Þjóðmál - 01.06.2014, Blaðsíða 73
72 Þjóðmál SUmAR 2014
Hefði Margaret Thatcher ekki fallið frá fyrr á þessu ári [2013] hefði hún orðið
88 ára í dag . Það skýrir margt sem tengist
henni . Hún fæddist árið 1926, á miðjum
áratug sem var Bretum efnahagslega erfiður .
Bandaríkjamenn og Evrópuþjóðirnar náðu
sér að verulegu leyti eftir heimsstyrjöldina
1914–1918 á þriðja áratugnum . Bretum
tókst það hins vegar ekki (undir forystu
Winstons Churchills sem fjármálaráðherra)
vegna þess að gengi pundsins var skráð of
hátt sem dró úr hagvexti og stuðlaði að
miklu atvinnuleysi . Fjórði áratugurinn var
Bretum mun hagstæðari þótt hið gagn-
stæða ætti við um flestar aðrar framfara-
þjóð ir . Endurreisn og nútímavæðing breska
hagkerfisins náðist með því að sýna aðgæslu
í ríkisfjármálum og styðja við atvinnulífið .
Ríkisvaldið var íhaldssamt og það innleiddi
verndartolla gegn því að atvinnu fyrirtæki
tækju höndum saman til að auðvelda þeim
bestu að ná árangri . Þessi þróun frekari
ríkis afskipta, undir stjórn bæði Íhalds- og
Verka mannaflokksins, hélt áfram á árum
síðari heims styrjaldarinnar — og síðan í tíð
stjórnar Verkamannaflokksins undir forsæti
Clements Attlees . Ríkisstjórnir Íhalds-
flokksins á árunum 1951–1974 sættu sig
að mestu við miðstýrt hagkerfi enda væri
það óhjákvæmilegt . Þótt hinum ráðandi
stétt um þætti almenn skynsemi mæla með
að haldið yrði áfram á sömu braut ríkis -
John O’Sullivan
Í minningu frú Thatcher
Hinn 13. október 2013, þegar 88 ár voru liðin frá fæðingu Margaretar
Thatcher, forsætisráðherra Bretlands (d. 8. apríl 2013), flutti John O’Sullivan
minningarfyrirlestur um hana í Háskóla Íslands á vegum Rannsóknarseturs
um nýsköpun og hagvöxt (RNH) og birtist hann hér í íslenskri þýðingu.
John O’Sullivan er breskur álitsgjafi og dálkahöfundur. Á níunda ára
tugnum var hann meðal helstu ræðuritara Thatcher og var handgenginn
henni allt til dauða dags. Hann er höfundur bókarinnar The President,
the Pope, and the Prime Minister (nóvember 2006) þar sem fjallað er
um Ronald Reagan Banda ríkjaforseta, Jóhannes Pál páfa II og Margaret
Thatcher og hve mót andi áhrif þau höfðu á samtíð sína og framvindu mann
kynssögunnar.