Dagblaðið - 24.09.1981, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 24.09.1981, Blaðsíða 1
7. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1981 — 216. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022. \ Video-byltingin íalgleymingi: VIDEO-KERFIN TENGD UM GERVALLT LANDIÐ ^ -- V / -------------- — ogstyttist mjögíaö „video-hring- vegurínn,f lokist —sjábaksíöu Kötlufellsmálið: 16ára fangelsi fyrirað bana manni sfnum Björg Benjamínsdóttir, Kötlufelli 11 í Reykjavik, var i gær dæmd i sextán ára fangelsi fyrir aö bana eiginmanni sínum með eldi á heimili þeirra 25. janúar sl. Ákæra á hendur Björgu var gefin út 4. ágúst si. Björg var ennfremur dæmd fyrir að hafa með eldinum valdið öðrum íbúum fjölbýlishússins í Kötlufelli 11 bersýnilegum lífsháska og augijósri hættu á yfirgripsmikilli eyðingu eigna manna. Björg hefur og með verknaði sinum fyrirgert sjálfri sér til handa rétti til arfs eftir hinn látna eigin- mann sinn. Eins og fram kom i fjölmiðlum á sinum tíma hafði Björg orðið sér úti um bensín sem hún síðan hellti yfir mann sinn þar sem hann svaf áfengis- svefni í hjónarúmi þeirra, og bar loks eld að. Lézt hann fljótlega af bruna- sárunum. Þykir sannað að verknaðurinn hafi verið framinn að yfirlögðu ráði og hlýtur Björg því hámarksrefsingu. 16 ára fangelsi. Hún er einnig dæmd til að greiða allan sakarkostnað, samtals 19.000 krónur. Jónatan Sveinsson saksóknari flutti málið af hálfu ákæruvaldsins. Verjandi Bjargar var Örn Clausen, hæstaréttarlögmaður. Sverrir Einars- son sakadómari kvað upp dóminn. Gæzluvarðhald Bjargar frá 29. janúar i ár dregst frá fangelsisvist- inni. Svo sem venja er um morðmál hefur því verið áfrýjað til Hæstaréttar. -ÓV. Allir á fætur i stúkunni Það var mark! Mönnum þótti gaman að vera íslendingar ú Laugar- dalsvellinum í gœrþegar íslenzka landsliðið veitti ólympíumeisturum Tékka góða keppni í leik í undankeppni Heimsmeistaramótsins. Myndin var tekin upp í stúkuna þar sem áhorfendur risu á fœtur þegar Pétur Ormslev hafði skorað mark íslenzka liðsins og langt fram I síðari hálfleik héldu íslendingar forystunni. Pétur hélt til Þýzkalands I morgun til að œfa með Dusseldorf, liði Atla Eðvalds- sonar, en nú eru allar líkur á að Pétur bœtist í vaxandi hóp íslenzkra atvinnuknattspyrnumanna. DB-mynd: Bj. Bj. Bruggtæki gerð upptæk á Húsavík: Dýrmætur vökvinn lak niður \ á stereó-græjur nágrannans — sem ekki undi því og lét lögregluna vita Lögreglan á Húsavík gerði upptæk bruggtæki í heimahúsi i gær- dag og játaði eigandi þeirra að hafa stundað brugg síðan um síðustu ára- mót. Lögreglan komst að þessari á- fengisgerð er maður einn kom inn á lögreglustöðina um hálfsjöleytið í gærkvöldi. Sagði hann farir sínar ekki sléttar þar sem einhver vökvi, sem líktist helzt bruggi, læki niður úr loftinu hjá honum og niður á stereógræjur hans. Lögreglan fór með manninum heim og stóðst það sem maðurinn sagði, bruggi rigndi niður úr loftinu. Húsbrot var gert á efri hæð, þar sem eigandinn var ekki heima, og komu lögreglumenn þá að fimm 40—50 lítra plastbrúsum. Voru allir tómir nema einn sem oltið hafði á hliðina. Þá var þarna gamall þvottapottur sem breytt hafði verið í eimingar- tæki. Lögreglan lagði hald á þessa hluti og eigandinn náðist skömmu síðar. Hann sagðist einungis brugga fyrir sjálfan sig og hafa fengið um 100 lítra í hvert skipti sem hann hefur lagt í. Manninum var sleppt eftir skýrslutöku og verður málið nú sent sýslumanni. Þá var sýni tekið af vökvanum, sem fara mun tii Reykja- víkur í efnagreiningu. -ELA. Raufarhöfn: HJÓLIN TAKA AÐ SNÚAST AÐ NÝJU „Veiti Landsbankinn og Fram- dag. Forráðamenn Jökuls hafa talið kvæmdastofnun okkur fyrirgreiðslu sig þurfa um 4 milljónir króna og þá dettur þetta i gang um leið,” sagði verður reynt að leysa vandann fremur Ólafur H. Kjartansson, fram- með innlendu fjármagni en erlendu. kvæmdastjóri Jökuls á Raufarhöfn, „Við höfum veriö að dunda við síðdegis 1 gær. Landsbankanum og lagfæringar á togaranum og það ætti Framkvæmdastofnun hefur verið ekki að taka nema hálfan annan dag falið að leysa vanda fyrirtækisins svo að gera hann kláran,” sagði Ólafur. rekstur geti hafizt á ný og um leið Síðan yrði settur aukinn kraftur í verður gerð úttekt á rekstri fyrir- skreiðarvinnsluna og gæti hún skaff- tækisins. að umlO daga vinnu til þess að brúa bilið þar til togarinn kemur ihn aftur. Gert er ráð fyrir því að fulltrúar Þá hafa bátarnir verið aðgerðarlitlir Landsbankans og Framkvæmda- ogkæmufyrrinnentogarinn.” stofnunar haldi til Raufarhafnar í -JH.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.