Skessuhorn - 31.07.2013, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2013
Hvað ætlar þú að gera um
verslunarmannahelgina?
Kolbeinn Hróar Búason
Fer á Þjóðhátíð í Vestmanna-
eyjum.
Hrafn Darri Guðbjörnsson
Fara í sumarbústað.
Valfríður Guðmey Haralds-
dóttir
Sigla á Breiðafirði.
Marín Rós Eyjólfsdóttir
Hafa það kósý heima.
Spurning
vikunnar
(Spurt á sumarhátíð vinnuskólans í
Garðalundi, Akranesi)
Hilmar Harðarson frá Hamri við
Grundarfjörð náði þeim merka
áfanga sl. fimmtudag að verða
heimsmeistari í crossfit í flokkn-
um masters 55-59 ára á heimsleik-
unum í íþróttinni sem fram fara í
Kaliforníu í Bandaríkjunum. Hilm-
ar var með 523 stig í efsta sæti en
næsti maður var í öðru sæti með 514
stig. Hilmar er búsettur í Kópavogi
og æfir íþrótt sína í Sporthúsinu.
Hann er 56 ára að aldri og starfar
sem sjómaður. Samkvæmt heimild-
um Skessuhorns hafði hann enga
reynslu af íþróttum áður en hann
byrjaði að leggja stund á crossfit og
því má með sanni segja að árang-
ur hans sé hinn glæsilegasti. Áður
hafði Hilmar sigraði í flokknum
50+ á Íslandsmóti eldri CrossFitt-
ara 2013 sem haldið var í og við
salarkynni CrossFit Sport í Kópa-
vogi í lok júní sl. Skessuhorn ósk-
ar Hilmari til hamingju með árang-
urinn.
sko
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golf-
klúbbnum Leyni á Akranesi hafn-
aði í 5. sæti á Íslandsmótinu í högg-
leik sem fram fór á Korpúlfsstaða-
velli í Reykjavík. Mótið hófst á
fimmtudaginn og stóð yfir fram á
sunnudag, en leiknar voru 72 hol-
ur. Valdís deildi forystusætinu fyr-
ir lokadaginn með Guðrúnu Brá
Björgvinsdóttur Golfklúbbnum
Keili í Hafnafirði og var lengi vel
í toppsætinu meðan á lokahringn-
um stóð. Slæmur endir á lokahol-
unni varð hins vegar til þess að hún
varð að sætta sig við 5. sætið. Alls
lék hún hringana fjóra á 300 högg-
um sléttum eða tólf höggum yfir
pari. Sigurvegari í kvennaflokki eft-
ir bráðabana varð Sunna Víðisdótt-
ir úr Golfklúbbi Reykjavíkur.
Í karlaflokki sigraði Skagamaður-
inn Birgir Leifur Hafþórsson sem
leikur fyrir Golfklúbb Kópavogs og
Garðabæjar á 274 höggum, eða tíu
undir pari. Þetta er í fimmta sinn
sem Birgir Leifur hampar Íslands-
meistaratitlinum. Bjarki Pétursson
Golfklúbbi Borgarness stóð sig best
af vestlenskum keppendum í karla-
flokki en hann hafnaði í 10. sæti á
289 höggum eða fimm yfir pari.
Þetta er besti árangur Bjarka í Ís-
landsmótinu. Rafn Stefán Rafnsson
úr GB lenti í 21. sæti á 13 höggum
yfir pari og þá hafnaði Hlynur Þór
Stefánsson, einnig úr GB, í 75. sæti
á 324 höggum.
hlh / Ljósm. Golfsamband Íslands.
Jófríður Ísdís Skaftadóttir frá Akra-
nesi varð á sunnudaginn Íslands-
meistari í kringlukasti á Meist-
aramóti Íslands í frjálsum íþrótt-
um sem fram fór á Akureyri um
helgina. Jófríður, sem er aðeins 15
ára gömul og keppir fyrir FH, kast-
aði kringlunni 38,42m og sló í leið-
inni 21 ára gamalt aldursflokkamet
hjá 15 ára stúlkum, en gamla met-
ið var 38,20m. Gamla metið átti
annar Vestlendingur, Hanna Krist-
ín Lind Ólafsdóttir UMSB sem sett
var í ágúst árið 1992.
jsb
Lið ÍA lék tvo leiki í liðinni viku.
Í fyrri leiknum sigraði liðið Hauka
frá Hafnarfirði á Akranesvelli 2:1
sl. föstudag þegar leikið var í 10.
umferð A-riðils 1. deildar kvenna í
knattspyrnu. Fyrri hálfleikur leiks-
ins var fremur tíðindalítill og var
markalaust í hálfleik. Haukakon-
ur náðu síðan forystunni um mið-
bik seinni hálfleiks með marki á 69.
mínútu frá Sæunni Sif Heiðarsdótt-
ir. Forskot þeirra rauðklæddu varði
þó ekki lengi því Skagakonur bættu
um betur á skoruðu tvö mörk með
stuttu millibili fáeinum mínútum
síðar. Guðrún Karítas Sigurðar-
dóttir jafnaði leikinn á 76. mínútu
fyrir heimamenn og mínútu síðar
kom Unnur Ýr Haraldsdóttir lið-
inu yfir. Ekki voru fleiri mörk skor-
uð í leiknum og sigurinn því Skaga-
kvenna.
Á mánudaginn mættu Skagakon-
ur ÍR á Hertz-vellinum í Breiðholti
í 11. umferð þar sem annar sigur
vannst, 0:4. Mættu þær gulklæddu
mun ákveðnari til leiks og voru
þær Guðrún Karítas Sigurðardótt-
ir og Emilía Halldórsdóttir búnar
að skora sitthvort markið eftir 25.
mínútna leik. Guðrún Karítas full-
komnaði svo þrennu sína í leikn-
um þegar hún bætti öðrum tveim
mörkum við skömmu áður en flaut-
að var til hálfleiks og staðan því
orðin 0:4 fyrir ÍA. Seinni hálfleik-
ur var mun rólegri og engin mörk
voru skoruð. Frábær fyrri hálfleik-
ur dugði Skagakonum því til sigurs.
ÍA er nú í öðru sæti riðils síns með
31 stig, jafn mörg og topplið Fylk-
is sem er með betri markatölu og á
tvo leiki til góða.
Frábær stemmning í
hópnum
Með sigrinum á ÍR tryggðu Skaga-
konur sér þátttöku í úrslitakeppni 1.
deildar kvenna, þar sem þær munu
keppa um sæti í efstu deild fyrir
næsta tímabil. Að sögn Guðrúnar
Þorbjargar Sturlaugsdóttur hefur
gengi liðsins á tímabilinu verið gott
en það hefur aðeins tapað tveimur
leikjum og gert eitt jafntefli. „Þetta
er búið að ganga ágætlega í sumar,
aðeins upp og niður, en gott að við
séum búnar að tryggja okkur í úr-
slitakeppnina. Það er búið að vera
mikið álag á okkur og sérstaklega á
þeim stelpum sem eru líka að spila
með öðrum flokki. Þetta er hins
vegar bara svo ógeðslega gaman
og það er svo frábær stemmning í
hópnum sem fleytir okkur áfram.
Það eru samt enn þrír leikir eftir
af mótinu fram að úrslitakeppninni
og stefnum við á að sigra þá alla og
sömuleiðis úrslitakeppnina og spila
í Pepsídeildinni næsta sumar,“ sagði
Guðrún Þorbjörg.
Næsti leikur ÍA er á fimmtudag-
inn 8. ágúst þegar þær mæta Víking
Ólafsvík í Vesturlandsslag á Akra-
nesvelli. hlh/jsb
Kvennalið ÍA tryggði sér sæti
í úrslitakeppninni
Eitt af þeim mörkum sem ÍA skoraði gegn Haukum á Akranesvelli á sl. föstudag.
Ljósm jsb.
Guðrún Þórbjörg Sturlaugsdóttir,
fyrirliði ÍA.
Valdís Þóra Jónsdóttir GL.
Íslandsmótið í golfi fór
fram um helgina
Sigurvegar mótsins, þau Sunna Víðisdóttir GR og Birgir Leifur Hafþórsson GKG.
Jófríður Ísdís Skaftadóttir.
Jófríður Ísdís
varð Íslands-
meistari í
kringlukasti
Hilmar Harðarson heimsmeistari í
Crossfit 55-59. Ljósm. games.crossfit.
com.
Grundfirðingur
heimsmeistari í
crossfit
Dóra Marín Karvelsdóttir
Fara á Akureyri með vinkonum
mínum.