Tíminn - 12.05.1963, Síða 3
★ í BIRMINGHAM í Alabama-
fylki í Bandaríkjunum hefur ver-
ið talsverð ólga að undanfömu og
komið til átaka milli lögreglu og
blökkumanna, sem farið hafa mót-
mælagöngur tU að krefjast jafn-
réttis við aðra þegna í borginni. Nú
er aftur farið að kyrrast í borg-
inni, eftir að aðilar hafa náð sam-
komulagi sín á milli, og hefur Ro-
bert Kennedy dómsmálaráðherra
látið svo ummælt, að merkilegasta
utkoman úr málinu sé sú, að í
Birmingham hafi. hvítir menn og
svartir sýnt, að þeir gátu setzt að
samningaborði og gert upp um
málin á friðsamlegan hátt. — Mynd
irnar hér á síðunni eru allar tekn-
ar í Birmingham, meðan deilan
stóð þar sem hæst. Efst til hægri
sjást menn vera að gera tilraunir
til að bjarga sér undan vatnsbunu
úr brunaslöngum lögreglunnar, en
þeim tækjum var óspart beitt ti]
að dreifa mannsöfnuði. Efst til
vinstri er lögreglan að skrifa upp
heitl blökkumattna og á neðstu
myndinni sést lögreglumaður
hrópa í hátalara, að mótmælagöng
ur blökkumannanna séu ólöglegar.