Morgunblaðið - 24.10.2011, Qupperneq 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 2011
Sudoku
Frumstig
1 7 6 4
1
5 2 3
6 9
6 5 2 1
3 9 4 6 2
9 7 5 3
4
2 7 5
6 5
7 3 8 9 1
6 4
3 5 1 9
9 4 3
7 6 4 3
7
5 3 1
1 7
8
6 4
4 7 3 2
1 9
6 4 2 7
5 3
4 3
5 8 1
1 7 4 5
6 4 7 8 5 1 2 9 3
9 8 2 3 6 7 5 1 4
1 3 5 2 9 4 8 6 7
5 7 8 4 3 6 1 2 9
4 2 1 7 8 9 3 5 6
3 6 9 5 1 2 7 4 8
7 9 6 1 2 3 4 8 5
8 1 4 6 7 5 9 3 2
2 5 3 9 4 8 6 7 1
7 8 9 1 2 4 5 6 3
2 6 1 8 3 5 9 7 4
3 4 5 7 9 6 2 1 8
5 2 3 6 7 9 8 4 1
1 9 4 3 8 2 6 5 7
8 7 6 4 5 1 3 9 2
4 5 8 2 6 7 1 3 9
9 1 2 5 4 3 7 8 6
6 3 7 9 1 8 4 2 5
2 8 5 6 3 9 7 1 4
3 7 4 2 8 1 9 6 5
6 9 1 5 7 4 8 2 3
1 2 6 7 9 5 4 3 8
8 3 7 4 1 2 6 5 9
4 5 9 8 6 3 1 7 2
9 4 2 1 5 6 3 8 7
7 6 3 9 2 8 5 4 1
5 1 8 3 4 7 2 9 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 24. október,
297. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Verðið heldur sjálfir heil-
agir í allri hegðun, eins og sá er heil-
agur, sem yður hefur kallað. (1Pt. 1, 15)
Víkverji skilur ekki hvers vegnasumir hægrimenn þurfa endi-
lega að gera lítið úr hjólreiðum sem
raunhæfum samgöngumáta. Vissu-
lega er skiljanlegt að þeir geri at-
hugasemdir við að skattfé sé notað
til að leggja hjólreiðastíga, t.d. þær
fyrirætlanir Reykjavíkurborgar að
leggja fjóra milljarða í slíka stíga í
borginni. Á hinn bóginn skilur Vík-
verji ekki hvers vegna þeir virðast
hafa horn í síðu hjólreiða almennt.
Fyrir skömmu mátti lesa á einum
vef hægrimanna að það sem stæði í
vegi fyrir hjólreiðum í borginni væri
64,5% veður, 10% tollur og 24,5%
virðisaukaskattur. Mátti skilja að
hjólreiðar væru 100% ómögulegar
en það er auðvitað algjör vitleysa.
x x x
Nú vill svo til að Víkverji hjólar ívinnuna allt árið og telur það
vera lítið mál. Það hjálpar reyndar
verulega til að leiðin liggur nánast
öll um hjólreiðastíga og þar leiðandi
lítil hætta á árekstrum við hinar
stórhættulegu bifreiðar sem svo
margir notast við. Stígakerfið er
hins vegar ekki alls staðar svona
gott og það er sjálfsagt að reyna að
bæta aðstöðu hjólreiðamanna. Hvort
það þurfi að kosta fjóra milljarða –
sem þarf að taka að láni í útlöndum –
er svo allt annað mál.
x x x
Engin vörugjöld eru lögð á vist-vænustu bílanna af því að
stjórnvöld vilja auka notkun þeirra.
Þess vegna er auðvitað með ólík-
indum að reiðhjól skuli enn bera 10%
vörugjöld. Það hlýtur að vera rök-
rétt að fella einnig niður vörugjöld af
reiðhjólum því jafnvel vistvænasti
bíll mengar miklu meira en reiðhjól.
Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp
til laga sem munu heimila innan-
ríkisráðherra að skylda alla hjól-
reiðamenn til að vera með hjálm.
Landssamtök hjólreiðamanna hafa
mótmælt þessu og bent á að þar sem
hjálmaskylda fullorðinna hefur verið
lögleidd hefur dregið úr hjólreiðum.
Víkverji telur að tíma ríkisins væri
betur varið í eitthvað annað, s.s. að
stuðla að betri hjólreiðamenningu
með fræðslu og hvatningu í stað
boða og banna. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 vinnumenn, 8
hæðin, 9 huldi, 10 veið-
arfæri, 11 kom í verð, 13
þverneita, 15 korntegundar,
18 hugsun, 21 spil, 22 suða,
23 baktala, 24 tíbrá.
Lóðrétt | 2 geðvond, 3
kunningsskapur, 4 rjúfa, 5
sakaruppgjöf, 6 elds, 7 sjáv-
ardýr, 12 atorku, 14 fáláta,
15 nirfill, 16 gjaldgengi, 17
endurtekning, 18 úttroðin,
19 snákur, 20 svelgurinn.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 hlemm, 4 björg, 7 afmán, 8 líran, 9 ill, 11 part, 13 gróa,
14 eldur, 15 böll, 17 ábót, 20 kar, 22 gettu, 23 umtal, 24 renni, 25
lærir.
Lóðrétt 1 hlaup, 2 eimur, 3 máni, 4 ball, 5 ögrar, 6 gunga, 10
lydda, 12 tel, 13 grá, 15 bögur, 16 látún, 18 bítur, 19 telur, 20
kuti, 21 rusl.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Brasilísk rós. S-Enginn.
Norður
♠KD
♥108
♦KDG107
♣D754
Vestur Austur
♠Á85432 ♠G10976
♥D42 ♥K
♦95 ♦Á8642
♣82 ♣93
Suður
♠--
♥ÁG97653
♦3
♣ÁKG103
Suður spilar 6♣.
Brasilíumaðurinn Diego Brenner
fær rós í hnappagatið fyrir vel ígrund-
að útspil gegn slemmu suðurs. Þetta
var í leik við Svía á HM í Hollandi. Pet-
er Fredin í suður vakti rólega á 1♥,
Brenner kom inn á 1♠, norður doblaði
neikvætt og austur hindraði í 4♠. Nú
eru vönduð sagnvísindi út úr myndinni
og Fredin lokaði einfaldlega augunum
og stökk í 6♣.
Spaðaásinn snargefur slemmuna og
sú varð niðurstaðan á mörgum borð-
um. En Brenner fann eyðuþefinn af
spaðalitnum og ákvað að leita frekar
fyrir sér í tígli – kom út með vel heppn-
aða tígulníu. Einn niður og 14 stig til
Brasilíu, en hinum megin spilaði vestur
út ♠Á eftir nokkurn veginn sömu sagn-
ir.
Spilið féll í 5♣+1 í leik Íslands og
Indlands.
24. október 1975
Kvennafrídagurinn. Íslenskar
konur tóku sér frí á degi Sam-
einuðu þjóðanna á alþjóðlegu
kvennaári, til að sýna fram á
mikilvægi starfa kvenna í
þjóðfélaginu. Athafnalíf í
landinu lamaðist að miklu
leyti. Á Lækjartorgi í Reykja-
vík var haldinn fundur sem 25
þúsund manns sóttu, flest kon-
ur.
24. október 1975
Sjónvarpsútsendingar í lit hóf-
ust hér á landi þegar hætt var
að gera ráðstafanir til að
„fjarlægja lit af myndseg-
ulböndum,“ eins og segir í árs-
skýrslu Ríkisútvarpsins.
24. október 1985
Forseti Íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, tók sér umhugs-
unarfrest áður en hún skrifaði
undir bráðabirgðalög til að
binda enda á verkfall flug-
freyja – á frídegi kvenna. Eftir
að samgönguráðherra hafði
hótað afsögn skrifaði forseti
undir lögin.
24. október 1999
Silfur Egils, umræðuþáttur
undir stjórn Egils Helgasonar,
var á dagskrá Skjás eins í
fyrsta sinn. Síðar fluttist hann
yfir á Stöð 2 og loks til Sjón-
varpsins.
24. október 2008
Ríkisstjórnin óskaði formlega
eftir samstarfi við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn um að koma
á efnahagslegum stöðugleika.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
Ragnar Gíslason, skólastjóri Garðaskóla, fagnar
sextugsafmæli sínu í dag. „Sonur okkar kemur í
heimsókn og við fáum okkur eitthvað gott að
borða, en að öðru leyti þá héldum við stórafmæl-
isveislu með fjölskyldunni í sumar, allri, við hjónin
eigum bæði sextugsafmæli á árinu, þannig að við
héldum sumarhátíð,“ segir Ragnar. Eiginkona
Ragnars er Ingibjörg Gunnarsdóttir, leik-
skólastjóri Hæðarbóls. Stórafmælisveisla Ragnars
og Ingibjargar fór fram á Tenerife en þau hjónin
tóku alla fjölskylduna, 11 manns, þangað með sér í
sumar.
Ragnar er bjartsýnn á þessum afmælisdegi sínum en hann er nú á
mjög góðum batavegi eftir að hafa undirgengist hvítblæðismeðferð á
Karolinska Universitetssjukhuset í Stokkhólmi. Hann segist vera
þakklátur þeim læknum sem þar starfa en jafnframt vill hann þakka
starfsfólki Landspítalans fyrir vel unnin störf. Ragnar er nú í end-
urhæfingu á Karolinska Universitetssjukhuset og verður þar næsta
einn og hálfan mánuð. „Ég ætla mér að koma aftur til starfa eins fljótt
og ég get,“ segir Ragnar sem fagnar tíu ára starfsafmæli sínu sem
skólastjóri Garðaskóla núna um áramótin. skulih@mbl.is
Ragnar Gíslason er sextugur í dag
Hélt upp á afmælið í sumar
Hlutavelta
Andrea Þorvalds-
dóttir, Bryndís Eva
og Þórdís Ósk Stef-
ánsdættur héldu
tombólu við versl-
anir Samkaupa við
Byggðaveg og í
Hrísalundi á Ak-
ureyri. Þær söfnuðu
16.909 kr. sem þær
styrktu Rauða
krossinn með.
Flóðogfjara
24. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.02 3,6 10.16 0,7 16.17 3,9 22.37 0,5 8.45 17.40
Ísafjörður 6.09 1,9 12.20 0,3 18.12 2,1 8.59 17.35
Siglufjörður 1.56 0,2 8.14 1,2 14.11 0,2 20.22 1,3 8.43 17.18
Djúpivogur 1.10 1,9 7.20 0,5 13.32 2,0 19.39 0,5 8.17 17.07
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Mundu að svara skilaboðum og
klæða þig á viðeigandi hátt. Einhver reynir
að heilla þig upp úr skónum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert að hugsa um einhvern sem þér
þykir spennandi. Notaðu innsæi þitt til þess
að stjórna og beina tilfinningunum í þá átt
að skapa betri framtíð.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er ekkert vit í öðru en að hafa
alla hluti á þurru þegar taka þarf ákvörðun í
mikilvægu máli. Komdu jafnvægi á lífið svo
þú komir einhverju í verk.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú horfir inn á við og mætir mörgun
lífsgátunum. Gættu þess að fara varlega
með fé annarra. Ekki láta samviskubit halda
fyrir þér vöku.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú gætir gert þér grein fyrir dýpt til-
finninga þinna og hafið nýtt samband í dag.
Ferfætlingar koma við sögu seinni part dags.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú þarft að huga vel að stöðu þinni
bæði í starfi og einkalífi. Samræður ættu að
verða líflegar og skemmtilegar þó allir séu
ekki sammála.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hamingjan bíður þín á næsta leiti en þú
þarft að sýna dirfsku, en um leið þolinmæði
til þess að finna hana. Veldu beinu brautina.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarft að gæta þess vel að fá
nægan svefn því of miklar vökur fara illa
með sál og líkama. Reyndu að líta sem best
út því fyrstu áhrif geta haft mikil og varanleg
áhrif!
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þótt mikið fjör ríki þessa stund-
ina og gaman sé að taka þátt í því, máttu
ekki gleyma alvöru lífsins. Þú færð góðar
kveðjur að utan.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Byrjaðu daginn á því að telja upp
allt sem þig langar í (flugmiða til útlanda,
fallegan blómvönd). Notaðu tímann betur en
þú hefur gert undanfarið.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Láttu vera að skrifa undir nokk-
urn skapaðan hlut. Nú er rétt að staldra við
og bíða færis. Einhver gerir þér greiða.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Hugsaðu fyrst og fremst um það að
hætta einhverju sem er skaðlegt heilsunni.
Þú kemst á flug í skipulagningu.
Stjörnuspá
1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6 5. Rf3
Db6 6. a3 f6 7. Bd3 fxe5 8. dxe5 c4 9.
Bc2 Rh6 10. O-O g6 11. b3 cxb3 12.
Bxb3 Bg7 13. c4 dxc4 14. Bxh6 Bxh6
15. Bxc4 O-O 16. Rbd2 Rd4 17. Da4
Rc6 18. Re4 Dc7 19. Rf6+ Kh8 20.
Hfe1 Bg7 21. Had1 De7 22. Ba2 Rxe5
23. Rxe5 Dxf6 24. He2 b6 25. h3 Bb7
26. Hd7
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í Ro-
gaska Slatina í Slóveníu. Ítalski stór-
meistarinn Fabiano Caruano (2712)
hafði svart gegn alþjóðlega meist-
aranum Stefáni Kristjánssyni (2485).
26… Hac8! 27. Rg4 hvítur hefði einnig
tapað eftir 27. Hxb7 Hc1+ 28. Kh2
Dxe5+! 29. Hxe5 Bxe5+ 30. f4 Hxf4
31. Db5 Hf5+. 27… Da1+ 28. Hd1 Hc1
29. Hxc1 Dxc1+ 30. Kh2 Df1 og hvítur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.