Morgunblaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 17
Í HNOTSKURN »Methúsalem Methúsalemsson (1889-1969) lagði mikla rækt við að halda til haga gömlum munum sem tilheyrt höfðu bænum og Burstafellsættinni. »Árið 1996 var sett upp sýning ásvefnlofti í tilefni þess að 30 ár voru liðin frá búsetulokum í bænum. Svefn- loftið er búið húsgögnum eins og það var 1962. »Burstafellsbærinn er í umsjá Þjóð-minjasafnsins. Eftir Atli Vigfússon Vopnafjörður | Það var engu líkara en menn væru komnir meira en hundrað ár aftur í tímann þegar gestir heimsóttu Minjasafnið á Burstafelli á safnadeginum. Fjöldi gesta sótti safnið heim sem fylgdust áhugasamir með öllu því sem um var að vera. Það voru heimamenn úr héraði sem sáu um að skapa aldrúmsloft liðins tíma. Spenn- andi er fyrir safngesti að sjá gamlar vinnu- aðferðir glæddar nýju lífi. Það eru ekki allir sem vita hvernig á að strokka smjör, vinna með hrosshár, prjóna á prjónavél, slá með orfi og ljá, smíða skeifur, vinna að ull- arlitun, leika sér í hornabúi, heyja, raka í garða, bjóða í nefið eða annað sem tengist búskap frá gömlu árunum. Gamall bær Burstafellsbærinn geymir sögu búskapar og breyttra lífshátta frá aldamótunum 1800 fram á miðja 20. öld. Hann er að stofni til mjög gamall, jafnvel að hluta til frá því hann var endurbyggður eftir bæjarbruna 1770. Um aldur einstakra bæjarhúsa er vit- að að fremri stofa var byggð 1851 og mið- baðstofa 1877. Ytri stofa og hlóðaeldhús eru mikið eldri, en ýmsar breytingar voru gerð- ar er tímar liðu og 1942 var sett upp vind- rafstöð og 1943 var vatnsleiðsla lögð í bæ- inn. Búið var í bænum til ársins 1966 og það skemmtilega við daginn var að Elín Methú- salemsdóttir sem var síðasta húsfreyja í bænum var á staðnum og spjallaði við gesti og sagði sögu hússins. Hennar ætt hefur búið á Burstafelli allt frá árinu 1532 en afar sjaldgæft er að sama ættin sitji jörð svo lengi. Gamlir búskaparhættir voru sýndir á Minjasafninu á Burstafelli „Börnin í bænum“ höfðu mörgu að sinna í tilefni dagsins. Hér eru þau með kálf sem var til sýnis. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Búskapur barnanna Broddi Gautason og Laufey Erla Pétursdóttir í hornabúinu. Smíða skeifur og strokka smjör Daglegt líf 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009 Mikið verður um dýrðir í Langanes- byggð um næstu helgi því þá hefst hin árlega hátíð Kátir dagar. Mikil undirbúningsvinna er brátt að baki og fjölbreytt dagskrá er framundan svo allir ættu að finna eitthvað við hæfi. Dæmi um viðburði eru listsýn- ingar, lasertag, gönguferðir, dorg- veiðikeppni, knattspyrnumót og kassabílarall. Einnig eru dansleikir og trúbadorar og hinir stór- skemmtilegu Ljótu hálfvitar verða með tónleika í Þórsveri. Í Sauðanes- húsi á Langanesi opnar dr. Björg Bjarnadóttir áhugaverða sýningu sem tileinkuð er lífi Drauma-Jóa á Langanesi og merkri draumgáfu hans en hér um slóðir eru til margar sagnir um óvenjulega hæfileika hans og berdreymi. Hagyrðingakvöld verður í Þórsveri þar sem fjórir landsþekktir hagyrðingar láta til sín taka og má þar búast við fjölmenni og síðan er hægt að fara beint á dansleik á Eyrinni. Stórdansleikur helgarinnar verður í Þórsveri þar sem Ingó og veðurguðirnir sjá um fjörið og þess er vænst að þeir síð- arnefndu komi með góða veðrið í far- teskinu. Útimarkaðssvæðið vinsæla verður á sínum stað við íþrótta- miðstöðina og þar mun kenna margra grasa en sjón er sögu ríkari. Brottfluttir Þórshafnarbúar hafa fjölmennt á Káta daga undanfarin ár og er tækifærið oft notað til að halda fermingar- og árgangamót.    Á hafnarsvæðinu eru stöðugar end- urbætur og verið er að setja upp nýjan löndunarkrana sem leysir af hólmi þann gamla, sem kominn var til ára sinna. Hafnarframkvæmdir hafa staðið yfir í sumar en verið er að lengja hafskipabryggjuna. Timb- urhluti bryggjunnar var rifinn og búið er að reka niður 100 metra stál- þil en síðan er komið að malarfyll- ingu á svæðinu og kantur síðan steyptur. Heildarlengd hafskipa- bryggju verður þá um 180 metrar en athafnasvæði og rými verður mjög gott í höfninni eftir þessar breyt- ingar. Aðalkantur bryggjunnar er nú í jaðri innsiglingarrennu og sam- síða henni, svo jafnvel mjög stór skip geta auðveldlega lagst þar að. Áætl- uð verklok eru eftir tæpa tvo mánuði en Íslenska gámafélagið sinnir verk- inu. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Vinnuglaðar stúlkur María Valgerður og Karítas taka þátt í fegrun um- hverfisins á Þórshöfn en um næstu helgi verður hátíðin Kátir dagar. ÞÓRSHÖFN Líney Sigurðardóttr fréttaritari Úr bæjarlífinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.