Morgunblaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 11
Fréttir 11ALÞINGI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009 Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ÖNNUR umræða um þingsályktun- artillögu um aðildarviðræður við Evrópusambandið hófst á Alþingi síðdegis í gær og stóð fram á kvöld. Umræðunum var slitið um hálf- tíuleytið, þegar vel á annan tug þingmanna var enn á mælendaskrá, og verður þeim fram haldið í dag. Snarpar umræður fóru fram og hart sótt að stjórnarflokkunum, einkum af hálfu þingmanna Sjálf- stæðisflokksins. Segja má að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálf- stæðisflokksins, hafi tekið forskot á sæluna er hún lagði fram fyrir- spurn um stjórnarsamstarfið til Jó- hönnu Sigurðardóttur forsætisráð- herra í óundirbúnum fyrirspurna- tíma. Spurði Þorgerður hvort stjórnarsamstarfinu væri ekki sjálf- hætt, ef þingsályktunartillagan næði ekki fram að ganga og vísaði þar til ummæla forystumanna flokkanna, auk ræðu Ásmundar Daða Einarssonar, þingmanns VG, á Alþingi sl. föstudag þess efnis að honum hefði verið hótað stjórnar- slitum vegna andstöðu sinnar við málið. Ný staða verður metin Jóhanna svaraði því til að enginn ætti að efast um að aðildarumsókn að ESB væri mikilvægur þáttur í stjórnarsáttmálanum og allir ættu að vita um skiptar skoðanir á milli flokkanna. Sagði Jóhanna að ef ekki lægi fyrir samþykkt um að fara í viðræður, þá myndu stjórnarflokk- arnir setjast yfir þá nýju stöðu. Þorgerður Katrín sagðist túlka svör Jóhönnu þannig að Stein- grímur J. Sigfússon, formaður VG, gæti sagt að þingmenn hans ættu að greiða atkvæði samkvæmt sinni samvisku en þeir ættu engu að síð- ur að fylgja því sem ríkisstjórnin segði. ,,Þetta eru slæm skilaboð, enn og aftur er Samfylkingin að kúga vinstri græna, þingmenn mega ekki kjósa samkvæmt sinni sannfæringu,“ sagði Þorgerður. Jó- hanna sagði engar hótanir vera uppi í garð samstarfsflokksins en síðan sagði hún í lok síðara and- svars síns: ,,Við skulum vona að at- kvæðagreiðslan verði með þeim hætti að þessi ríkisstjórn starfi áfram.“ Fór kliður um salinn og þing- menn vildu margir meina að for- sætisráðherra hefði þarna komið með skýr skilaboð til samstarfs- flokksins í ríkisstjórn. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og formaður utanríkismála- nefndar, hóf aðra umræðu og fékk að því loknu andsvör frá fjórum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Meðal þeirra var Birgir Ármanns- son, sem innti Árna eftir viðbrögð- um við ummælum Jóhönnu á þingi fyrr um daginn. Sagðist Árni Þór ekki leggja neinn sérstakan skiln- ing í ummæli Jóhönnu, taldi að hún hefði sagt þau að óathuguðu máli. Áfram deilt um ESB  Snarpar umræður um aðildarviðræður við Evrópusambandið stóðu yfir á Al- þingi fram á kvöld  Samfylkingin sögð kúga vinstri græna til fylgis við málið Morgunblaðið/Ómar Alþingi Ráðherrar Samfylkingarinnar, Össur Skarphéðinsson, Árni Páll Árnason og Jóhanna Sigurðardóttir, stinga saman nefjum í þingsölum. JÓHANNA Sig- urðardóttir for- sætisráðherra tók undir með Sigurði Inga Jó- hannssyni, þing- manni Fram- sóknarflokksins, á Alþingi í gær um að skoða ætti uppbyggingu á Þingvöllum eftir hótelbrunann í góðu samráði við heimamenn og fleiri aðila. Þjóðin öll ætti ef til vill að fá að segja álit sitt á málinu. Jóhanna, sem skoðaði brunarústirnar um helgina, sagði brunann mikið áfall fyrir þjóðina. Verði gert í góðu samráði Jóhanna skoðar brunarústirnar. JÓHANNA Sigurðardóttir forsætis- ráðherra sagði að fulltrúar Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins, AGS, hefðu ekki verið með neinar hótanir í garð Ís- lendinga um að þeir yrðu að ganga frá samningum um Icesave- reikningana ef samstarfið við sjóð- inn ætti að halda áfram snurðulaust. Svaraði hún fyrirspurn Illuga Gunn- arssonar, þingmanns Sjálfstæð- isflokksins, á Alþingi í gær, sem vildi vita hvort AGS hefði lagt málið fram með þessum hætti. Vitnaði Jóhanna til orða fulltrúa AGS um að lausn á Icesave myndi greiða fyrir málum, en í þeim ummælum fælust engar hótanir. AGS ekki verið með neinar hótanir GYLFI Magn- ússon viðskipta- ráðherra sagðist í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær ekki vita til þess að stjórnvöld hefðu sett stjórn- um nýju bank- anna reglur um kennitöluflakk fyrirtækja. Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Sam- fylkingarinnar, spurði ráðherra um kennitöluflakk sem viðgengist með vitund og vilja nýju bankanna. Sagði hún dæmi um að stórskuldug sjáv- arútvegsfyrirtæki hefðu flutt eignir, þ.m.t. kvóta, yfir í nýtt félag en skil- ið skuldirnar eftir í því gamla. Engar reglur um kennitöluflakk Gylfi Magnússon FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is SEÐLABANKASTJÓRI, Svein Harald Øyg- ard, kom ásamt sérfræðingum bankans fyrir sameiginlegan fund fjárlaganefndar og efna- hags- og skattanefndar Alþingis í gær. Rætt var um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna og m.a. lögð fram umsögn Seðlabankans um samn- ingana og áhrif þeirra á skuldastöðu ríkisins og þjóðarbúsins í heild. Viðhalda á trúnaði á ákveðnum tölum bankans þar til fram yfir næstu fundi nefndanna, sem fram eiga að fara í dag eða á morgun, en í áliti lögfræðinga bankans eru Icesave-samningarnir gagnrýndir harðlega sem og málsmeðferðin. Telja lögfræðingar bankans að öll erlend lán tengd samningunum muni gjaldfalla ef fyrirtæki á borð við Lands- virkjun og Byggðastofnun greiði ekki lán, sem eru hærri en 10 milljón pund, á gjalddaga. Þingmenn óskuðu í gær eftir frekari gögnum og útreikningum, samkvæmt upplýsingum blaðsins, m.a. um skuldastöðu ríkisins og sveit- arfélaganna í tengslum við Icesave-skuldbind- ingarnar. Leynisamningur óbirtur? Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru ósáttir við upplýsingagjöf um Icesave-samningana og er því haldið fram að eftir sé að birta ýmis skrif- leg gögn, m.a. leynisamning við Breta um upp- gjör á skuldbindingum vegna Icesave. Ekki náð- ist í Guðbjart Hannesson, formann fjárlaga- nefndar, en Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar, segist ekki kannast við neinn leynisamning. Varðandi upplýsingar og álit Seðlabankans segir Helgi það góðan grunn fyrir málefnalega umræðu. Ljóst sé að skuldastaða þjóðarbúsins sé mjög erfið og fá þurfi fram tölur um mögulegar útflutningstekjur til að standa undir skuldbindingunum. Því sé mikilvægara en oft áður að koma hjólum atvinnulífsins í gang á nýjan leik. Kallað eftir frekari gögnum  Lögfræðingar Seðlabanka Íslands gagnrýna Icesave-samningana harðlega í áliti til þingnefnda  Áfram ríkir trúnaður á tölum frá bankanum um áhrif samninganna á skuldastöðu þjóðarbúsins Morgunblaðið/Ómar Fundir Þingnefndir funduðu stíft í gær um Icesave-málið og áhrif þess, m.a. fjárlaganefnd. Í HNOTSKURN »Búist er við að þingnefndir komisaman til fundar í dag eða á morgun til að fjalla um Icesave-frumvarpið. »Þingmenn stjórnarandstöðunnargagnrýna harðlega að enn hafi ekki öll gögn verið birt um Icesave-málið. »Meðal þeirra er Birgir Ármannssonsem ítrekað hefur ósk sína um að viðkomandi þingnefndir fái heildarlista um öll gögn og skjöl sem til eru hjá stjórnvöldum um málið. Óvissa er um hvenær tekst að afgreiða á Alþingi frumvarp fjármálaráðherra um rík- isábyrgð vegna Icesave-reikninga Lands- bankans. Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja mörg gögn ekki enn hafa verið birt og kalla eftir frekari upplýsingum. Árni Johnsen, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, brá fyrir sig sjó- mannamáli í umræðum um ESB- umsóknina á Alþingi í gærkvöldi. Sagði hann Samfylkinguna vera með vinstri græna „í skreiðar- pressu“ og allt væri gert til að knýja málið í gegn. Sagði hann að ESB myndi kokgleypa Ísland ef það færi þar inn. „Við Íslendingar erum ekki fæddir til þess að gefast upp. Þess vegna eigum við ekkert erindi inn í nýja Sovét. Og þetta nýja Sovét er miklu hættulegra en hið gamla. Það ætlar sér að kokgleypa Ísland. Og ef hið nýja Sovét kokgleypir Ís- land, þá munu menn ekki hafa fyrir því að hrækja beininu,“ sagði Árni og var heitt í hamsi. Samfylkingin með VG í skreiðarpressu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.