Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Side 156

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Side 156
RITDÓMAR ast um þetta. Það var þó ekki fyrr en með Kristjáni Ámasyni skáldi og bókmennta- fræðingi sem sonnettan hlaut fastan sess sem ílát fyrir sérstæðan gamanskáldskap á íslensku. Hátíðlegan, heimspekilegan, með vísunum í sögu, bókmenntir og svo ffamvegis, en með brosi út í annað eða jafnvel dillandi fyndinn. Þennan þráð tekur Kristján Þórður upp í sonnettum sínum og þróar á sinn hátt. Og eins og off er hjá Tómasi, Steini og Kristjáni Árnasyni hentar honum að lengja braglínurnar. f tveim sonnettum, „Pylsusalinn hugsar með sér“ og „Vin- konurnar kvöld eitt í júní“, er línulengd hefðbundin; annars er atkvæðafjöldi 13-15. Þessar löngu línur notar Kristján Þórð- ur iðulega til að segja furðu miklar sögur í stuttu máli. Skemmtilegasti kaflinn í fyrstu ljóðabók hans, I öðrutn skilningi (1989), er „Fólk á förnum vegi“. Þar fær hver persóna gott rúm, eins og í „Öla“: Nótt og leigubílnum Óli ekur auðar, blautar götur, mannlaus torg. Við Austurvöll hann ung hjón upp í tekur, sem eru að koma af balli á Hótel Borg. Rósa og Finnur ungu hjónin heita, hatursfull þau rífast, garga og slá. Rósa sakar Finn fyrir að leita í fylliríum aðrar stelpur á. En svipuð atvik iðulega henda, er ekur Óli af böllum fólki heim. Hann veit vel, hvernig svona erjur enda, svo oft hann hefur verið vitni að þeim. Er Finnur uppi í rúmi Rósu huggar og Rósa í staðinn svalar hvötum Finns, á kaffivagni aleinn Óli gluggar í einkamáladálka Dagblaðsins. I nýju bókinni teygir Kristján Þórður ekki lengur lopann. Aðal-skáldskapar- bragð hans þar er upptalningin sem meðal annars er notuð til að þjappa lífi, skoðunum og þrám persónanna í eina línu svo að í einu kvæði geta verið allt upp í átján manns („Gatan klukkan sjö að kvöldi“) sem Iesandinn sér fyrir sér og getur sjálfur samið sögu um. Einstök list Kristjáns Þórðar er hvernig hann fléttar nöfnum, sumum ekkert þjálum, inn í ljóðin, og það eru ekki síst þau sem ásamt svolítið hátíðlegu orðfærinu setja hinn kímilega brag á sonnetturnar. Kannski er ekki tilviljun að í tveimur af bestu sonnettum bókarinnar eru persónurnar fjórtán - eins og línur sonn- ettunnar. önnur þeirra er titilljóð bókar- innar, hin heitir „Á Þjóðarbókhlöðunni“: Þorkell les ritgerð um kúgun á affískum konum. Kristína gáir hvort Leikur að stráum sé inni. Ólafur spyr sig hvort Margrét sé hrifin af honum. Hallgrímur reynir að festa sér ártöl í minni. Hólmfríður aflar sér heimilda um langömmu sína. Hrund safnar fróðleik um drepsóttir liðinnaalda. Magnea festir ei hugann við hagvöxt í Kína, hún hlakkar til veislu sem Már segist ætla að halda. Sveinn vinnur fornleifaskrá upp úr gagnagrunni. Guðlaugur kynnir sér skemmdir á steypu í frosti. Rafn skoðar myndir frá Róm og á kaffistofunni spyr Rúnar hvað brauðsneið með skinku og salati kosti. Skyldi Guðmundur koma til Más? hugsar Magnea dreymin. Svona misjafnt er það sem fólk langar að vita um heiminn. Skáldið lætur röntgenaugu sín líða yfir lestrarsal bókhlöðunnar og greinir hugs- anir og áhugamál hvers og eins - en þegar kemur að hinum mikilsverðu lokalín- um spólar hann til baka til eina gestsins sem var niðursokkinn í tilfinningamál sín. Enn skiptir ástin sonnettuna mestu máli. 154 TMM 1998:3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.