Skessuhorn - 31.07.2013, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2013
Pennagrein
Sigurður Jónsson, járnsmiður og
kaupmaður, var fæddur á Hliðsnesi
á Álftanesi syðra, 27. október 1843.
Hann lést 27. maí 1935. Sigurður var
stundum nefndur klénsmiður, en það
orð mun komið úr þýsku –kleinsch-
mied- sem merkir fínsmiður á járn,
gat t.d. verið lásasmiður en Sigurður
var annálaður smiður, einkum á járn.
Hann bjó á Akranesi 1888-1892, en
þá flutti hann aftur til Reykjavíkur.
Árið 1889, þegar hann bjó á Akranesi,
kaupir hann það sögufræga Hoff-
mannshús, þá 45 ára gamall. Kona
hans var Guðrún Jónsdóttir, einnig
45 ára. Hjá þeim voru þá þessi börn
þeirra: Ingólfur 15 ára, Sigurður 12
ára og Guðrún 6 ára.
Kaupmaður og
frumkvöðull í
Hoffmannshúsi
Sigurður járnsmiður var mikill mynd-
ar- og dugnaðarmaður og fram-
kvæmdasamur. Hann fékkst hér dá-
lítið við verslun, einnig járnsmíði,
og hann var fyrsti maður sem setti á
fót bakarí á Akranesi og byggði í því
skyni sérstakt hús, rétt fyrir vestan
Hoffmannshúsið. Hann lagði talrör
milli bakarís og búðar til að auðvelda
samskiptin. Sigurður gróf brunn í
kjallara íveruhússins og lagði vatnsrör
úr honum upp í eldhús og dældi vatn-
inu upp. Er það fyrsta vatnsleiðsla og
dæla sem sett var upp hér á Akranesi.
Hann lagði einnig skólprör út úr hús-
inu, sem var nýjung í þorpinu.
Hann réði til sín útlærðan bakara
úr Reykjavík til þess að kenna Ing-
ólfi syni sínum, sem hann mun hafa
sérstaklega ætlað að reka brauðgerð-
arhúsið. Af ástæðum sem ekki eru
kunnar seldi Sigurður Hoffmanns-
húsið 1891, og flutti aftur til Reykja-
víkur árið 1892. Sagt var að Sigurður
hafi verslað töluvert og borist allmik-
ið á. Hann var víkingur að hverju sem
hann gekk, en ekki alltaf einhamur og
þótti sumum erfitt að þola skap hans.
Í nokkrum heimildum kemur fram
að Sigurður hafi keypt bakarí af Bene-
dikt St. Bjarnasyni, fæddum á Ísafirði
1859, en látnum 1918. Benedikt var
í Hoffmannshúsi 1893-94, og er þá
bakari, líklega fyrsti bakarinn sem
sest að á Akranesi. Benedikt átti son,
Júlíus, sem fæddur var í Georgshúsi á
Akranesi 4. júlí 1894, en hann dó 2.
nóvember 1962. Júlíus var kvæntur
Sigríði Sigríksdóttur, Eiríkssonar frá
Krossi; hann var sjómaður í Ívarshús-
um 1930-40, síðan í Reykjavík. Sonur
þeirra var Benedikt B. Júlíusson, sem
margir eldri Skagamenn kannast við,
f. 1929, og átti heima á Akranesi til
1958, síðast á Vesturgötu 67, að hann
flutti til Reykjavíkur. Hann var húsa-
smíðameistari.
Yfirsmiður fyrsta vitans á
Akranesi
En aftur að Sigurði frá Hliðsnesi. Í
fundargerð Æfingafélagsins á Akra-
nesi frá 26. des. 1889 kemur m.a.
fram að „fundarmenn hafi látið í ljósi
þá ósk sína að fundarmaðurinn frá
Hoffmannshúsi, Sigurður kaupmað-
ur Jónsson gjöri áætlun um kostnað
við byggingu fyrsta vitans á Akranesi,
og taki verkið jafnframt að sér“. Hér
var sem sagt um að ræða fyrsta vísi að
vita á Akranesi, svokölluðum vörðu-
vita eða fiskimannavita sem reistur
var á Teigakotslóð og kveikt var á árið
1891. Hér sést að Akurnesingar hafa
treyst Sigurði manna best til að smíða
og reisa þetta mannvirki.
Forgöngumaður að
Vélsmiðjunni Héðni
Eftir að Sigurður flytur til Reykja-
víkur árið 1892, þá eignast hann hús-
ið Aðalstræti 6, Jónassenshús, og lét
hann byggja hæð ofan á það. Einnig
reisti hann járnsmiðju á baklóð þess
árið 1896 og aðra árið 1903, og var
hann skráður eigandi að Aðalstræti
6A og 6C árið 1910. Árið 1901 eign-
aðist Bjarnhéðinn Jónsson, járnsmið-
ur bakhúsið Aðalstræti 6B, sem Sig-
urður hafði reist, og var skráður þar
til heimilis árið 1910 og hafði þar vél-
smiðju, sem var upphaf að Vélsmiðj-
unni Héðni. Bjarnhéðinn stund-
aði nám hjá Sigurði Jónssyni og fékk
sveinsbréf í járnsmíði árið 1899. Árið
1900 keypti hann smiðjuna af Sig-
urði og rak hana til æviloka í Aðal-
stræti 6B, þar sem hann bjó einnig.
Eftir lát Bjarnhéðins, 31. des. 1920,
keyptu Markús Ívarsson og Bjarni
Þorsteinsson smiðjuna af ekkjunni og
nefndu hana Vélsmiðjuna Héðinn til
minningar um Bjarnhéðinn, en hann
lést í Reykjavík í árslok 1920. Traust-
ir hornsteinar hvíldu þannig und-
ir stofnun „Héðins“ í elsta iðnaðar-
hverfi landsins, þar sem Skúli fóg-
eti Magnússon staðsetti „Innrétting-
ar“ sínar 170 árum áður. Árið 1951
var húsið í Aðalstræti 6A flutt í Efsta-
sund 99, en talið er að það hafi verið
byggt 1825. Á þessu svæði, við Aðal-
stræti, var síðar reist háhýsi það sem
gengið hefur undir nafninu „Morg-
unblaðshöllin“.
Fremstur í járnsmíði á
Íslandi á sinni tíð
Sigurður Jónsson vann um skeið í
verksmiðjum Burmeister & Wain í
Kaupmannahöfn, en eftir að hann
flutti í Aðalstræti 6, bjó hann vél-
smiðju sína þeim bestu tækjum sem
þekkst höfðu hér á landi. Hann
var mjög þjóðhagur og vafalaust sá
fremsti í sinni iðngrein hér á landi.
Lagði hann einkum stund á fínni járn-
smíði, viðgerðir á vélum o.fl. Einn-
ig fékkst hann við stærri verkefni, t.d.
smíðaði hann fyrstu brýrnar yfir El-
liðaárnar og gerði miklar endurbæt-
ur á Reykjanesvita, sem þótti mik-
ið mannvirki í þá daga. Sigurður var
einn af stofnendum og meðeigendum
fyrsta gufubátafélagsins við Faxaflóa
og tók þátt í ýmsum öðrum fyrirtækj-
um. Var einn af stofnendum Iðnað-
armannafélags Reykjavíkur 3. febrú-
ar 1867 og lifði lengst allra þeirra er
félagið stofnuðu. Vinir hans minnast
hans svo í minningargrein: „Hann var
maður hár vexti og fríður sýnum og
hinn höfðinglegasti ásýndum, hann
var stilltur í lund, en þó þykkjuþung-
ur, eins og göfugra manna er háttur,
varð hann þeim mun betri, sem hann
varð eldri“.
Púltið, Skrínan eða
Skattholið
Áður en Sigurður flutti til Akraness,
þá bjó hann í því sögufræga húsi,
Vesturgötu 16B í Reykjavík, en það
hús byggði Sigurður árið 1882, úr
viði fengnum úr strandskipinu „Jame-
stown“ (sjá Lesbók Mbl. 1/11 1936:
Silfurfarmur á sjávarbotni í Höfn-
um eftir Ólaf Ketilsson). Í húsinu
hafði hann smiðju sína og bjó hann
þar einnig, eða þar til húsið komst í
eigu Benedikts Gröndals skálds, en
eftir það gekk húsið undir nafninu
Gröndalshús. Húsið þótti sérkenni-
lega byggt. Það er tvílyft að framan
og einlyft að aftan. Vegna þess gekk
það undir ýmsum nöfnum, svo sem
Púltið, Skrínan eða Skattholið. Bene-
dikt Gröndal bjó í húsinu við Vestur-
götu 16B til dauðadags, en hann lést
árið 1907, rúmlega áttræður að aldri.
Benedikt skrifaði m.a. ævisögu sína
Dægradvöl í húsinu. Kona Benedikts
var Ingigerður Tómasdóttir Zoëga,
sem fædd var í Garðhúsum hér á
Akranesi, en faðir hennar Tómas
Zoëga byggði Garðhúsin árið 1845,
eða sama ár og Ingigerður fæddist.
Fyrirhugað var að flytja Gröndalshús-
ið í Árbæjarsafn, en horfið var frá því;
var húsið flutt út á Granda þar sem
það var endurgert á vegum minja-
verndar Reykjavíkurborgar. Helst er
hugað að því að flytja þetta sögufræga
hús, sem Sigurður á Hliðsnesi reisti,
upp í Grjótaþorp, þar sem það fær að
njóta sín innan um önnur gömul og
sögufræg hús.
Vélsmiðjan Héðinn hf.
Vélsmiðjan Héðinn hóf starfsemi
sína í núverandi mynd fyrir u.þ.b. 90
árum, þ.e. 1. nóvember 1922. Eins og
áður sagði var hún stofnuð af þeim
Bjarna Þorsteinssyni vélfræðingi og
Markúsi Ívarssyni vélstjóra, en leiðir
þeirra félaga höfðu legið saman í vél-
smiðjunni Hamri. Og eins og áður
sagði þá keyptu þeir smiðju þá sem
Bjarnhéðinn Jónsson hafði starfrækt
í Aðalstræti 6B frá því um aldamótin.
Gáfu þeir hinu nýja félagi nafnið Héð-
inn til virðingar þessum ágæta iðnað-
armanni. Bjarnhéðinn hafði keypt
smiðjuna af læriföður sínum, Sig-
urði Jónssyni frá Hliðsnesi, en hann
fékk leyfi til að reisa smiðju á lóðinni
nr. 6 við Aðalstræti árið 1895. Um-
svif vélsmiðjunnar Héðins urðu mjög
umfangsmikil næstu árin og áratug-
ina, og of langt upp að telja hér. Árið
1937 sá Héðinn um að reisa þrjár
síldarverksmiðjur, m.a. verksmiðjuna
á Akranesi. Verksmiðjan á Akranesi
var endurbyggð árið 1948 og sama ár
var síldar- og fiskimjölsverksmiðjan
að Kletti við Reykjavík byggð. Báðar
voru verksmiðjur þessar útbúnar með
síldarpressum og öðrum tækjum frá
Héðni. Fyrsta íslenska frystivélin var
hönnuð og smíðuð af vélsmiðjunni
Héðni hf. upp úr 1950 og var hún sett
upp í frystihúsinu Heimaskaga hf. á
Akranesi árið 1954. Í dag er Héð-
inn hf. eitt stærsta fyrirtæki landsins
í málmiðnaði og véltækni með 120
starfsmenn. Höfuðstöðvar fyrirtækis-
ins eru í Hafnarfirði, en einnig rekur
Héðinn þjónustuverkstæði á Grund-
artanga í Hvalfjarðarsveit.
Sonur byggðarinnar
Þótt Sigurður Jónsson frá Hliðsnesi
hafi hvorki geta talist Akurnesingur
né að hann hafi búið hér lengi, aðeins
i fjögur ár, þá skilur hann eftir sig djúp
og áhrifamikil spor í sögu byggðar-
innar. Hann stjórnaði af festu smíði
og uppsetningu fyrsta vitans á Akra-
nesi, en vitarnir áttu eftir að reynast
sæfarendum góð leiðsögutæki, og vís-
uðu þeim rétta leið og heila í höfn. Þá
keypti Sigurður það merka hús, Hoff-
mannshúsið, byggði fyrsta bakaríið á
Akranesi, og í framhaldi af því útbjó
hann húseignir sínar með nýjum og
áður óþekktum útbúnaði, en það
voru nýungar sem áttu eftir að ryðja
sér til rúms á næstu árum. Þá kem-
ur í ljós að Sigurður hefur á lands-
vísu haft ómæld áhrif í verklegum
framkvæmdum, sem leiddu til mikilla
framfara fyrir land og þjóð.
Ásmundur Ólafsson tók saman.
Heimildir: Ólafur B. Björnsson: Saga Akraness
og blaðið Akranes 1952, Mbl.-gagnasafn, Þor-
steinn Jónsson, Reykvíkingar 2011, Borgfirzk-
ar æviskrár o.fl.
Sigurður Jónsson frá Hliðsnesi - örlagavaldur á Akranesi
Götulífsmynd frá Aðalstræti í Reykjavík frá 1901. Myndin er tekin til suðurs.
Á horni Aðalstrætis og Austurstrætis til vinstri er verið að leggja lokahönd á
mikla stækkun Hótel Íslands (vinnupallar). Við enda götunnar er Klúbbhúsið og
Spítalinn. Næst til hægri er Aðalstræti 2, þá Duusport og svo tvílyft hús Sigurðar
Jónssonar, járnsmiðs, Aðalstræti 6 (Árið 1951 var húsið í Aðalstræti 6A flutt í
Efstasund 99). Á þessu svæði var Morgunblaðshöllin reist síðar.
Feðgar og uppfinningamenn á ferð: Sigurður Jónsson frá Hliðsnesi og sonur hans
Oddur Vigfús Sigurðsson, hugvitsmaður í Lundúnum. Oddur er sá sem seldi Einari
Benediktssyni vatnsréttindin (Dettifoss, Goðafoss m.m.).
Fræg hús á Akranesi: Bakaríið sem Sigurður reisti 1889-90 til vinstri. Talrörið
liggur milli þess og Hoffmannshússins til hægri. Auk þess sést í „Læknishúsið“ sem
var byggt 1896 af Guðmundi Jakobssyni, kirkjusmið fyrir Ólaf Finsen, héraðs-
lækni. Til hægri við það er „Georgshús“ (Vertshúsið), byggt 1883 af Georg Thor-
steinssyni, sem drukknaði í Hoffmannsveðrinu 1884. Georgshús var lengi stærsta
hús á Akranesi. Þau urðu örlög húsanna að Hoffsmannshúsið brann til kaldra
kola 15. apríl 1946. Georgshús var flutt að gatnamótum Vesturgötu og Vallholts
í kringum 1960; það var rifið 1970 og voru viðir úr því notaðir í útihúsabyggingar
á bænum Gröf á Hvalfjarðarströnd. Læknishúsið stendur enn og er nr. 40 við
Vesturgötu. Myndin er tekin úr kartöflugarðinum fyrir neðan Halldórshús, þar
sem nú eru bílastæði við Bíóhöllina. Ljósm. af www.haraldarhus.is Myndasmiður
óþekktur.