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009 HLJÓMSVEITIN Best fyrir á að baki tæplega 15 ár, þó starfsemin hafi verið slitrótt gegnum tíðina, að því er segir í bæklingnum sem fylgir plötu þeirri sem hér er tekin til kostanna. Þar kemur einnig fram að sveitin hafi þegar gefið út eina breiðskífu, árið 2003, og er henni hér fylgt eftir sex árum síðar. Þar sem undirrit- aður hefur ekki heyrt frumburðinn eru engin tök á að segja til um fram- eða afturför milli platna eða gegnum framangreind starfsár, en hitt blasir við að hér er fátt á boðstólum sem líklegt er til auka á hróður sveit- arinnar. Platan telur tólf lög og eru laga- smíðarnar jafnan heldur rislágar, textarnir víðast torf og rímið í kveð- skapnum svo ódýrt að á stundum jaðrar það við atómljóð eða hreinan súrrealisma. Má vera að það sé með vilja gert, en vafinn þar á er bandinu ekki í hag. Einu gildir hvort sungið er um ástina, dauðann, raunir að- fluttra Íslendinga eða aðrar óræðari hliðar tilverunnar. Tónlist Best fyrir er mestanpart rokkskotið popp með rafgítar í aðal- hlutverki og það er helst í hljóðfæra- leiknum sem sveitin kemst þol- anlega frá sínu, svo því sé haldið til haga. Stundum fara lögin langt með að komast í heilan hring í þá átt að öðl- ast óvart skoplega hlið. Lögin „Að- eins“, „Sjái ég von“, „Draumakon- an“ og „Rauðar varir“ eru af þessum meiði. Hvað getur maður sagt við eftirfarandi erindi úr síðastnefnda laginu: „Um dali reika einn og særð- ur./ Dimma dali með brostið hjarta./ Ör í hjarta, engin leið að ná úr./ Blóð mitt frýs vegna þinna kossa.“ Það var og. Besta lag plötunnar nefnist „Ég þrái að lifa“ og það syngur Rúnar heitinn Júlíusson af sínum sígilda sjarma. Best fyrir hljómar út af fyrir sig einlæg í sköpun sinni og það er að sönnu virðingarvert. Sveitin er hér með í jafnmikilli einlægni brýnd til að taka sér tak fyrir næstu atrennu, því betur má ef duga skal, hvert sem litið er. Best fyrir – Á augnabliki … lokar þú augunum bnnnn JÓN AGNAR ÓLASON TÓNLIST Best fyrir ... hvern? SACHA BARON COHEN SNÝR AFTUR Í EINHVERRI SNARKLIKKUÐUSTU OG FYNDNUSTU MYND SÍÐARI ÁRA MYND SEM ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF HHHH „BETRI EN BORAT COHEN ER SCHNILLINGUR!“ – T.V. KVIKMYNDIR.IS HHH „..BRÜNO NUMERO UNO ON YOUR FUNNY-TIME LIST.“ – L.C. ROLLING STONES HHH „...ÞAÐ ERU EKKI LEIÐINLEGAR 30 SEKÚNDUR Í ÞESSARI MYND“ – ROGER EBERT HHHH „...CRAZIER AND FUNNIER, THAN BORAT“ - ENTERTAINMENT WEEKLY HHH „...YFIRGENGILEGA DÚLLULEGT VIÐUNDUR“ – S.V. MORGUNBLAÐINU GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI BRUNO kl. 4D - 6D - 8D - 9D -10D - 11D - 12D 14 DIGITAL TRANSFORMERS 2 kl. 6D 10 DIGITAL THE HANGOVER kl. 4 - 6 - 8- 10:20 12 BRUNO kl. 2 - 4 - 6 - 8D - 8:30 - 10:10D - 10:30 14 DIGTAL ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 L BRUNO kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LÚXUS VIP THE HANGOVER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 8:30 - 10:20 - 10:50 12 TRANSFORMERS 2 kl. 2 - 5:30 - 8 - 10:50 10 DIGTAL ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 1:303D - 3:403D - 5:503D L DIGTAL 3D

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.