Morgunblaðið - 11.07.2011, Blaðsíða 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2011
Sudoku
Frumstig
7 6 9 5
6 4 5
1 4 8 6
5 9 3 1
1
7 8
6 3
7
8 3 1 5 6
4 9 3 5 6
2
7 5 2 4
6 8
2 6 3 5
9
6 2
9
5 7 3 6 9
1 6 5
5 3 4 1 9
4 9
7 5
6 3
1 3 6 7
2 9 3
4 8 2 7
4 7 8 9 1 6 2 3 5
6 3 5 2 8 7 4 1 9
1 9 2 3 5 4 6 7 8
5 8 6 4 2 3 7 9 1
7 1 9 5 6 8 3 4 2
2 4 3 1 7 9 8 5 6
3 5 1 6 4 2 9 8 7
9 2 7 8 3 1 5 6 4
8 6 4 7 9 5 1 2 3
8 3 5 7 1 9 2 4 6
1 7 9 6 4 2 5 8 3
6 2 4 3 8 5 9 1 7
4 6 2 1 9 7 8 3 5
5 9 8 4 3 6 7 2 1
7 1 3 5 2 8 4 6 9
9 4 6 2 7 1 3 5 8
2 5 7 8 6 3 1 9 4
3 8 1 9 5 4 6 7 2
9 4 7 1 3 6 2 8 5
5 6 3 8 2 7 1 9 4
2 1 8 9 4 5 6 7 3
4 2 9 5 1 3 8 6 7
1 8 5 7 6 2 4 3 9
7 3 6 4 9 8 5 2 1
6 9 1 2 7 4 3 5 8
3 5 4 6 8 9 7 1 2
8 7 2 3 5 1 9 4 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 11. júlí, 192. dagur
ársins 2011
Orð dagsins: Því ég segi yður: Héðan
í frá mun ég eigi drekka af ávexti
vínviðarins, fyrr en Guðs ríki kemur.
(Lk. 22, 18.)
Verðum við nú að fara að fá okkurgervihnattadisk til að geta
fylgst með hollenska boltanum? Kol-
beinn Sigþórsson með töluna 9 á bak-
inu hjá Ajax sýnir að allt getur gerst,
líka hjá þjóð sem eiginlega er of fá-
menn til að hægt sé kalla hana smá-
þjóð. Stórkostlegt!
x x x
Víkverji fylgdist eins og fleiri meðdramatíkinni á Evrópumóti fót-
boltaliða 21 árs og yngri í Danmörku,
lokaleikur íslenska liðsins er nokkuð
sem aldrei gleymist. Um tíma voru
sumir, nefnum engin nöfn, farnir að
halda að íslenska liðið hefði bara ver-
ið heppið í aðdragandanum, ætti ekki
neitt erindi í sjálfa keppnina. Auðvit-
að hélt Víkverji sönsum allan tímann,
hann lagðist aldrei í eitthvert svarta-
gallsraus, þannig er hann aldrei. Eða
þannig. Hann vissi að strákarnir
gætu þetta.
x x x
En síðasti til leikurinn bjargaðiöllu og ekki verra að sigra Dani.
Nú vitum við að það verður mjög
spennandi að fylgjast með aðallands-
liðinu næstu árin. Allt getur gerst!
x x x
En svona í lokin smá nöldur: Viðeyer mikil perla í mörgum skiln-
ingi og full ástæða til að vekja athygli
erlendra ferðamanna á henni. Í ann-
ars ágætlega unnum bæklingi er sagt
frá því markverðasta í eynni og á
góðri ensku. En svona bæklinga er
hægt að lesa vandlega yfir, þetta er
ekki dagblað sem unnið er í flýti dag-
inn fyrir prentun. Viðeyjarstofa var
ekki „built in the mid 17th century“
(sem merkir um 1650) heldur um
miðja 18. öld, um 1750.
x x x
Vonandi er um klaufaskap aðræða. Víkverji vill helst ekki
trúa því að sá sem gerði textann viti
ekki að þegar við tölum um fyrri aldir
notum við raðtölur á nákvæmlega
sama hátt og í öðru samhengi, bæði í
ensku og íslensku. Fyrsta öld: 1-100.
Sautjánda öld: Fá 1601-1700.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 traustan, 8 kven-
dýr, 9 bylgjan, 10 giska á, 11
skreppa saman, 13 heyið, 15
vitur, 18 garna, 21 blundur,
22 berja, 23 svardagi, 24
vistir.
Lóðrétt | 2 gróði, 3 keipa, 4
logið, 5 óbeit, 6 sjór, 7 yndi,
12 tangi, 14 sjávardýr, 15
kjöt, 16 deila, 17 ákæra, 18
hrifsaði, 19 málgefin, 20
siga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 eggja, 4 hólks, 7 Njörð, 8 pípur, 9 ali, 11 rita, 13 snúi,
14 furða, 15 púki, 17 glær, 20 eir, 22 álkan, 23 úlfúð, 24 skaði, 25
tórir.
Lóðrétt: 1 efnir, 2 gjögt, 3 auða, 4 hopi, 5 læpan, 6 syrgi, 10
lærði, 12 afi, 13 sag, 15 pláss, 16 kokka, 18 lofar, 19 ræður, 20
enni, 21 rúmt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Blóðbragð. V-AV.
Norður
♠D1072
♥Á10652
♦2
♣643
Vestur Austur
♠ÁK84 ♠5
♥D4 ♥K987
♦K43 ♦D1065
♣KG105 ♣Á982
Suður
♠G963
♥G3
♦ÁG987
♣D7
Suður spilar 4♠ doblaða.
Sögn telst innrömmuð ef hún veitir
þröngar upplýsingar um skiptingu og
styrk. Opnun á grandi er gott dæmi,
ennfremur hækkun á hálit í tvo. Makker
hins innrammaða sér í grófum dráttum
hvað spilið þolir og fær það hlutverk að
leiða sagnir til lykta. Sögn er hins vegar
blæðandi ef upplýsingar um annað
hvort – skiptingu eða styrk – duga ekki
til að veita slíkt húsbóndavald.
Innákomur á grand eru flestar blæð-
andi. Til dæmis sögnin 2♣ í merking-
unni hálitir. Styrkurinn er óráðinn og
því má svarhönd ekki taka einhliða
ákvarðanir. Ísraelinn Lev misskildi
stöðuna illa í úrslitaleiknum í Poznam.
Thomas Bessis vakti á 1G í austur,
Pepsí sagði 2♣ (hálitir), Michel Bessis
2♥ (láglitir) og Lev stökk í 3♠. Thomas
sagði 3G: pass, pass og 4♠ hjá Lev (?!),
dobl og 1100 út.
11. júlí 1911
Konur fengu fullt jafnrétti til
menntunar og embætta á við
karla þegar konungur stað-
festi lög um rétt kvenna til
embættisnáms, námsstyrks og
embætta. Hannes Hafstein
hafði flutt frumvarpið.
11. júlí 1945
Fyrsta áætlunarflugið til út-
landa var farið með Catalina-
flugbát Flugfélags Íslands frá
Skerjafirði til Glasgow í Skot-
landi. Flugmenn voru Jóhann-
es Snorrason og Smári Karls-
son en farþegarnir fjórir.
Ferðin tók sex klukkustundir.
11. júlí 1972
Einvígi aldarinnar hófst í
Reykjavík. Bandaríkjamað-
urinn Robert Fischer og Sov-
étmaðurinn Boris Spassky
kepptu um heimsmeistaratit-
ilinn í skák. Einvíginu lauk 1.
september með sigri Fischers.
11. júlí 1993
Debut, fyrsta plata Bjarkar
Guðmundsdóttur, fór beint í
þriðja sæti á breska breið-
skífulistanum. Björk varð þar
með fyrsti íslenski listamað-
urinn til að koma plötu inn á
topp tíu.
11. júlí 1998
Hvalfjarðargöngin voru opn-
uð fyrir umferð, átta mán-
uðum á undan áætlun. Göngin
eru 5.484 metra löng og liggja
dýpst 165 metra undir sjávar-
máli. Þau stytta hringveginn
um 42 kílómetra.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Samúel Ingvason vélvirki er sextugur í dag. „Mér
líst vel á þetta. Það breytir reyndar ekki miklu
hvort ég er 59 ára eða 60 ára,“ segir Samúel hress
í bragði um afmælið og aldurinn.
Samúel er fæddur og uppalinn í Reykjavík en er
nú búsettur í Kópavogi. Hann er kvæntur Sabínu
Jónsdóttur og sonur þeirra er Hlynur Ingvi Sam-
úelsson. Samúel starfar hjá Framtaki, en þar hef-
ur hann unnið í 16 ár. Jafnframt er hann varafor-
maður í stjórn VM, félagi vélstjóra og
málmtæknimanna, en hann hefur setið í stjórn fé-
lagsins allt frá stofnun þess.
Í tilefni afmælisins var haldin afmælisveisla um helgina þar sem
fjölskyldan fagnaði saman. Afmælisdagurinn verður hins vegar ró-
legri, en Samúel verður að heiman. „Ég er nýkominn frá Flórens,“
segir Samúel aðspurður um sumarfríið í ár. Hann fór til Ítalíu með
fjölskyldu sinni og segir að ferðin hafi að vissu leyti verið farin í til-
efni afmælisins. Ásamt því að fara til Flórens fór fjölskyldan einnig til
borgarinnar Pisa. „Skakki turninn í Pisa er svo sannarlega skakkur,“
segir Samúel um ferðalagið þangað. Framundan er sumarfrí en Sam-
úel hefur ekki tekið ákvörðun um fleiri ferðalög. kristel@mbl.is
Samúel Ingvason er 60 ára í dag
Nýkominn heim frá Flórens
Nýirborgarar
Reykjavík Guðrún
Klara fæddist 9. febr-
úar kl. 21.41. Hún vó
4.240 g og var 54 cm
löng. Foreldrar hennar
eru Sigríður Rún
Steinarsdóttir og Fann-
ar Freyr Helgason.
Flóðogfjara
11. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.27 3,1 8.47 1,0 15.14 3,4 21.38 1,0 3.30 23.38
Ísafjörður 4.25 1,8 10.54 0,7 17.26 2,0 23.51 0,7 2.48 24.30
Siglufjörður 0.33 0,4 7.00 1,1 13.04 0,4 19.28 1,2 2.28 24.15
Djúpivogur 5.31 0,7 12.13 2,0 18.36 0,7 2.49 23.17
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Láttu ekki hugfallast þótt sumar
hugmyndir þínar hljóti ekki strax framgang.
Það er í góðu lagi að setja sig í fyrsta sæti.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þér stendur eilítil ógn af amstri dag-
anna og eins og þú óttist að verða á eftir
með alla hluti. Aðeins með því að kynna þér
allar hliðar getur þú tekið ákvörðun.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þetta er tilvalinn dagur til að ræða
við yfirmenn og þá sem ráða. Jákvætt við-
mót birtist í öllum athöfnum, hvort sem það
er að sinna matargerð eða viðskiptum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Hlustaðu á tillögur yfirmanns um
hvernig þú getur tekið þig á og bætt starfs-
aðferðir þínar. Haltu hlutleysi þínu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Stundum finnst þér eins og verk þín
þjóni öðrum meira en þér. Samræður við vini
eru þér að skapi, enda bæði örvandi og
spennandi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Náin sambönd gegna meira hlutverki
en ella á næstunni og eiga hug þinn allan.
Samstarfsmaður þarf á aðstoð að halda.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ekki gefast upp þótt þér finnist útlitið
svart nú um stundir. Láttu falda fötin þín og
stoppa í götin, hreinsa þau og pressa.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ákveðnar staðreyndir um þig
gætu spurst út í dag og jafnvel leitt til rifr-
ildis fyrir opnum tjöldum. Vertu lipur og ljúf-
ur!
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Hafðu augun opin fyrir þeim
möguleikum sem þér gefast á kynnum við
fólk sem deilir með þér áhugamáli þínu.
Gættu þess að vera ekki stutt/ur í spuna.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú bókstaflega ljómar þessa dag-
ana og vekur eftirtekt hvar sem þú kemur.
Leggðu spilin á borðið og vænstu þess sama
af öðrum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú hefur látið reka á reiðanum
með heilsu þína, en verður nú að taka þau
mál föstum tökum. Ekki láta yfirlæti eða
dramb verða þér að falli.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þótt það sé mikið að gerast í kringum
þig máttu ekki gleyma að gefa þér tíma til að
hvílast. Fjárhagsstaðan batnar með utan-
aðkomandi aðstoð.
Stjörnuspá
1. c4 e6 2. Rc3 Rf6 3. d4 Bb4 4. Dc2 d5 5.
cxd5 exd5 6. Bg5 c5 7. dxc5 h6 8. Bh4 g5
9. Bg3 Re4 10. e3 Da5 11. Rge2 Bf5 12.
Be5 O-O 13. Rd4 He8 14. Bxb8 Rxc3 15.
Rxf5 Re4+ 16. Kd1 Haxb8 17. Rxh6+
Kf8 18. Bd3 Hbc8 19. De2 Hxc5 20. Dh5
Da4+ 21. b3 Dd7 22. Ke2 De6 23. Hac1
Df6 24. Rg4 Db2+ 25. Kf3 He6 26. Hxc5
Staðan kom upp á Sigeman-mótinu
sem í Málmey í Svíþjóð. Sænski stór-
meistarinn Nils Grandelius (2547) hafði
svart gegn kollega sínum frá Filipps-
eyjum Wesley So (2667). 26… Hf6+! 27.
Rxf6 Dxf6+ 28. Kg4 De6+! 29. Kf3
Df5+ 30. Ke2 Dxf2+ 31. Kd1 Dd2 mát.
Lokastaða mótsins varð þessi: 1.-3. An-
ish Giri (2690), Wesly So (2667) og Hans
Tikkanaen (2541) 3 vinninga af 5 mögu-
legum. 4. Alexei Shirov (2701) 2 1/2 v. 5.
Nils Grandelius (2547) 2 v. 6. Jonny
Hector (2588) 1 1/2 v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik