Morgunblaðið - 24.10.2011, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 2011
Aflaskipið Sigurður VE-15 hefur verið í slipp í Reykja-
vík. Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélags Vest-
mannaeyja, sagði að skipið hefði verið tekið í slipp
vegna hefðbundins viðhalds en ekki til breytinga.
Sigurður VE er kominn á sextugsaldurinn en hann
var smíðaður í Bremerhaven í Þýskalandi árið 1960 en
hefur mikið verið breytt síðan.
Eyþór benti á að Sigurður sé barn síns tíma og skipið
t.d. ekki útbúið til að kæla aflann. Nú er aðallega gripið
til Sigurðar þegar toppar koma í uppsjávarveiðina. Ey-
þór reiknaði með að aukin verkefni myndu skapast fyr-
ir skipið vegna stærri loðnukvóta.
Sigurður hefur alltaf verið mikið aflaskip. Á togara-
tímabilinu við Ísland, 1963-1972, var skipið átta sinnum
aflahæsti togari landsins. Aflasældin hélt áfram aftir
að skipinu var breytt til nótaveiða og árið 1975 setti
Sigurður aflamet þegar skipið landaði rúmlega 40.000
tonnum á árinu.
Í vetur sem leið veiddi Sigurður VE um 5.000 tonn af
loðnu. Þar áður var hann m.a. notaður til veiða á norsk-
íslenskri síld og vetrarloðnu.
Kristbjörn Árnason var lengi skipstjóri á Sigurði VE
en hætti fyrir tveimur árum. Hann sagði að þegar hann
hætti hefði ekkert skip í íslenska flotanum verið búið
að fiska jafn mikið og Sigurður VE og aflinn verið kom-
inn í um eina milljón tonna. „Það voru margir um það,“
sagði Kristbjörn. Hann lét vel af verunni um borð í Sig-
urði og sagði hann vera gott sjóskip.
Aflaskipið í slipp
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Umræða hefur skapast meðal íbúa í
Grindavík um áform bæjarstjórnar
að kaupa hús til íbúðar fyrir bæj-
arstjóra í stað þess að leigja og bor-
ið hefur á óánægju. Forseti bæj-
arstjórnar segir að hagkvæmara sé
að kaupa hús. Það ráði ákvörðun
meirihlutans.
Fulltrúar meirihluta Framsókn-
arflokks og Sjálfstæðisflokks í bæj-
arráði Grindavíkur hafa ákveðið að
kaupa hús til íbúðar fyrir bæjar-
stjórann í stað þess að leigja fyrir
hann. Fulltrúi Samfylkingarinnar
styður þessi áform en Listi Grind-
víkinga mótmælir harðlega.
Hafa setið uppi með tvö hús
Allir bæjarfulltrúar stóðu að
ráðningu Róberts Ragnarssonar
sem bæjarstjóra eftir síðustu bæj-
arstjórnarkosningar. Bryndís
Gunnlaugsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar, segir að ákveðið hafi verið
að útvega honum og fjölskyldu
hans húsnæði í Grindavík og er tek-
ið mið af því í samningum um
launakjör.
Húsnæði var leigt tímabundið.
Ofarlega í hugum bæjarfulltrúa var
umræða sem skapaðist á síðasta
kjörtímabili þegar bæjarstjóra var
sagt upp störfum í kjölfar meiri-
hlutaskipta. Kostaði það fjárútlát
fyrir bæjarfélagið, meðal annars
þurfti að kaupa hús bæjarstjórans
á verði sem var langt yfir markaðs-
verði fasteigna í bæjarfélaginu.
Það var raunar í annað skiptið sem
slíkt gerðist í Grindavík.
Hús bæjarstjórans fyrrverandi
var selt í fyrravor með kaupleigu-
samningi. Bryndís segir að ekki
hafi komið til greina að kaupa ann-
að hús á meðan ekki var ljóst hvort
kaupandi gamla bæjarstjórahúss-
ins myndi nýta kauprétt sinn. Því
hafi hús verið tekið á leigu til
bráðabirgða. Nú liggi fyrir að eldra
húsið væri selt og erfitt að fá hent-
ugt húsnæði leigt út kjörtímabilið.
Hún segir að talið hafi verið skyn-
samlegt að nota söluandvirði húss-
ins til að kaupa nýlegt hús af hóf-
legri stærð. „Það er betra að
fjárfesta í eign en leigu. Fjárfest-
inguna getum við fengið til baka, ef
við þurfum, en leiga er aukinn
rekstrarkostnaður,“ segir Bryndís.
Sjái um sig sjálfir
„Við teljum að ekki eigi að auka
rekstrarkostnað þegar verið er að
spara í rekstri og skera niður út-
gjöld. Við vildum leita að leiguhús-
næði út kjörtímabilið og höfum
fregnir af því að fólk kunni að vera
tilbúið að leigja hús,“ segir Kristín
María Birgisdóttir, bæjarfulltrúi
Lista Grindvíkinga sem er í minni-
hluta. Hún segir að við ráðningu
bæjarstjóra hafi verið lagt upp með
að leigja húsnæði, ekki kaupa, enda
hafi bærinn átt hús fyrri bæjar-
stjóra og tapað miklu á því.
Þótt G-listinn hafi greitt atkvæði
með tillögu um að auglýsa eftir húsi
telur listinn nú að leita eigi eftir
leigu næstu þrjú árin og framvegis
eigi að semja þannig við bæjar-
stjóra að bærinn beri ekki kostnað
af húsnæðismálum þeirra. „Það er
sjálfsagt mál að bæjarstjórar sjái
sjálfir um sín húsnæðismál, eins og
aðrir starfsmenn bæjarins. Hvað
gerist ef Grindvíkingur verður
bæjarstjóri? Á bæjarstjórahúsið þá
að standa autt eða á bæjarstjórinn
að flytja úr eigin húsi? Erum við að
útiloka þann möguleika að Grind-
víkingur setjist í bæjarstjórastól-
inn?“ spyr Kristín.
Reiknað er með að tillaga um að
kaupa tiltekið hús fyrir 32 milljónir
sem bæjarstjórabústað verði stað-
fest á fundi bæjarstjórnar um
miðja næstu viku.
Ágreiningur vegna bæjarstjórabústaðar
Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segir hagkvæmara að kaupa hús en leigja Fulltrúi úr minni-
hluta segir að bæjarstjórar eigi að sjá um sín húsnæðismál sjálfir Seldu bæjarstjórahús fyrir skömmu
Morgunblaðið/Ómar
Síkát Grindvíkingar úr appelsínugula hverfinu skemmta sér á bæjarhátíð.
Emil Hilmar Eyjólfsson
lést í Beaujeu í Frakk-
landi 18. október sl. Emil
var 75 ára, fæddur í
Reykjavík 9. nóvember
1935.
Foreldrar Emils voru
Guðrún Emilsdóttir og
Eyjólfur Kristjánsson,
lengst af búsett í Kópa-
vogi.
Emil lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
1954 og lagði eftir það stund á
franska tungu og bókmenntir við
Parísarháskóla og kenndi íslensku
og norrænu við sama skóla. Árið
1972 fluttist hann heim til Íslands
þar sem hann starfaði á annan ára-
tug við kennslu í frönsku við Há-
skóla Íslands, Menntaskólann við
Sund og Menntaskólann við Tjörn-
ina.
Á árunum 1974 til
1976 skrifaði hann leik-
listardóma fyrir Morg-
unblaðið. Einnig vann
hann í áraraðir sem leið-
sögumaður á sumrin.
Emil fluttist aftur til
Frakklands 1984 og
kenndi íslensku, nor-
rænu og norrænar bók-
menntir við háskólann í
Lyon til 2005. Að starfs-
ferli loknum lagði hann
stund á sanskrít við
sama háskóla og lauk æðri próf-
gráðu í þeirri grein. Eftir Emil eru
nokkrar þýðingar úr frönskum bók-
menntum og kennslubók í íslensku
fyrir frönskumælandi nemendur.
Hann lætur eftir sig eiginkonu,
Hélène Isnard, og fimm börn, Að-
alstein Rúnar, Eyjólf Kjalar, Þiðrik
Christian, Guðrúnu Catherine Em-
ilsdóttur og Kjartan Pierre.
Emil Hilmar Eyjólfsson
Andlát
Í fjárlögum er
heimild til að
selja Hegning-
arhúsið við Skóla-
vörðustíg en Ög-
mundur Jónasson
innanrík-
isráðherra segir
að þrátt fyrir það
sé framtíð húss-
ins ekki ráðin.
Alls ekki sé víst
að húsið verið selt þegar nýtt fang-
lesi verður tekið í notkun. Að hans
sögn eru ýmsar hugmyndir á lofti
um framtíð hússins. „Það hafa marg-
ir komið að máli við mig vegna fram-
tíðar Hegningarhússins og viðrað
við mig þær hugmyndir að koma á
fót safni í húsinu, til dæmis um rétt-
arkerfi landsins en lengi vel var rétt-
að í húsinu.“ Þá segir Ögmundur að
hugmyndir á borð við þá að reka þar
veitingastað eða verslun hafi líka
borist honum frá ýmsum aðilum.
„Framtíð hússins er alls ekki ráðin
og við erum ekki búin að taka
ákvörðun um hvað verður gert við
það. Það er heimild í fjárlögum að
selja húsið en það kemur allt eins til
greina að breyta því í safn. Varð-
veisla gamalla húsa og nýting þeirra
í öðrum tilgangi en upphaflega var
ætlað hefur víða tekist vel og er þar
rétt að nefna Torfuna en fáir hall-
mæla varðveislu hennar í dag enda
mikil prýði í borginni.“
Ljóst er að margt þarf að lagfæra
ef breyta á húsinu í safn en staðsetn-
ing og umgjörð hússins bjóði hins
vegar upp á marga spennandi kosti.
vilhjalmur@mbl.is
Óvíst að fang-
elsið verði selt
Hegningarhúsið gæti orðið sögusafn
Morgunblaðið/Þorkell
Safn Húsið var tekið í notkun árið
1874 og er elsta fangelsið á landinu.
Ögmundur
Jónasson