Skessuhorn - 31.07.2013, Qupperneq 13
13MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2013
Ásgerður Pálsdóttir er fædd og
uppalin í Stykkishólmi og flutti um
síðustu áramót aftur heim í Hólm-
inn eftir 40 ára fjarveru. Nú býr
hún í húsinu þar sem hún fæddist.
Ásgerður er með psoriasis og seg-
ir vatnið í heitu pottunum í sund-
laug Stykkishólms einstaklega gott
fyrir sig. Hún fer í pottana á hverj-
um degi, en áður en hún flutti vest-
ur gerði hún sér ferð að sunnan
um hverja helgi. „Þetta er algert
undravatn. Ég hef verið með psori-
asis síðan ég var 12 ára gömul og
get verið rosalega slæm. Vatnið hér
er svo silkimjúkt og það afhreistr-
ar mig algerlega og manni líður al-
veg ofboðslega vel í öllum skrokkn-
um með því að vera í þessu vatni,“
segir Ásgerður.
Dásamar vatnið í
bak og fyrir
Vatnið, sem kemur úr borholu við
Hofsstaði, er að mörgu leyti sér-
stakt en það er basískt með pH
gildið 8,45. Það inniheldur einnig
mikið af uppleystum efnum eins og
natríumklóríð og kalsíumsölt. Árið
2001 fékk vatnið vottun frá Insti-
tut Fresenius stofnuninni sem sér-
hæfir sig í vatns- og umhverfisvott-
unum. „Mér hefur fundist skrýt-
ið að ekki hafi verið gert meira úr
þessu. Það er engin aðstaða til að
taka fólk í meðferð, en það þarf að
koma þessu meira í loftið. Ég hef
farið mikið í Bláa lónið og á ýms-
ar stofnanir. Bláa lónið er mjög gott
til síns brúks en helst þarf að vera
nálægt svæðinu. Áður fyrr fór ég
að Hofsstöðum þar sem borholan
veitir vatni ofan í fiskiker sem þar
voru. Ég segi alltaf að þetta sé eð-
alvatn og ég nýt þess að vera kom-
in heim og geta farið í vatnið nán-
ast þegar ég vil. Ef það eru útlend-
ingar í pottunum sit ég þar eins og
malandi vél og dásama vatnið í bak
og fyrir,“ segir Ásgerður.
Best er fyrir fólk að skola hvorki
né þurrka Hofsstaðavatnið af sér,
en það er talið vera bót á mörg-
um kvillum. „Vatnið er sérlega gott
fyrir psoriasis sjúklinga, en það er
líka gott fyrir fólk með liðavanda-
mál og annað. Langbest er að fara í
vatnið í pottunum, ekki fara í sturtu
á eftir eða þurrka það af sér, heldur
láta það þorna úti. Þetta er kenning
sem hefur verið uppi alveg frá því
að fólk byrjaði að fara í vatnið og ég
fer aldrei í sturtu eftir að hafa far-
ið í vatnið. Ég get ekki farið í klór
því hann er mjög óhagstæður fyrir
mína húð og annarra.“
Leiðinlegur sjúkdómur
Ásgerður hefur mætt fordómum
vegna sjúkdómsins en hún segir
heimamenn yfirleitt vel meðvitaða
um að psoriasis sé ekki smitandi.
„Fólk er oft mjög hrætt við þennan
sjúkdóm og heldur að maður sé að
smita. Ég hef upplifað að fólk fari
úr pottinum þegar ég kem ofan í
hann. Reyndar gera Hólmarar það
ekki, þeir vita nákvæmlega um hvað
málið snýst. Ég var eitt sinn spurð
á leið í pottinn hvort ég mætti fara
í hann yfirhöfuð og ég sagði jájá,
ég er að koma og fá mér lækningu.
Fólkið yfirgaf hins vegar pottinn,“
segir Ásgerður.
Hún fékk sjúkdóminn, sem er
ættgengur, ung að aldri og þurfti
snemma að læra að lifa með hon-
um. „Þegar þú greinist með psori-
asis 12 ára gömul verður þú að vera
meðvituð um að læra að lifa með
þessu mjög snemma. Annars verður
maður brjálaður. Þetta getur tekið
svolítið á, þetta drepur engan en er
óskaplega leiðinlegur sjúkdómur,“
segir Ásgerður að endingu. sko
Hofsstaðavatnið í Stykkishólmslaug hefur hlotið vottun og er talið bæta marga
kvilla á borð við psoriasis.
Fer í pottana á hverjum degi
Rætt við Ásgerði Pálsdóttur í Stykkishólmi
Ásgerður Pálsdóttir í Stykkishólmi.