Morgunblaðið - 24.10.2011, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 2011
Tunguhálsi 10,
110 Reyjavík
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Tvisvar í síðustu viku var ofanrit-
aður blaðamaður krafinn um að
gefa upp kennitölu sína þegar hann
hugðist skipta lítilræði af gjaldeyri í
Landsbankanum, þrátt fyrir að regl-
ur bankans kveði á um að aðeins
þurfi kennitölu þegar um verulegar
fjárhæðir er að ræða og að kenni-
tölukrafan sé í andstöðu við úrskurð
Persónuverndar.
Í fyrra skiptið ætlaði hann skipta
evrum að jafnvirði um 5.000 íslensk-
ar krónur sem hann hafði fundið of-
an í skúffu. Gjaldkeri í útibúi Lands-
bankans í Austurstræti var harður á
því að kennitala væri nauðsynleg og
gaf ekkert eftir þótt blaðamaður
hefði bent á að þetta væri furðuleg
starfsregla þegar um svo litlar fjár-
hæðir væri að ræða. Hann gaf þó
upp kennitöluna, með semingi. Í
kjölfarið var leitað skýringa hjá
Landsbankanum og fengust þau
svör frá upplýsingafulltrúa bankans
að Landsbankinn krefði ekki við-
skiptavini sína um kennitölu þegar
verið væri að skipta lítilræði af er-
lendum gjaldeyri í íslenskar krónur.
Með lítilræði væri átt við fjárhæð
sem er 1.000 evrur eða lægri, jafn-
virði 160.000 íslenskra króna. Það
hefði þó verið gert áður, en þeirri
vinnureglu hefði verið breytt í kjöl-
far úrskurðar Persónuverndar og
nú væri kennitölu aðeins krafist ef
fjárhæðin færi yfir viðmiðunar-
fjárhæðir í lögum um aðgerðir gegn
peningaþvætti og fjármögnun
hryðjuverka. Þó kynni bankinn að
krefjast kennitölu ef grunur léki á
að verið væri að eiga viðskipti með
gjaldeyri umfram viðmið laganna í
fleiri en einni færslu.
Eftir að hafa fengið þessi svör fór
blaðamaður í Árbæjarútibú Lands-
bankans, að þessu sinni með jafn-
virði um 3.500 króna í dollurum og
pundum sem fundust ofan í annarri
skúffu. Gjaldkerinn krafðist kenni-
tölu og þegar blaðamaður neitaði að
gefa hana upp fékk hann að heyra
að afgreiðslan gæti ekki farið fram
nema kennitalan væri fyrst slegin
inn í tölvukerfi bankans. Gjaldeyr-
inum fékkst því ekki skipt.
Nú fengust þær skýringar hjá
bankanum að þótt tölvukerfið krefð-
ist kennitölu væri hægt að komast
fram hjá því með því að slá inn eins
konar gervikennitölu. Farið yrði yf-
ir þessi mál með starfsmönnum.
Þegar skipta átti
örlitlum gjaldeyri
sagði tölvan nei
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Íslenska gámafélagið fundaði á
föstudaginn með bílstjórum sínum
eftir alvarlegt slys sem varð þegar bíl
frá félaginu var ekið gegn aksturs-
stefnu inn að svæði Sorpu í Dalvegi á
miðvikudaginn. Á fundinum var lagt
bann við að aka gegn akstursstefnu
inn á gámastöðvar Sorpu. Þrátt fyrir
það ók bílstjóri félagsins gegn akst-
ursstefnu inn á gámastöðina við Ána-
naust, eins og Morgunblaðið greindi
frá á laugardag. Jón Þórir Frantz-
son, forstjóri Íslenska gámafélags-
ins, segir að rætt hafi verið sérstak-
lega við þann bílstjóra vegna
málsins.
„Ástæðan fyrir því að keyrt var inn
á svæðin gegn akstursstefnu er sú að
við innkeyrslu á svæði Sorpu er oft
mikill atgangur fólks og gjarna börn í
fylgd með foreldrum sínum t.d. þeg-
ar verið er að koma með flöskur og
dósir til endurvinnslu. Bílarnir okkar
eru stórir og við töldum því heppi-
legra og öruggara að aka þeim inn á
svæði Sorpu gegn akstursstefnu þar
sem minna er um að fólk sé á gangi,“
segir Jón.
Úttekt á öryggi
Ásmundur Reykdal, rekstrar-
stjóri Sorpu, segir að akstur gegn
akstursstefnu sé ekki verkregla
hjá Sorpu. „Við höfum reynt að
merkja okkar svæði þannig að
farið verði eftir almennum um-
ferðarreglum innan okkar
svæða. Við merkjum bæði hraða
innan svæðisins sem er 15 km/
klst., höfum sett hraðahindranir
og ákveðið akstursstefnu til og frá
svæðum okkar. Slysið verður fyrir
utan svæði Sorpu en við ætlum þrátt
fyrir það að gera úttekt á öryggi á öll-
um okkar endurvinnslustöðvum.“
Ítrekuðu bann við brotum
Sorpa og Íslenska gámafélagið ætla að endurskoða öryggisreglur eftir slys á
Dalvegi Akstur gegn akstursstefnu inn á stöðvar Sorpu var til að gæta öryggis
Öryggi aukið
» Sorpa ætlar að gera úttekt á
öryggi á öllum endur-
vinnslustöðvum sínum
» Íslenska gámafélagið ók
gegn akstursstefnu af öryggis-
ástæðum en hefur nú tekið fyr-
ir alla slíka keyrslu.
Lögbrot Gámabíllinn ók inn á stöð-
ina, gegn einstefnu, á föstudag.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
„Vegna ykkar framlags er Samfylk-
ingin nú fær í flestan sjó,“ sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir þegar hún
ávarpaði gesti á landsfundi Sam-
fylkingarinnar síðdegis í gær og
sleit fundinum.
Enn nokkur bið
Á landsfundinum var m.a. sam-
þykkt aðgerðaáætlun í málefnum
ungs fólks. Samkvæmt henni verð-
ur fæðingarorlof lengt í tólf mánuði
og Fæðingarorlofssjóður styrktur
þannig að unnt verði að hækka há-
marksgreiðslur til að þær endur-
spegli meðallaun í landinu.
Í viðtali Stöðvar 2 við Jóhönnu
eftir fundinn kom þó fram að þessi
breyting yrði ekki lögfest fyrr en
jafnvægi yrði komið á í ríkisfjár-
málum. Þar með hugsanlega ekki
fyrr en á árinu 2013 eða 2014. Þá
kom fram að á árunum 2008 til
2010, á sama tíma og Jóhanna sat í
ríkisstjórn, lækkuðu hámarks-
greiðslur sjóðsins úr 535
þúsund krónum í 300 þús-
und krónur.
Í frétt Morgunblaðsins
fyrr í þessum mánuði kom
fram að margt bendi til þess
að áfram dragi úr töku for-
eldra á fæðingarorlofi á
þessu ári. Þá sér-
staklega feðra en í
fyrra fækkaði feðrum
sem fengu greiðslur í fæðing-
arorlofi um 5,3% milli ára. Alls
lækkuðu fæðingarorlofsgreiðslur til
foreldra um rúman milljarð á síð-
asta ári, skv. tölum Hagstofunnar.
Fjölbreytt tækifæri
Aðgerðaáætlunin miðar einnig að
samfélagi sem býður fjölbreytt
tækifæri til menntunar og þroska,
spennandi atvinnutækifæri og góð
lífskjör sem eru sambærileg við
þau sem bjóðast í nágrannalöndum
okkar. Í stjórnmálaályktun Sam-
fylkingarinnar segir einnig að for-
senda efnahagslegrar sóknar sé úr-
lausn skuldavanda heimila og
fyrirtækja. Eins að aðild að Evr-
ópusambandinu og upptaka evru
sé eitt mikilvægasta skrefið í átt til
efnahagslegs stöðugleika, hag-
vaxtar og betri rekstrarskilyrða
fyrir heimili og fyrirtæki. Um at-
vinnulífið segir meðal annars að
rótgróin fyrirtæki og undirstöðu-
atvinnuvegir á borð við sjávar-
útveg og landbúnað þurfi einnig
stoðkerfi til nýsköpunar, mannauð
og sóknarfæri.
Þá kom fram gagnrýni á fund-
inum á þær niðurskurðartillögur,
sem stjórnendur Landspítala hafa
lagt fram um að loka líknardeild á
Landakoti og St. Jósefsspítala.
„Samfylkingin nú
fær í flestan sjó“
Landsfundur Samfylkingarinnar haldinn um helgina
Jóhanna Sigurðardóttir og Dagur B. Eggertsson verða áfram í forystu Sam-
fylkingarinnar. Jóhanna var sjálfkjörin í embætti formanns og Dagur var
sjálfkjörinn í embætti varaformanns. Margrét K. Sverrisdóttir hlaut flest
atkvæði í kjöri til framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar.
Margrét S. Björnsdóttir var sjálfkjörin í embætti formanns fram-
kvæmdastjórnar Samfylkingarinnar en Helena Þ. Karlsdóttir var kosin rit-
ari. Hún hlaut 68,2% atkvæða en mótherji hennar Bergvin Oddsson 31,8%
atkvæða. Í framboði til gjaldkera Samfylkingarinnar voru þeir Hilmar
Kristinsson og Vilhjálmur Þorsteinsson, var Vilhjálmur kosinn með 60%
atkvæða. Hefur kjörstjórn landsfundar Samfylkingarinnar úrskurðað kosn-
ingu til flokksstjórnar sem fram fór á fundinum ógilda vegna tækni-
legra ágalla á framkvæmd. Verður kosningin endurtekin en kjósa á
30 fulltrúa í flokksstjórn og var ekki búið að tilkynna um úrslit. All-
ar aðrar kosningar á landsfundinum standa óhaggaðar.
Kosning úrskurðuð ógild
NIÐURSTÖÐUR LANDSFUNDAR
Margrét
Sverrisdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsfundur Á fundi Samfylkingarinnar var m.a. samþykkt aðgerðaáætlun í málefnum ungs fólks.
Umferðarskilti líkt og það sem
sett var upp af Sorpu við Dalveg
í Kópavogi eru ekki alltaf sett
upp með samþykki lögregl-
unnar. Einkaaðilar geta sett upp
slík skilti á starfsstöðvum
sínum og sveitarfélög hafa
heimild til að setja upp
bráðabirgðaskilti þar
sem umferð er breytt í
stuttan tíma. Ákvörðun
Reykjavíkurborgar að
loka fyrir umferð í aðra
átt á Suðurgötu við
gamla kirkjugarðinn er
bráðabirgðaráðstöfun
sem ekki hefur fengið
samþykki lögreglustjóra.
Ökumenn þurfa þó að virða
umferðarskiltin.
Bráðabirgða-
skilti
UMFERÐARSKILTI