Ný saga - 01.01.1999, Blaðsíða 46

Ný saga - 01.01.1999, Blaðsíða 46
Sverrir Jakobsson Ari varð einnig fyrstur manna til að tímasetja Harald hárfagra. Hann var 16 ára þegar Ingólfur fór fyrst til íslands, fáum árum áður en land byggðist frá 10. öld tengja meinta afkomendur Haralds við þessa ætt Ynglinga. Egill Skallagrímsson kallar Eirík blóðöx „burr ynglings“ og Ey- vindr Finnsson telur bæði Hákon Aðalsteins- fóstra og Eiríkssyni tilheyra „Yngva ætt“. Claus Krag (f. 1943) bendir þó á að orðið „ynglingr“ komi víða fyrir í dróttkvæðum án þess að verið sé að vísa til Ynglingaættar í Vestfold. Hann aðhyllist sömu skoðun og Gustav Neckel (1878-1940) í upphafi aldar- innar, að Ynglingatal hafi verið ort á 12. öld.30 Kvæðið Oddmjór, sem líka á að vera um Harald, kallar hann „skjpldung" og í Noregs- konungatali eru afkomendur hans kallaðir „Skjpldungs kyn“. Er Haraldur þá af hinni dönsku Skjöldungaætt?31 Bæði geta orðin „ynglingur“ og „skjöldungur" merkt konung- ur og er þá komin allmerk niðurstaða: Kvæð- in fjalla öll um konunga og konungssyni! Margt má lesa úr dróttkvæðum. Sennilega eru dróttkvæðin sem vitnað er til í sögunum eldri en þær. Ekki er samt hægt að fullyrða hvenær þau eru rituð út frá kvæðun- um sjálfum. Ef heiðnar kenningar eru í þeim er líklegt að þau séu samin fyrir 1000, en nán- ar er ekki hægt að tímasetja þau. Þess utan eru upplýsingar þeirra af skornum skammti. Þau er ekki hægt að túlka án sagnanna sem þau eru í.32 Þar með eru dróttkvæðin ekki lengur samtímaheimildir og þau voru það raunar aldrei. Þau voru leið sagnfræðinga til að trúa áfram þeim heimildum sem síst skyldi, konungasögum 13. aldar, þegar þeim var nær að efast. Haraldur hárfagri kemur til sögunnar Enda þótt finna megi margt í dróttkvæðum finnst þar enginn Haraldur hárfagri. Sá mað- ur birtist fyrst í enskum heimildum á 11. öld. Fyrsta heimildin sem nefnir „Harald harfa- gera“ eða „harvagra“ er D-gerð Engilsaxa- annáls. Sami maður birtist í Chronicon ex chronicis eftir John af Worcester og kirkju- sögu eftir Ordericus Vitalis (1075-1142). Hann reyndi að leggja England undir sig árið 1066, en féll þá við Stamford Bridge. Harald- ur hárfagri Englendinga reynist vera sami maður og Haraldur harðráði norrænna kon- ungasagna.33 Um hann er enginn skortur á heimildum og virðast Englendingar hafa rugl- að saman konungum sem voru nafnar. Eða hvað? Þeir urðu raunar fyrstir til þess að færa þetta viðurnefni í letur. Það var ekki fyrr en síðar að Ari heimfærði það upp á konung frá 9. öld. Englendingarnir voru hins vegar að lýsa konungi frá sínum samlíma, konungi með ljósa lokka sem vöktu hrifningu drottn- inga, að því er norrænar konungasögur segja.34 Fleiri norrænar þjóðir geta gert tilkall til Haralds hárfagra en Danir. Uppruni hans er einnig íslenskur. Haraldur hárfagri síðari tíma birtist fyrst í íslendingabók, um leið og saga Islands var upphaflega færð í letur. Fyrsti íslenski sagnaritarinn, Ari fróði Þorgilsson (um 1068-1148), greinir frá því að „ísland byggðisk fyrst ýr Norvegi á dggum Haralds ens hárfagra, Halfdanarsonar ens svarta, í þann tíð ... es ívarr Ragnarssonr loðbrókar lét drepa Eadmund enn helga Englakonung; en þat vas sjau tegum <vetra> ens níunda hundraðs eptir burð Krists, at því es ritit es í spgu hans.“35 Gera má ráð fyrir að Ari hafi þekkt til enskra heimilda, fyrst hann miðar tímatal sitt við Eadmund helga.36 Ari nefnir föður Haralds, Hálfdan svarta, en rekur þar að auki sína eigin ætt til Yng- linga gegnum Hálfdan hvítbein Upplendinga- konung, án þess að fullyrða að Haraldur sé af þeirri ætt. Skrifari hefur hins vegar skotið inn ættrakningu Haralds frá Hálfdani hvítbeini. Sagnaritarar síðari tíma voru sannfærðir um að Haraldur væri kominn af Ynglingum en þær upplýsingar hafa þeir ekki frá Ara fróða. Hins vegar er Ari elsta heimildin um að kon- ungarnir Ólafur Tryggvason, Ólafur digri og Haraldur Sigurðarson hafi allir verið komnir af sonum Haralds hárfagra, þeim Ólafi, Birni og Sigurði hrísa. Ari varð einnig fyrstur manna til að tíma- setja Harald. Hann var 16 ára þegar Ingólfur fór fyrst til íslands, fáum árum áður en land byggðist. Hann ríkti í 70 ár og varð áttræður en lést vetri eða tveimur eftir 930. Samkvæmt því ætti hann að hafa verið fæddur 851 eða 852. Telja flestir íslenskir annálar hann fædd- an 852 og er talið að tímatal þeirra byggi á útreikningum Ara. í yngri samsteypuritum 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.