Ný saga - 01.01.1999, Blaðsíða 63

Ný saga - 01.01.1999, Blaðsíða 63
Átökin um Atlantshafsbandalagið Hver er reynslan afhálfrar aldar aðild? Iár eru 50 ár frá stofnun Atlantshafs- bandalagsins, NATO. Innganga ís- lands í bandalagið árið 1949 var urn- deild og olli heiftarlegum átökum sem lengi eimdi eftir af. Afstaðan til NATO og her- stöðva Bandaríkjamanna hér á landi er án nokkurs efa hatrammasta deilumál íslenskra stjórnmála frá stofnun lýðveldisins og fram undir það síðasta. Önnur deilumál gjósa upp og hverfa síðan en þetta mál gengur eins og rauður þráður gegnum alla stjórnmálasögu lýðveldisins. Það hefur skipt þjóðinni í and- stæðar fylkingar, klofið jafnt opinber samtök sem fjölskyldur og kunningjahópa og um tíma starfaði hér stjórnnrálaflokkur, Þjóðvarnar- flokkurinn, sem hafði andstöðu við herstöð- ina að sínu aðalstefnumáli og náði umtals- verðu fylgi. Atlantshafsbandalagið og herstöðvarnar eru skilgetin afkvæmi kalda stríðsins. Nú þeg- ar því stríði er lokið stendur NATO á tírna- mótum og því taldi ritstjórn Nýrrar sögu við- eigandi að fá tvo sagnfræðinga af yngri kyn- slóðinni, sem báðir þekkja vel til þessara mála, til að taka til urnræðu ýmsa þætti varð- andi bandalagið, sögu þess þróun og starf- semi. Þeir senr hér reifa viðhorf sín eru þeir Kjartan Ernil Sigurðsson, en hann er fyrrver- andi formaður Varðbergs, samtaka urn vest- ræna samvinnu, og Stefán Pálsson, en hann hefur um rnargra ára skeið verið virkur í Sam- tökurn herstöðvaandstæðinga. Meðal þess sem þeir ræða er innganga íslands í NATO, hvernig aðildin bar að og þá valkosti sem ís- lenskir stjórnmálamenn stóðu frarni fyrir á þeim tíma. Einnig fjalla þeir um á hvern hátt íslendingar nýttu sér aðildina, rnálurn sínurn heinrafyrir sern á alþjóðavettvangi til fram- dráttar. Talsverðar breytingar hafa orðið á af- stöðu íslenskra stjórnvalda til bandalagsins á þessari hálfu öld sem liðin er, þótt alrnenn- ingur hafi ekki alltaf orðið þess var. Þessar breytingar verða teknar til umræðu hér á eft- ir. Að lokum velta þeir Kjartan og Stefán því fyrir sér hvað framtíðin ber í skauti sér. Mynd 1. Svipmynd frá herstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Þótt hart hafi verið deilt um aðildina að NATO hafa deilurnar um herstöðina verið enn harðari. 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.