Morgunblaðið - 24.10.2011, Page 24
24 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
MÉR FINNST EINS OG
ÞAÐ SÉ EITTHVAÐ Í GANGI
EINS OG ÞAÐ GÆTI VERIÐ
VEISLA Í GANGI SEM MÉR VAR
EKKI BOÐIÐ Í
GOTT
AÐ ÉG ER
EKKI EÐLA
MAÐUR ER BARA AÐ SKRÍÐA
UM Í MESTU MAKINDUM
ÞEGAR ALLT Í EINU KEMUR
KRAKKI AÐVÍFANDI...
OG ÞÚ ERT
FASTUR Í KRUKKU
SEM
SKATTHEIMTU-
MANNI ÞÁ BER MÉR
SKILDA TIL AÐ
TILKYNNA
YKKUR...
...ÁÐUR EN ÞIÐ FARIÐ INN
AÐ NÁ Í PENINGANA SEM ÞIÐ
SKULDIÐ OKKUR...
...AÐ
ALLAR
ÚTGÖNGULEIÐIR
ERU VAKTAÐAR
ÉG FÓR Á MIÐILS-
FUND TIL AÐ REYNA
AÐ NÁ SAMBANDI
VIÐ ARNÓR, KINDINA
SEM DÓ Í FYRRA
NÁÐIRÐU
SAMBANDI
VIÐ HANN?
JÁ,
ÉG GERÐI
ÞAÐ
VIRKI-
LEGA? HVAÐ
SAGÐI HANN
EIGINLEGA?
„GRASIÐ
ER GRÆNNA
HINU-
MEGIN”
ÉG ÆTTI AÐ
DRÍFA MIG, ÉG VIL EKKI
VERÐA SEINN
SUMIR MUNDU
TAKA STRÆTÓ EÐA
HRINGJA Á BÍL...
EN ÉG ER HRIFNARI AF ÞVÍ AÐ FERÐAST SVONA
ÞETTA
ER HANN!
HVAÐ ÞÆTTI ÞÉR
UM AÐ ÉG KEYPTI MÉR
MÓTORHJÓL?
MÓTOR-
HJÓL!?
GEORG
ER AÐ SELJA
SITT OG MIG
HEFUR ALLTAF
LANGAÐ Í
SVOLEIÐIS
GERIRÐU
ÞÉR GREIN
FYRIR ÞVÍ
HVERSU HÆTTU-
LEG ÞAU ERU?
ÞÚ SAGÐIR
AÐ ÉG ÆTTI AÐ
FINNA MÉR NÝTT
ÁHUGAMÁL
ÉG ÁTTI
EKKI VIÐ EITT-
HVAÐ SEM GÆTI
ORÐIÐ ÞÉR AÐ
BANA!
Líknardeildin
Vil ég hvetja alla Ís-
lendinga, hvar í flokki
sem þeir standa og
hvar sem þeir búa, til
að mótmæla kröftug-
lega því skelfilega at-
hæfi forráðamanna
Landspítalans að loka
líknardeildinni á
Landakoti. Hef ég
sjálf unnið á ýmsum
stofnunum í heilbrigð-
iskerfinu, bæði á
Landspítalanum,
Borgarspítala og
hringinn í kringum
landið. Veit hvernig
landið liggur sem sagt og er lærður
lífeindafræðingur. Hef oft komið á
Landakot, bæði á líknardeildina og
aðrar deildir og alls staðar hefur ver-
ið frábært starfsfólk og andrúms-
loftið elskulegt og gott. Veit að marg-
ir voru mjög sárir og vonsviknir
þegar Landakoti var lokað sem spít-
ala eftir sameiningu við Borgarspít-
ala. Þá var m.a. nýbúið að taka í gegn
skurðstofurnar fyrir heilmikinn pen-
ing og á Landakoti voru deildir með
sérhæfingu, t.d. í augnlækningum og
einnig meltingarsjúkdómum hvers
konar. Nú skal öllu lokað í hagræð-
ingarskyni. Til hvers? Jú, til að geta
holað sjúklingum á ganga á Land-
spítala og látið þetta líta flott út á ex-
cel-skjali hjá einhverjum fræðingum
sem ekkert skilja nema tölur. Lífið
snýst ekki um tölur, það snýst um
fólk og við viljum láta koma fram við
gamla fólkið okkar sem manneskjur
en ekki sem dauðar tölur á blaði.
Hvet ég öll samtök sem láta sig
manneskjuna varða,
Samtök eldri borgara
og mannúðarsamtök,
Íbúasamtök Vestur-
bæjar og almenning til
að láta í sér heyra. Það
kemur í ljós að það er
alls ekki pláss fyrir
þessa eldri borgara á
líknardeildinni sem er í
Kópavogi, það þarf að
gera miklar endur-
bætur á henni. Hvað
kosta þær? Kannski
meira en það sem á að
sparast við lokun á
deildinni á Landakoti.
Það kom fram í grein
sem öldrunarlæknir
skrifaði um daginn í blaðið að það
voru ýmis samtök sem söfnuðu fé og
gáfu þegar deildin var opnuð fyrir 9-
10 árum, gæti t.d. Reykjavíkurborg
ekki tekið að sér að útvega það sem á
vantar eða einhver af bönkunum, líf-
eyrissjóðunum, sem eru að springa af
því að þeir eiga svo mikla peninga
sem þeir vita ekki hvernig skal verja?
Leyfum gamla fólkinu að vera í friði
og virðum rétt þess til að fá mann-
sæmandi þjónustu síðustu dagana
sem það lifir, leyfum því góða hjúkr-
unarfólki að vinna áfram við að líkna
þeim og hjúkra. Sparið bara í yf-
irstjórninni og fækkið öllum stjór-
unum sem eru allt of margir í kerfinu.
Með von um að deildinnni verði ekki
lokað,
Katrín Þorsteinsdóttir
lífeindafræðingur.
Ást er…
… að hlýja ykkur saman.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.45, vinnu-
stofa kl. 9, vatnsleikfimi kl. 10.50, út-
skurður/myndlist kl. 13, hekl kl. 20.
Árskógar 4 | Handav., smíði, útsk. kl. 9.
Félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16.
Boðinn | Jóga kl. 9, botsía kl. 11. Tálgað kl.
13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Bútasaumur, leikfimi,
sögustund og handavinna.
Dalbraut 18-20 | Myndlist/postulín kl. 9,
leikfimi kl. 10, brids kl. 13.
Dalbraut 27 | Handav. kl. 8, leikfimi kl.
9.15. Uppl. á 2. hæð kl. 14.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofa í Gullsmára opin mán. og mið. kl. 10,
Gjábakka á mið. kl. 15.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl.
13, kaffi/spjall kl. 13.30, danskennsla/
námskeið kl. 17.
Félagsheimilið Gjábakki | Leiðb. í handa-
vinnu til kl. 12, botsía kl. 9.15, gler- og
postulín kl. 9.30/13, lomber kl. 13, kanasta
kl. 13.15, kóræf. kl. 16.30,skapandi skrif kl.
20.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postulín
kl. 9, ganga kl. 10, handav. og brids kl. 13,
félagsvist kl. 20.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10 og 11, vatns-
leikfimi kl. 12.15/14.15, málun kl. 14, Jóns-
hús opið kl. 9.30-16.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnust.kl. 9.
Vatnsleikf. kl. 9.50. Frá hád. spilasalur op-
inn. Fim. 27. okt. er leikhúsferð á Kirsu-
berjagarðinn kl. 20, lagt af stað í rútu frá
Gerðub. kl. 19, skrán. á staðn. s. 5757720.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Gler kl. 9 og leir kl. 9, biljard kl.
10, kaffispjall kl. 10.30. Íþróttahús kl.
11.20, handav. kl. 13, vatnsleikfimi kl.
18.30.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Félagsvist kl. 13 í Setrinu.
Hraunbær 105 | Handav. kl. 9, leikfimi
kl. 9.15, bænast. kl. 10.15, myndlist kl. 13.
Hraunsel | Ganga frá Haukah. Ásv. kl.
10, kór kl. 11, glerbræðsla kl. 13, botsía og
félagsvist kl. 13.30, tréskurður kl. 14.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30 og
9.30. Vinnustofa kl. 9. Brids kl. 13.
Hæðargarður 31 | Við hringborðið kl.
8.50. Stefánsganga kl. 9.30. Handav. kl.
9. Saumur; hönnun o.fl. kl. 13. Félagsvist
kl. 13.30. Skapandi skrif kl. 16.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó kl. 13.30.
Korpúlfar Grafarvogi | Bókmklúbb. í
Eirborgum kl. 13.30. Góður gestur kemur.
Gönguhóp.frá Grafarvogskirkju/Egilshöll
kl. 10. Skartgripag. kl. 13.30. Bókmkl. kl.
13.30 í Eirborgum. Á sama tíma er Skart-
gripagerð á Korpúlfsst. kl. 13.30. Á morg-
un er sundleikfimi kl. 9.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hand-
verksstofa kl. 10, botsía kl. 13.30, söng-
stund kl. 15.
Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10. Handav. kl.
9/13. Samverust. m/djákna kl. 14. Út-
skurður kl. 13.
Vesturgata 7 | Botsía kl. 9, handav. kl.
9.15, leikfimi kl. 10.30, kóræfing kl. 13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
bókb/postulín kl. 9, morgunstund kl.
9.30, botsía kl. 10, uppl. kl. 12.30, hand-
av. kl. 13, spil/stóladans kl. 13.
Í framhaldi af raunum Fíu á Sandiút af sólarleysi, brúnkukremi
sem hljóp í kekki og áhugaleysi
karlmanna í framhaldi af því, varð
til þessi vísa hjá Sigurði Einarssyni:
Fljóðin um mig flykkjast prúð
og flest þau vilja með mér sprella.
Það gerir víst mín gullna húð,
gulbrún eins og kantarella.
Pétur Stefánsson yrkir í tilefni af
síðustu tíðindum frá Líbíu:
Í Líbíu er dansað dátt.
Dagur nýr er runninn.
Gleðiköllin glymja hátt;
Gaddafí er unninn.
Ágúst Marinósson tekur fregn-
unum með gát:
Í Líbíu nú lofar þjóð
en leysist nokkuð vandinn?
Áfram rennur einhvers blóð
oní gulan sandinn.
Ingimar Bogason var ágætur
hagyrðingur, þótt hann flíkaði því
ekki mikið. Hann orti í framhaldi af
gagnrýni á þjónustu og þrifnað í
Gránu, þar sem hann vann lengst
af:
Grána veitir góðan beina
gefur brauð, en ekki steina,
matgráðugum merarlýð.
Þjónustan er því í lagi
og þrifnaður af besta tagi
við kjaftaskúma stöðugt stríð.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Líbíu og steinum