Morgunblaðið - 24.10.2011, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 4. O K T Ó B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 249. tölublað 99. árgangur
AUGLÝSENDUR
SAGÐIR VAN-
META NETIÐ LÍFSGÆÐI Á HVERJU STRÁI
TILFINNINGAR
UNGLINGA ERU SVO
STÓRBROTNAR
MATARGERÐ Í TAKT VIÐ ÁRSTÍÐIRNAR 10 MJÓLKURFERNUSKÁLD 26AUGLÝSINGAMIÐLAR 12
Í MIÐJU MORGUNBLAÐSINS Í DAG »
Morgunblaðið/RAX
Aðgerðateymi sem umhverfis-
ráðherra stofnaði sumarið 2009 til
að berjast gegn utanvegaakstri á
Reykjanesskaganum hefur ekki
enn gripið til neinna aðgerða eða
lagt fram formlegar tillögur að
þeim. Teymið hefur fundað fjórum
sinnum en síðasti fundur var í apríl
2010. Ekkert samráð hefur verið
haft við hagsmunafélög um hvernig
megi vinna bug á vandamálinu. »4
Hafa undirbúið
aðgerðir frá 2009
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Innbrot í sumarbústaði geta gengið
nærri fólki og að sögn Theódórs K.
Þórðarsonar, yfirlögregluþjóns í
Borgarnesi, eru allmörg dæmi um að
fólk hafi selt sumarbústaði sína í
kjölfar innbrota.
Sumarbústaðaeigendur í Hval-
fjarðarsveit og Skorradalshreppi
hafa margir eflt öryggisvarnir við
sumarbústaði sína til muna, komið
fyrir hliðum og jafnvel eru dæmi um
að þeir hafi sett öryggismyndavélar
við hliðin.
Eftir hrinu innbrota í sumarbú-
staði á svæðinu í fyrrahaust kvíða
margir sumarbústaðaeigendur
haustinu. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er í þeirra hópi rætt
um að taka höndum saman og auka
enn þjófavarnir með fleiri öryggis-
hliðum og öryggismyndavélum við
sumarbústaðahverfi. Theódór, yfir-
lögregluþjónn í Borgarnesi, segir að
best sé ef þetta tvennt fari saman því
myndir úr öryggismyndavélum komi
oft í góðar þarfir.
Theódór segir innbrotum í sumar-
bústaði hafa fjölgað í fyrra og líkur
séu á því að meira verði um þau í ár.
Að jafnaði var brotist inn í um 30-40
bústaði í umdæmi lögreglunnar í
Borgarfirði og Dölum á ári fram til
ársins 2010. Í fyrra var brotist inn í
78 og það sem af er þessu ári eru inn-
brotin orðin 47. Lögreglu hafi tekist
að upplýsa stærstu innbrotahrinurn-
ar síðastliðin ár sem slegið hafi á inn-
brotin þar til í fyrra að þau keyrðu úr
hófi. Theódór leggur áherslu á að ná-
grannavarslan sé virk og að fólk
sameinist um sameiginlegar for-
varnir gegn innbrotum.
Selja bústaði eftir innbrot
Öryggishlið við sumarbústaðalönd vegna tíðra innbrota Innbrot fá á fólk
Vilja auka enn öryggisbúnaðinn og óttast að innbrotum haldi áfram að fjölga
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Öryggi Fyrst þarf að fara um hlið.
Penni Síðubrot úr handritinu.
Þorvaldur Maríuson bókasali hefur
sett handskrifað handrit að Ofvitan-
um til sölu á uppboðsvefinn eBay.
„Ég keypti þetta handrit fyrir tveim-
ur árum af manni sem þá var að
minnka við sig. Þetta er það sem er
kallað prentsmiðjueintak og bókin er
prentuð eftir þessu handriti,“ segir
Þorvaldur. Handritið er handskrifað
af Þórbergi og er að mati Þorvaldar
mjög verðmætt. „Erlendis eru svona
handrit metin töluvert. Hér á landi er
vissulega áhugi fyrir hendi en menn
vilja bara ekkert borga fyrir þetta.“
Þorvaldur segir að Þjóðarbókhlaðan
hafi ekki sýnt handritinu mikinn
áhuga og sé ekki tilbúin að greiða
mikið fyrir það. „Þeir hafa ekki einu
sinni sýnt því áhuga að sjá handritið.“
Handrit sem þessi eru fágæt á ís-
lenskum markaði að sögn Þorvaldar
en hann hefur selt bækur og handrit í
mörg ár. Handritið er nýkomið inn á
eBay en rúmur sólarhringur er til
stefnu fyrir þá sem vilja bjóða í það
áður en það fer til hæstbjóðanda.
Eðlilegt verð er um 10.000 kr. fyrir
hverja blaðsíðu segir Þorvaldur en
verkið er um 350 blaðsíður.
vilhjalmur@mbl.is
3,5 milljónir fyrir Ofvitann
Handskrifað handrit eftir Þórberg Þórðarson á eBay
Jarðskjálfti, sem mældist 7,2 stig á Richter, varð
í austurhluta Tyrklands um miðjan dag í gær og
í kjölfar hans urðu margir eftirskjálftar. Upptök
skjálftans voru skammt frá borginni Van. Stað-
fest var í gærkvöldi að 138 manns hefðu látið líf-
ið en talið er að þeir séu mun fleiri. Alþjóða-
björgunarsveit Slysavarnafélagsins
Landsbjargar er á vöktunarstigi en ekki hefur
komið beiðni um aðstoð frá Tyrklandi. »13
Óttast að nokkur hundruð hafi farist í jarðskjálfta
Reuters
Fulltrúar
Depfa-bankans
munu koma til Ís-
lands í vikunni
og hitta meðal
annars bæjar-
stjórn Hafnar-
fjarðarbæjar til
að ræða lausnir á
greiðslu erlends
láns bæjarins. Bærinn segir að
óvissa hjá fjármálastofnunum um
túlkun á nýjum sveitarstjórn-
arlögum hafi tafið endurfjár-
mögnun. »2
Fulltrúar Depfa á
leið til viðræðna
Skuldugir eru nýr áhættuhópur
þegar kemur að áhrifum efnahags-
þrenginga á líðan Íslendinga. Erf-
iðleikarnir koma verr við þá sem
höfðu stofnað til skulda fyrir hrun
en þá sem eru atvinnulausir eða
með lágar tekjur, segir Dóra Guð-
rún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá
embætti landlæknis.
Lítið hafi verið rætt um þennan
áhættuhóp sem þurfi að skilgreina
betur. »2
Skuldugir nýr
áhættuhópur