Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Side 132

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Side 132
SIGRÍÐUR ÞORGEIRSDÓTTIR stæði gildisdóma. Hið sterka afbrigði póstmódernískra kenninga fórnar al- gildi siðferðisviðmiða á altari menningarlegs afstæðis þeirra. Hið veika afbrigði póstmódernískra kenninga felur hins vegar í sér viðleitni til að bera saman afstæði, sem á sér rætur í fjölhyggju samtímans, og algildi grundvallar þekkingarfræðilegra og siðfræðilegra viðmiða skynsemishyggjunnar. Tals- menn sterks póstmódernisma varpa því arfleifð heimspeki í anda upp- lýsingarinnar fyrir róða þar sem algildisviðmið hennar eru að þeirra dómi menningarlega afstæð, evrópumiðuð, karlmiðuð o.s.frv. Síðara afbrigði póstmódernískrar heimspeki endurmetur með gagnrýnum hætti arfleifð hennar og sýnir fram á skort á næmi fýrir ýmiskonar mismun í siðferðileg- um viðmiðum upplýsingarinnar. Slík gagnrýni er gagnleg ábending fyrir samfélagslega heimspeki og siðfræði um að vera í takt við póstmódernískan raunveruleika menningar okkar, sem einkennist af fjölhyggju gilda, viðmiða og lífshátta. Algildi siðferðisviðmiða er því sett á vogarskálar gagnrýni sem metur réttmæti þeirra með tilliti til þess hvort þau geti gilt fyrir alla, alls stað- ar og með jöfnum hætti, eða hvort þau viðhaldi stigskiptingu sem hyglir ákveðnum heimshlutum eða tilteknum hópum í fjölhópa- og fjölmenning- arsamfélögum samtímans á kostnað annarra. Þrátt fyrir nauðsyn hinnar póstmódernísku gagnrýni er sambandið milli hins veika póstmódernisma og módernisma í heimspeki spennuþrungið. Samræmanleiki þessara beggja hefða einkennist þegar best lætur af skapandi togstreitu og þegar verst gegnir af óleysanlegum mótsögnum. í báðum til- fellum eru módernismi og póstmódernismi samt hvor öðrum nauðsynlegt áreiti. Vörðurnar á leiðinni að því marki að sýna fram á frjótt samband „veiks“ póstmódernisma og módernisma eru eftirfarandi: 1. í fyrsta lagi mun umfjöllunin um hina póstmódernísku gagnrýni upplýsingarinnar að mestu leyti takmarkast við erlendar greinar sem hafa verið þýddar og birtar um þessi efni á íslensku. I hausthefti Skírnis 1993 er annars vegar ritgerð Immanuel Kants frá 1784 „Svar við spurningunni: Hvað er Upplýsing?“ og hins vegar ritgerðir Michel Foucaults og Jiirgen Habermas um þýðingu hugmynda Kants um skynsemi og upplýsingu fyrir samtíma okkar.4 Það er ekki ætlun mín að gera ýtarlega grein fyrir efni þess- ara greina heldur einungis að draga fram megin línur deilunnar um módernisma og póstmódernisma með hliðsjón af þessum greinum. Með vísun til greinar Kants verður gerð grein fyrir burðarásum módernískrar heimspeki og sambandi upplýsingar og módernisma í heimspeki. Grein Habermas er dæmi um vörn og tilraun til að viðhalda hinum kantísku við- miðum. Ritgerð Foucaults er aftur á móti dæmigerð fýrir hið gagnrýna og tvíbenta viðhorf til upplýsingarinnar sem einkennir heimspeki hans og 130 www.mm.is TMM 1998:3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.