Málfríður - 15.10.2007, Blaðsíða 11
MÁLFRÍÐUR 11
kostur á að ræða málin sín á milli, spyrja spurninga
og koma með athugasemdir. Nokkuð var einnig
fjallað um samvinnu nemenda í tímum og menn
skiptust á skoðunum og upplýsingum.
Okkar kona, Hulda Karen Daníelsdóttir var með
öfluga málstofu um fjölmenningu sem hún kallaði
Content, Method and Language: A Collage.
Með virkri þátttöku áheyrenda sýndi Hulda Karen
fram á hvernig tvinna mætti saman fjölmenningu,
samvinnunám og tungumálakennslu. Hún lagði
einnig sérstaka áherslu á mikilvægi þess að kenn
arar legðu sig fram við að skapa nemendum öruggt
og námshvetjandi umhverfi.
Mikilvægur þáttur á ráðstefnum og málþingum er
að kynnast fólki frá ýmsum þjóðum og bæði kvöldin
gafst tækifæri til þess. Fyrra kvöldið var boð í skól
anum með söng og dansatriðum hóps þjóðdansara
sem reyndu að fá mislipra gesti til að stíga léttan
dans við kátínu þeirra sem á horfðu. Seinna kvöldið
lauk ráðstefnunni með hátíðarkvöldverði á vinsæl
um veitingastað.
Svo skemmtilega vill til að næsta ráðstefna verður
á Íslandi árið 2010, þegar 25 ár eru liðin frá stofn
un STÍL en formlegur stofndagur var 17. október
1985 og í desember sama ár kom út fyrsta tölublað
Málfríðar.
Yfirskrift ráðstefnunnar er: „Hvað virkar”? – (What
works best for me and my students?). Nákvæm
tímasetning er ekki enn komin.
Stjórn STÍL skorar á félagsmenn að leita í eigin
ranni. Hver er að gera eitthvað sem virkar og vill
deila því með öðrum í vinnustofum? Vitið þið um
einhvern sem þið viljið benda á? Ekki er ráð nema í
tíma sé tekið, því tíminn líður svo fjarska hratt.
Í tengslum við ráðstefnuna var haldinn stjórnar og
svæðisfundur NBR.
Rannveig Reggested sem verið hefur formaður
undanfarin ár, gegnir þeirri stöðu til áramóta þegar
Raija Airio frá Finnlandi tekur við. Aðrir í stjórn eru
Diana Rumpite LALT ritari, Sigurborg Jónsdóttir
STÍL og meðstjórnendur koma frá SUKOL Finnlandi,
LMS Svíþjóð og LMS Noregi.
Á svæðisfundinum voru einnig fulltrúar frá
Dannmörku, Litháen og Eistlandi.
Hægt er að lesa fundargerðir frá stjórnar og svæð
isfundi NBR í Riga á heimasíðu STÍL sem komin er
í vistun hjá KÍ. Nýja slóðin er: www.ki.is/stil. Á
heimasíðunni eru ýmsir gagnlegir tenglar. Þórhildur
Oddsdóttir úr félagi dönskukennara er tekin við
umsjón síðunnar (www.tho@mk.is). Við þökkum
Írisi Mjöll Ólafsdóttur fyrrum umsjónarmanni góð
störf. Síðan hefur legið í léttum dvala en er nú öll að
koma til.
Hulda Daníelsdóttir heldur erindi í Riga.