Skessuhorn - 31.07.2013, Síða 27
27MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2013
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Örugg viðskipti í 30 ár
Smiðjuvellir 17, Akranesi
Sími 431-2622
www.bilas.is
bilas@bilas.is SKE
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Söluaðilar á
Vesturlandi fyrir:
Seljum allar gerðir bíla
Nýja og notaða
FÓLKSBÍLA – ATVINNUBÍLA
FERÐABÍLA – VAGNA
Sýningabílar
á staðnum
Sameiginlegt lið Snæfells og
Geislans tapaði 3:1 gegn liði
Kormáks/Hvatar á Hvamms-
tangavelli á laugardaginn í 11.
umferð B-riðils 4. deildar karla
í knattspyrnu. Heimamenn voru
betri aðilinn í leiknum og kom-
ust í þriggja marka forystu áður
en Gunnar Páll Einarsson náði
að minnka muninn fyrir Snæ-
fell/Geislann á 87. mínútu.
Lengra komust gestirnir ekki og
lokatölur því 3:1 fyrir Húnvetn-
inga. Snæfell/Geislinn situr á
botni riðilsins eftir leikinn með
fjögur stig. Næsti leikur liðins er
gegn KB 10. ágúst nk. á Stykkis-
hólmsvelli.
jsb
Skagamenn mættu Val á útivelli á
mánudaginn í hreint ótrúlegum leik
í 13. umferð Pepsi deildar karla í
knattspyrnu. Leikurinn endaði 6:4
fyrir Val. Fyrri hálfleikur var væg-
ast fjörugur, Valsmenn komust yfir
á 15. mínútu en ÍA jafnaði á strax
á 17. mínútu þegar Ármann Smári
Björnsson skoraði með skalla. Garð-
ar Bergmann Gunnlaugsson kom
Skagamönnum síðan yfir eftir sam-
spil fimm mínútum síðar. Forystan
var þó skammvinn því Valur jafnaði
á 24. mínútu. Fyrirliði Skagamanna,
Jóhannes Karl Guðjónsson, kom
sínum mönnum loks aftur yfir á 32.
mínútu. Áður en fyrri hálfleikur var
allur náðu Valsmenn hins vegar að
skora tvö mörk sem tryggði þeim
forystu á nýjan leik. Staðan í hálf-
leik 4:3 fyrir heimamenn.
Seinni hálfleikur var allt annar
leikur en sá fyrri. Lítið var að ger-
ast framan af og virtust bæði lið
þreytt eftir atgang fyrri hálfleiks. Á
75. mínútu bættu Valsmenn síðan
við enn einu markinu. Skagamenn
gáfust þó ekki upp og á 89. mínútu
skoraði Garðar Bergmann sitt ann-
að mark í leiknum eftir hreint ótrú-
legan undirbúning frá Jóhannesi
Karli. Lokamínúturnar einkennd-
ust af töluverðri baráttu og reyndu
Skagamenn hvað þeir gátu til þess
að jafna leikinn. Barátta þeirra bar
ekki árangur því Valsmenn komust í
sókn og skoruðu tíunda mark leiks-
ins á 92. mínútu. Ekki voru fleiri
mörk skoruð og lokatölur því 6:4
fyrir Val.
ÍA er því áfram með sjö stig í
deildinni og vermir liðið 11. sæt-
ið. Næsti leikur Skagamanna verð-
ur 11. ágúst þegar liðið mætir Fram
á Laugardalsvelli. jsb
Grundarfjörður og Magni frá
Grenivík áttust við á föstudag-
inn á Grundarfjarðarvelli í 12.
umferð 3. deildar karla í knatt-
spyrnu. Mikill fjöldi áhorfenda
var á vellinum og góð stemmn-
ing. Töluvert var í húfi, enda
bæði lið í fall sætum, og bar leik-
urinn þess merki í fyrri hálfeik.
Liðin léku fremur varfærnislega
og gerðist fátt markvert. Staðan í
leikhléi var 0-0.
Í síðari hálfleik náðu Magna-
menn óvænt forystunni með
marki úr aukaspyrnu á 54. mín-
útu. Aðeins sjö mínútum síðar,
eða á 61. mínútu, geystist mið-
vörðurinn Dominik Bajda upp
allan völlinn fyrir Grundfirðinga
og fékk góða stungusendingu inn
fyrir vörn gestanna og afgreiddi
boltann snyrtilega í netið og jafn-
aði þar með leikinn fyrir heima-
menn. Markið gaf Grundfirðing-
um byr undir báða vængi og voru
þeir ívið hættulegri í sínum að-
gerðum heldur en gestirnir það
sem eftir lifði leiks. Sigurmark
heimamanna leit hins vegar ekki
dagsins ljós og því lauk leiknum
með 1-1 jafntefli. Liðin sitja því
áfram á sama botnsstað í deild-
inni en hafa nú 7 stig - Magni í
10. sæti en Grundarfjörður í 9.
sæti.
Næsti leikur Grundfirðinga
fer fram 10. ágúst nk.þegar liðið
mætir KFR á Hvolsvelli.
tfk
Káramenn frá Akranesi töp-
uðu 5:0 gegn Leikni á Fáskrúðs-
firði á laugardaginn í 3. deild
karla í knattspyrnu. Aðeins 14
leikmenn voru í leikmannahópi
Kára sem hélt austur og var með-
al annars gamla fótboltakempan
Valdimar K. Sigurðsson þjálfari
liðsins í byrjunarliðinu. Leikn-
ismenn komust yfir á 39. mín-
útu og voru með eins marks for-
ystu í hálfleik. Þegar tíu mínút-
ur voru eftir af venjulegum leik-
tíma hrundi hins vegar leikur
Káramanna og fengu þeir fjög-
ur mörk á sig með stuttu milli-
bili. Eftir leikinn er Kári í 8. sæti
deildarinnar með níu stig, tveim-
ur stigum meira en lið Grund-
arfjarðar og Magna frá Greni-
vík sem verma fallsæti hennar.
Næsti leikur Kára er föstudag-
inn 9. ágúst nk. gegn Augnablik
á Akranesvelli.
jsb
Lið Skallagrímsmanna í B-riðli
4. deildar karla í knattspyrnu
þurfti að sætta sig við 0:1 tap
gegn liði KH úr Reykjavík á
Skallagrímsvelli í Borgarnesi sl.
miðvikudag. Gestirnir skoruðu
mark sitt strax á 10. mínútu og
héldu forskoti sínu allan leik-
inn. Borgnesingar voru aftur á
móti mun meira með boltann í
leiknum og sóttu stíft að marki
gestanna en án árangurs. Lið-
ið féll því niður í 6. sæti B-rið-
ils við tapið og hefur áfram ell-
efu stig. Næsti leikur liðsins fór
fram í gærkvöldi gegn liði Skín-
andi í Garðabæ en Skessuhorn
var farið í prentun áður en leik-
urinn hófst.
hlh
Lið Víkings Ólafsvík gerði 1-1 jafn-
tefli við lið Stjörnunnar frá Garða-
bæ í kvöld á Ólafsvíkurvelli í 13.
umferð Pepsi deildar karla í knatt-
spyrnu. Gott veður var á leiknum
og mæting góð, um 800 áhorfend-
ur. Ólsarar voru fyrri til að skora í
leiknum, eða á 17. mínútu, og var
þar á ferðinni Alfreð Már Hjaltalín
eftir slæm mistök Daníels Laxdals
leikmanns Stjörnunnar. Heima-
menn hresstust all verulega við
þetta og voru ívið meira með bolt-
ann fram eftir hálfleiknum, án þess
þó að skapa sér nægjanlega góð
marktækifæri.
Hið sama var upp á teningnum í
seinni hálfeik. Til tíðinda dró hins
vegar á 75. mínútu þegar Garð-
ar Jóhannsson jafnaði leikinn fyr-
ir Garðbæinga. Gestirnir voru til
alls líklegir eftir jöfnunarmarkið
en það breyttist á 85. mínútu þegar
leikmaður þeirra, Hörður Árnason,
fékk beint rautt spjald eftir tveggja
fóta tæklingu. Víkingar náðu ekki
að nýta sér liðsmuninn og litu fleiri
mörk ekki dagsins ljós. Urðu liðin
því að gera sér jafntefli að góðu.
Víkingar eru þar með komnir
með tíu stig og eru sem stendur í
10. sæti Pepsi deildarinnar. Næsti
leikur liðsins fer fram að verslunar-
mannahelgi lokinni, eða miðviku-
daginn 7. ágúst, þegar liðið leikur
gegn Keflavík á útivelli. hlh
Dominik Bajda fagnar marki sínu í leiknum.
Jafntefli hjá Grundfirðingum
Nokkrar breytingar hafa orðið
á liðum ÍA og Víkings Ólafsvík
undanfarna viku. Hjá ÍA er Jan
Mikael Berg farinn frá félaginu
og þá hefur Aron Ýmir Péturs-
son verið lánaður til Þróttar í
Reykjavík. Skagamenn eru einn-
ig með spænskan leikmann á
reynslu en ekki hefur verið sam-
ið við hann ennþá. Ólafsvíking-
ar hafa síðan bætt við sig einum
nýjum leikmanni, Juan Manuel
Torres Tena og er hann fimmti
Spánverjinn sem gengur í þeirra
raðir á tímabilinu. Leikmanna-
skiptaglugginn lokar á miðnætti
í kvöld og gætu því einhverjar
fleiri breytingar átt sér stað hjá
liðinum. jsb
Nýir leikmenn í
Víking og ÍA
Guðmundur Magnússon
skallar boltanum af krafti.
Ljósm. af.
Víkingur gerði jafntefli við Stjörnuna
ÍA tapar í markaleik á Hlíðarenda
Hólmarar tapa á
Hvammstanga
Skallagrímur
tapaði
Káramenn
töpuðu
stórt