Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 62

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 62
VOLKER BRAUN smeygt sér úr skónum og staðið kyrr, beðið, hvort hún vaknaði: en henni hafði ekki dottið það í hug í draumnum. Hann hafði getað gengið inn í herbergið hennar, en inn í svefn hennar - þá hefði honum hlotið að líka æðislega við hana, það var ekki tilfellið; hann hafði skilið næringuna eftir og læðst ánægður út. Daginn eftir hafði hann aftur komið að henni blundandi endilangri og hann hafði afklæðst snarlega og mjakað sér undir brúnina á teppinu. Hann hafði fært líkama sinn nær hlýju baki hennar uns bilið nam lengd limsins, umlokið nakinn sitjandann með fæti og hnésbót og haldið hendinni, sem hann lá ekki á, yfir svefnvotu andlitinu og rétt skynjað hárdúninn. Luise hafði opnað augun einu sinni (augnhárin stungu hann í fingurgómana) en andað áfram hryglukennt í örþreyttum svefni. Honum hafði orðið kalt á nöktum mjóhryggnum og þrátt fyrir að hann hafði mátt minnka bilið var hann brátt orðinn gegnkaldur, hann hafði sest upp, höfuð hennar við fætur hans, munnur hennar opinn, varirnar naktar. Til að sleppa úr vesöld sinni hefði hann orðið að beita Luise valdi en hann hafði skort hinn grófa kjark. Hann hafði aðeins vaktað svefn hennar og við tilhugsunina fundið til blíðu sem hann bar út úr hellinum eins og ránsfeng. Torgið - þetta risastóra torg þar sem hann var - hafði í raun og sann verið sneisafullt einn daginn. Þennan sólríka kalda laugardag hafði leyfileg kröfu- ganga fyrir prent- og skoðanafr elsi flætt yfir þetta stóra svæði með óleyfilega kröfuborða og kaldhæðin spjöld. Milli Húss bókarinnar, Húss kennarans og Húss ferðamannsins (ruglanda olli að það var fjallað um hættulegustu málefni landsins í opinberum byggingum) hafði ófyrirsjáanlegur mann- grúinn þyrpst saman, óttalaus í skjóli eigin mergðar og ótruflaður af hernum. Ofan af vörubílspalli hafði fyndnin í ræðunum verið við völd og mannfjöldinn þraukað í hamingjuríkri óhagganlegri ró undir hlátrasköllum og lófataki. Grunlausum var honum boðið á djarfa hátíð. Þennan dag hefði hann haff vald til ótrúlegra hluta en honum nægði að vera þarna. Tilheyra þessum dýrlega einskis svífandi gáska. Hann hafði verið fullvalda og látið sér nægja að standa svona saman, skynja ógnþrunginn möguleika. Blíðan hafði bjargað Georgi nokkra daga og jafn heimullega og hann hafði lagt hald á hana hjá grunlausri sofandi manneskju, eins opinskátt hafði hann núna langað til að sýna hana. Hann hafði ekið í býtið einn morguninn til sjúkrahússins og birt Luise hana þegar hún kom loksins, löngu eftir tímann, af næturvaktinni; Luise hafði meðtekið hana. (Armar hans teygðir fram, skrefin of hröð í áttina til hennar). Og farið aftur upp með Georgi, framhjá augnaráðum hliðsins, orðin æst núna og hafði látið hann gægjast inn í herbergin á löngum ganginum. Hér höfðu gamlingjarnir legið í rúmræfl- 60 www.mm.is TMM 1998:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.