Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2005, Síða 41
Fréttamolar...
greidd af ef sjóðfélagar taka ekki laun skv. samn-
ingum eða launaákvörðunum sem miðast við
kjarasamninga opinberra starfsmanna eða kjara-
samninga sem sveitarfélög gera á grundvelli laga
um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Hin
meginbreytingin er að ákvæðinu um skilyrði til
aðildar að LH er breytt þannig (2. gr. laganna):
Hjúkrunarfræðingar, sem starfa við hjúkrun og
höfðu heimild til aðildar að sjóðnum við árslok
2004, skulu eiga rétt til aðildar að sjóðnum á
meðan þeir gegna störfum hjá ríki eða sveitar-
félögum, eða stofnun sem alfarið er í þeirra eigu
eða á heilbrigðisstofnun sem viðurkennd er af
heilbrigðisstjórninni og rekin er sem sjálfseignar-
stofnun eða alfarið á vegum styrktar- eða líknar-
félaga, enda séu þeir ráðnir með föst mánaðarlaun.
Aðrir launagreiðendur en um er getið í 1. mgr.,
sem fengið höfðu heimild til að greiða fyrir
starfsmenn sína í árslok 2004, hafa heimild
til að greiða fyrir þá starfsmenn sína sem þeir
greiddu fyrir í árslok 2004 og þá hjúkrunarfræð-
inga sem heimild hafa til aðildar að sjóðnum og
fæddir eru á árinu 1950 eða fyrr og greitt hafa
samtals 21 ár í sjóðinn miðað við árslok 2004.
Stjórn sjóðsins getur samþykkt aðild að sjóðnum
fyrir þá hjúkrunarfræðinga sem höfðu heimild til
aðildar að sjóðnum í árslok 2004 og fæddir voru
á árinu 1950 eða fyrr og höfðu greitt samtals 21
ár í sjóðinn miðað við árslok 2004, enda starfi
þeir hjá heilbrigðisstofnun sem viðurkennd er af
heilbrigðisstjórninni. Heimilt er að skilyrða aðild
samkvæmt þessari málsgrein við að lífeyrisskuld-
bindingar séu gerðar upp skv. 3.-5. mgr. 20. gr.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur í umsögn
um frumvarpið fagnað þessari breytingu og telur
hana tryggja rétt þeirra hjúkrunarfræðinga sem
höfðu heimild til aðildar að sjóðnum í árslok
2004. Lögin í heild má finna á vefslóðinni www.
althingi.is/altext/131/s/l 312.html.
Golfmót hjúkrunarfræðinga 2005
Meö hækkandi sól og meiri hita í loftinu er búiö aö ákveöa golfmót
hjúkrunarfræðinga áriö 2005. Mótin veröa tvö eins og undanfarin ár.
Fyrra mótið var haldið föstudaginn 3. júní kl. 13.00 á golfvellinum á
Hellu. Seinna mótið verður haldiö föstudaginn 26. ágúst kl. 13.00 á
golfvelli Keilis í Hafnarfirði. Athygli skal vakin á því aö viö höfum ekki
ótakmarkaðan rástíma og því er nauösynlegt aö skrá sig sem fyrst.
Mótin veröa meö sama hætti og undanfarin ár.
Nánari upplýsingar veita:
Helgi Benediktsson, netfang: helgiben@hotmail.com
Ágústa Dúa Jónsdóttir, netfang: dua.jonsdottir@hgsel.is
Samtök hjúkrunarfræðinga og Ijósmæðra gegn tóbaki
Samtök hjúkrunarfræðinga og Ijósmæöra gegn tóbaki voru stofnuö
7. febrúar 2000. Fyrirmyndin er sótt til Svíþjóöar en þar hafa veriö til í
nokkur ár sambærileg samtök hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigöis-
stétta, svo sem Ijósmæðra, lækna og tannlækna.
Markmið samtakanna er að:
1) efla forvarnir gegn tóbaksnotkun
2) aðstoða þá sem ánetjast hafa tóbaki til að hætta neyslu
3) efla hjúkrunarfræöinga og Ijósmæður í tóbaksvörnum.
í mars tók viö ný stjórn samtakana og hana skipa nú:
Halla Grétarsdóttir, Krabbameinsfélaginu
Karitas ívarsdóttir, Miðstöö mæöraverndar
Jóhanna Kristjánsdóttir, Heilbrigöisstofnun Austurlands
Rósa Jónsdóttir, Reykleysismiöstöö LSH
Sesselja Ingólfsdóttir, Heilsugæslunni Grafarvogi
Næsta verkefni samtakanna:
í tilefni af alþjóöareykleysisdeginum voru félagsmenn samtakanna
vera meö reykleysisráögjöf fyrir almenning í Smáralind og Kringlunni
31. maí 2005
Samtökin vilja vekja athygli hjúkrunarfræöinga og Ijósmæöra á að á
vefsíðunni www.hi.is/~bergthkr/Reykleysi er aö finna lesefni frá reyk-
leysisnámskeiöi Helgu Jónsdóttur og Rósu Jónsdóttur frá í vetur.
Einnig er hægt aö panta handbókina Tært loft á netfanginu fraedsla@-
krabb.is.
Ljósmæöur og hjúkrunarfræðingar, sem eru áhugasamir um tóbaksvarnir,
geta skráð sig í samtökin hjá Höllu Grétarsdóttur, formanni samtakanna,
á netfanginu hallag@krabb.is.