Morgunblaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009 ÞAÐ kemur eflaust fáum á óvart að nýjasta afurð breska gamanleik- arans Sacha Baron Cohen, Brüno, skuli vera langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um þessar mundir. Tæplega 7.000 manns sáu myndina um nýliðna helgi og voru tekjurnar af henni því rúmar sex milljónir króna, sem verð- ur að teljast afar góður árangur. Brüno hefur ekki aðeins heillað bíó- gesti upp úr skónum, heldur keppast gagnrýnendur við að hlaða myndina lofi. Þannig gaf Sæbjörn Valdimars- son, kvikmyndagagnrýnandi Morg- unblaðsins, myndinni þrjár og hálfa stjörnu og sagði meðal annars að hún sé undursamlega smekklaus og óforskömmuð. Á ég að gæta systur minnar? Myndin sem stekkur beint í fjórða sætið er af allt öðrum toga en mynd- in um samkynhneigða Austurríkis- manninn. Þar er nefnilega á ferðinni myndin My Sister’s Keeper sem segir sögu ungrar stúlku sem ákveður að gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að bjarga syst- ur sinni sem þjáist af hvítblæði. „My Sister’s Keeper fæst við ein- staklega erfitt umfjöllunarefni sem hefur snert okkur flest meira og minna persónulega. Er hún ein- hverjum sáluhjálp frekar en meló- dramatískt ferðalag um stöðvar taugakerfisins? Svari nú hver fyrir sig,“ sagði Sæbjörn Valdimarsson í dómi sínum um myndina og gaf henni tvær og hálfa stjörnu. Rétt yf- ir þúsund manns sáu myndina, sem skilaði rúmri milljón í kassann. Loks stekkur spennumyndin The Hurt Locker beint í sjötta sætið, en sú mynd hefur hlotið mikið lof gagn- rýnenda. Tekjuhæstu myndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum Undursamlega smekklaus mynd fer beint á toppinn                                  !" #$ % & ' (  )   * "    +,,   !  - . /  0 1  1 ,  2 3  , 4  ) 5 ,             Ekkert heilagt Sacha Baron Cohen í hlutverki Austurríkismannsins Brüno sem stuðar marga en skemmtir þó flestum, m.a. tæplega 7.000 Íslendingum. BRAD Pitt og Angelina Jolie ætla að flytja til New York áður en langt um líður. Ástæðan er sú að vinna þeirra fer í auknum mæli fram í borginni, og munu þau vera orðin leið á því að þurfa stöðugt að leigja húsnæði. Þau hafa skoð- að aðstæður í Apthorp, 100 ára gamalli byggingu á Manhattan sem verið er að taka í gegn og breyta í lúxusíbúðir. „Það verður allt vaktað þarna, og þau munu meðal annars sleppa við paparazzi ljósmyndara þegar þau fara inn og út úr bygging- unni,“ segir heimildarmaður með- al annars um málið. Dýrustu íbúðirnar í byggingunni munu kosta 15,5 milljónir dala, eða um tvo milljarða króna. Í þeim íbúðum verða 13 herbergi. Fregn- ir herma hins vegar að Brad og Angelina stefni að því að kaupa tvær eða þrjá íbúðir og sameina þær til þess að hafa nóg pláss fyr- ir börnin sín sex. „Mér skilst að þau séu tilbúin til að eyða allt að 25 milljónum doll- ara,“ sagði heimildarmaður í sam- tali við dagblaðið Daily News. Fyrir eiga Brad og Angelina heimili í Los Angeles og New Or- leans. Reuters Hjúin Þau Brad og Angelina hyggjast fjárfesta í nokkrum íbúðum í New York til að hýsa sig og börnin sín sex. Ætla að flytja til New York Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM 500kr. allar myn dir allar s ýning ar alla þ riðjud aga „Á ÉG AÐ GÆTA SYSTUR MINNAR“ FRÁ LEIKSTJÓRA „THE NOTEBOOK“ Byggð á metsölubók Jodi Picault sem farið hefur sigurför um heiminn Áhrifarík og átakanleg mynd sem skilur engan eftir ósnortinn abigai l bresl in cameron diaz Í HVERT SINN SEM HANN FER Í VINNUNA ER ÞAÐ UPP Á LÍF OG DAUÐA ÓTRÚLEG MYND SEM BYGGÐ ER Á SÖNNUM HEIMILDUM, UM HÆTTULEGASTA STARF Í HEIMI HHH „þessi fallega og átakanlega kvikmynd hlýjar manni bæði um hjartaræturnar og rífur í þær” - Ó. Þ. I., Kvikmyndir.com SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ OG BORGARBÍÓ 500 kr. 500 kr. MISSIÐ EKKI AF STÆRSTU OG SKEMMTILEGUSTU TEIKNIMYND ÁRSINS! ÞETTA ERU FORFEÐUR ÞÍNIR Í HVERT SINN SEM HANN FER Í VINNUNA ER ÞAÐ UPP Á LÍF OG DAUÐA. ÓTRÚLEG MYND SEM BYGGÐ ER Á SÖNNUM HEIMILDUM, UM HÆTTULEGASTA STARF Í HEIMI 500 kr. 500 kr. 500 kr. 500 kr. 500 kr. HHHH - S.V. MBL HHH - Ó.H.T, Rás 2 HHHH - S.V. MBL HHH - Ó.H.T, Rás 2 Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó SÝND Í SMÁRABÍÓI Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ OG BORGARBÍÓ ÞRIÐJUDAGUR ER TIL 500 KR. Á ALLAR SÝNING The Hurt Locker kl. 5:30 - 8 - 10:35 B.i. 16 ára Ice Age 3 (enskt tal/ísl.texti) kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ Ghosts of girlfriends past kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára Year One kl. 5:45 - 8 B.i. 7 ára Terminator: Salvation kl. 10:15 B.i. 12 ára Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 6 LEYFÐ Ice Age 3 (enskt tal/ísl.texti) kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ My Sister’s Keeper kl. 8 - 10 LEYFÐ My Sister‘s Keeper kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.12 ára Ghosts of girlfriends past kl. 8 - 10:15 B.i. 7 ára Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 5:50 - 8 LEYFÐ Gullbrá og birnirnir 3 kl. 6 LEYFÐ Year One kl. 10:10 B.i. 7 ára Angels and Demons kl. 6 - 9 B.i.14 ára 11.07.2009 6 10 13 18 24 6 3 0 2 7 2 0 5 2 7 26 08.07.2009 11 14 20 28 29 42 821 31

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.