Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2005, Page 10
á Landspítala-háskólasjúkrahúsi (LSH): bráðamóttöku ÍOD
við Hringbraut, gjörgæsludeild 12B við Hringbraut, gjörgæslu-
deild E6 í Fossvogi, svæfingadeild 12CD við Hringbraut,
svæfingadeild E5 í Fossvogi og slysa- og bráðadeild G2 í
Fossvogi. Akveðið var að velja þessar sex gjörgæslu-, svæfinga-
og bráðadeildir LSH sökum þess að lágþrýstingur er algengt
vandamál sjúklinga sem þangað leita og því fróðlegt að kanna
viðhorf og notkun hjúkrunarfræðinga sem þar starfa og hugsan-
lega nota Trendelenburg-legustellinguna mikið sökum eðlis og
: ástands sjúklinga sem dvelja þar í höndum hjúkrunarfræðinga.
Fyrirspurn og tilkynning var send til Persónuverndar. Því næst var
sótt formlega um leyfi til hjúkrunarforstjóra LSH, sviðstjóra starfs-
mannamála og viðkomandi deildastjóra sem veittu leyfi fyrir rann-
sókninni. Jafnframt var óskað eftir lista frá deildastjórum með net-
föngum allra hjúkrunarfræðinga sem starfa á þeim deildum sem
þátt tóku í rannsókninni. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu
starfsmannamála LSH störfuðu 263 hjúkrunarfræðingar á þessum
gjörgæslu-, svæfinga- og bráðadeildum LSH 1. mars 2004. Alls
: fengust tölvupóstföng 237 hjúkrunarfræðinga hjá deildarstjórun-
um. Þar af voru 11 netföng ekki í notkun. Pósturinn barst til 226
hjúkrunarfræðinga og fengu því 90% starfandi hjúkrunarfræðinga
í úrtakinu senda til sín könnunina. Tölvupósturinn innihélt
leiðbeiningarað spurningalistanumoghöfðuhjúkrunarfræðingarnir
þrjár vikur til að svara spurningalistanum.
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna viðhorf og notkun
hjúkrunarfræðinga á gjörgæslu-, svæfinga- og bráðadeildum
Landspítala-háskólasjúkrahúss á Trendelenburg-legustell-
ingunni. Rannsóknarspurningar voru eftirfarandi: 1) Telja
hjúkrunarfræðingar að Trendelenburg-legustellingin hækki
blóðþrýsting og auki útfall hjartans hjá sjúklingum? 2) Hvert
er viðhorf hjúkrunarfræðinga til Trendelenburg-legustellingar-
innar? 3) Hvaðan eru upplýsingar um Trendelenburg-legustell-
inguna fengnar?
Svarhlutfall eftir fyrstu vikuna var 26% og því var sendur út nýr
tölvupóstur þar sem fyrri tölvupóstur var ítrekaður. Jafnframt
var auglýsing sett inn á hverja deild þar sem rannsóknin var
kynnt. Lokasvarhlutfall reyndist vera 45%.
Mælitæki
Mælitækið í þessari rannsókn var tíu liða spurningalisti sem
unninn var upp úr fræðilegu lesefni um Trendelenburg-Iegustell-
inguna. Spurningalistinn var útbúinn haustið 2003 og var hann
forprófaður á hjartaskurðdeild 12E á Landspítala-háskólasjúkra-
húsi. Jafnframt lásu þrír sérfræðingar í hjúkrun yfir spurningalist-
ann og komu með gagnlegar athugasemdir. Þar sem hér var um
netkönnun að ræða margprófuðu rannsakendur spurningalistann
út frá tæknilegum sjónarhóli í ólíkum tölvum með ólík stýrikerfi.
Netkönnunin var gerð með hjálp „response-
o-matic“ tækis (http://www.response-o-matic.
com). Könnunin var vistuð á veraldarvefnum,
á heimasvæði rannsakenda. Þátttakendum var
sendur tölvupóstur þar sem könnunin var útskýrð,
og tengil á könnunina var að finna neðst í tölvu-
póstinum. Með því að smella á þann tengil voru
þátttakendurnir sjálfkrafa fluttir á vefsíðu þar
sem könnunin var gerð. Þegar þátttakendur höfðu
lokið við að svara könnuninni voru niðurstöður
hennar sendar til rannsakenda.
Úrvinnsla gagna
Rannsóknaraðferðin, sem notuð var við úrvinnslu
gagna, er lýsandi tölfræði og voru niðurstöðurnar
settar á tölfræðilegt form með hjálp EXCEL töfl-
ureiknis og SPSS tölfræðiforritsins.
Niðurstöður
Alls svaraði 101 hjúkrunarfræðingur af þeim 226
sem fengu könnunina senda til sín, og er það 45%
svörun. Eins og fram kemur í töflu 1 var svörun-
in hlutfallslega best á bráðamótttökudeildum
(deildum 10D og G2).
1 Svörun eftir sérgreinum (deildum)
Svið (deildir) Úrtak Fjöldi svara Hlutfall í prósentum
Bráðamóttökur LSH (10D og G2) 73 36 49
Gjörgæsludeildir LSH (12B og E6) 118 53 45
Svæfingadeildir LSH (12D og E5) 46 12 26
99% hjúkrunarfræðinganna sögðust hafa
notað Trendelenburg-legustellinguna við
hjúkrun. Algengasta ástæðan fyrir notkun
Trendelenburg-legustellingarinnar var sú að
hjúkrunarfræðingarnir vildu reyna að hækka
blóðþrýsting, eða í 95% tilvika. Aðeins 15%!
töldu ástæðuna fyrir notkun þessarar legu-
stellingar þá að þannig mætti einnig auka
útfall hjartans. Niðurstöður sýna að 70%|
hjúkrunarfræðinga finnst Trendelenburg-legu-
stellingin oft hækka blóðþrýsting hjá sjúklingum
með lágan blóðþrýsting. Fjórðungi þeirra finnst
Trendelenburg-legustellingin sjaldan eða aldrei
hækka blóðþrýsting (sjá mynd 1).
8 Timarit hjúkrunarfræöinga 2. tbl. 81. árg. 2005