Vísir - 24.12.1929, Side 3

Vísir - 24.12.1929, Side 3
FYRSTU JÓLIN. Jólaprédikun efiir sira Bjarna Jónsson, dómkirkjuprest. Hugur minn leitar til hinna fyrstu jóla. Eg hugsa á heilagri jólanótt um fyrstu jólin hér á jörð, um h i n a f y r s t u j ó 1 a g u ð s þ j ó n u s t u. Aldir eru liðnar, en samt virðist mér alt, sem hin heilaga saga segir frá, vera svo nálægt mér. Þá verður í huga mínum svo náið samband milli fyrstu jólanna og jól- anna nú. Það er þá ekki aðeins um gamla sögu að ræða, það er um fögnuð að ræða, ganna gleði, sem veitist mönnunum nú. Jólin eiga það töfi'avald yfir huga vor- uin, að það sem gerðist fyrir mörgum öldum er einmitt að gerast nú. Spurðu barnið, sem horfir á jólaljósin og syng- ur jólasálmana, hvort það eigi erfitt með að tileinka sér englasönginn. Spurðu hið þreytta gamalmenni, hvort því finnist ekki boðskapur jólanna flytja huggun og gleði, og það nú á þessu augnabliki. vSpurðu þá, sem sjá æfisólina hátt á lofti, hvort þeir geti ekki glaðst, eins og börn á jólum, hvort þeir finni ekki, að gleði fjárhirðanna í Betlehem sé nú þeirra eigin gleði. Eg liefi oft séð undramátt jólanna. Það hefir oft veitt mér mikla gleði að veita því eftirtekt, hvernig jólin hafa fært birtu hinum fátæku og sjúkuphin- um sorgbitnu og þreyttu. Eg hefi séð birtuna frá fagnaðarerindi jólanna ná inn i fangaklefana. Höfum vér ekki séð, hve náið samband er milli jólaljósanna og hinna brosandi barna? Hefir þú ekki séð, hvernig jólabrosið hefir eytt kuld- anum og deyfðinni og kallað á gleðina. Kannast þú ekki við, að þér hafi hlýnað um hjartarætur á jólunum. Ef þú hefir aldrei fundið þann yl, þá hefir þú farið á mis við mikið. En live lif mitt væri fá- tækt, en hve gleði mín yrði dauf ef hægt væri að taka frá mér minningarnar um heilög jól, minningar um sælan frið á heilagri jólanótt. Eg man það, hvernig eg, er eg var lítið barn, tók eftir því, er jólin komu. Það er bókstaflega sannleik- ur i þessu: J ó 1 i n k o m a. Alt er á fleygiferð, menn eru önnum kafnir. Það var mánudagur i gær, það er þriðjudagur í dag. En alt í einu er kvöldmyrkrið fær- ist yfir verður þriðjudagurinn að sunu- degi, miklu meir, að alveg sérstaklega heilagri og hátíðlegri stund. Það er ekki hægt að lýsa því, en þú veist við hvað eg á. Þú hefir veitt því eftirtekt, hvernig jólin koma, og margir, einnig hér í Reykjavík eiga heilagar bernskuminn- ingar um jólin, er sungið var með við- kvæmum fögnuði: Hvert fátækt hreysi höll nú er, því Guð er sjálfur gestur hér. Jólin koma og með þeim kemur hin barnslega gleði, birta kærleika, birta vin- áttu, hjálpfýsi og trygðar. Þetta er nú- tíðin: Jólin koma. Þau koma nú í kvöld. Þau koma til þín. Þau koma til barnsins þíns. Þau koma til þeirra, sem eru i margmenninu, þau koma til þeirra, sem kannast við einveruna. Þau koina til þeirra, sem eru úti á hafinu, og þau koma til þeirra, sem fagna bjartri lieim- ilisgleði. En jólin koma aí' því að jólin komu. Það er skær birta yfir liðinni tíð, er sagt er: J ó I i n k o m u. Frá fyrstu jólunum til jólanna nú í kvöld sést hin fegursta Ijósrák. Eg sé bjarmann frá fyrstu jól- unum, eg sé þann jólabjarma nú í kveld, og um leið fá jólaguðsþjónustur vorar í kirkjunni og á heimilunum birtuna lán- aða frá fyrstu jólaguðsþjónustunni. Á heilagri jólanótt finst mér, að lagt sé kerti i hönd mína og við mig sagt: Þetta kerti er frá fyrstu jólunum. Kveiktu nú á því, og það mun lýsa þér, svo að vegur þinn sé í birtu. Með þetta kerti i hendi minni held eg öruggur áfram vegferð minni. Eg kveiki á jólakertinu, og fyrstu jólin sameinast jólunum nú í kveld. Eg er í kirkju. Það er hátt undir loftið. Kirkjan er uppljómuð. Stjörnubjartur himininn er yfir hinni fögru fold: Eg get aldrei neitað mér um þá gleði ef fagurt er veð- ur, að ganga hér Um bæinn eða í grend við bæinn, þegar kyrð hinnar heilögu nætur gefur bænum sinn sérstaka* blæ. Eg man eftir svo mörgum unaðsfögrum aðfangadagskvöldum, og þá hefir jóla- gleði mín sameinast hugsuninni um fyrstu jólin hér á jörð. Þá hefi eg' oft yf- ir hin fögru orð: A himni næturljósin Ijóma, svo Ijúft og stilt og rótt, og unaðs- raddir engla hljóma þar uppi’ um helga nótt. Eg er í kirkju, i jólamessu i hinni rúmgóðu kirkju náttúrunnar. Það er kveikt á jólaljósunum, hinuin tindrandi stjörnum. Eg minnist hinna heilögu orða: Þá er eg horfi á liimininn, verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar, er þú hefir skapað, hvað er þá maðurinn þess að þú minnist hans og mannsins barn, að þú vitjir þess? (Sálm. 8. 4—5). Það var munað eftir mönnunum. Það eykur hátíðina, þegar Ijósin eru tendruð, og margir eru þeir, sem með brosandi gleði, já með tárdöggvuðum augum hafa horft á jólaljósin. Eg hugsa um þá stund, er í fyrtsa sinn var kveikt á jólaljósun- um og þeir, sem í kirkju voru, sáu hina skæru birtu. Það var munað eftir þeim, sem þá voru i kirkju. Það var hugsað um þá, þeim var veitt hin mikla jólagleði. Dýrðarbirta Drottins ljómaði i kringum fjárhirðana. Fjárhirðarnir voru kirkju- gestir á hinni fyrstu jólahátíð. Hver veit tölu þeirra sem hafaverið í kirkju á jólun- um? Þegar vér hugsum um þá gleði, þá huggun, þann frið, sem miljónum manna hefir hlotnast, þegar vér heyr- um lofsönginn sem nið margra vatna, þá hækkar einnig undir loft hjá oss og hjart- að vermist af kærleiksglóð jólanna. Þeg- ar eg horfi á.börnin, sem stara hugfang- in á jólaljósin á hinum grænu greinum, hugsa eg um dýrðarbirtuna, sem ljómaði kringum hina fyrstu kirkjugesti. Sjáum vér ekki, hvernig nútið og framtið mæt- ast? Eg' er hér í Reykjavík, en eg er einnig í kirkju með fjárhirðunum og hlusta ásamt þeim á h i n a f y r s t u j ó 1 a- p r é d i k u n. Það er búið að halda margar jólaprédikanir. En hin besta jólaprédikun er til á prenti, hún er til á mörg hundruð tungumálum, einnig á íslensku. Hún er lesin um allan kristinn heim í kvöld og á morgun. Engillinp flutti hina stuttu, en efnismestu jólapré- dikun, og sú prédikun var þannig að Lesið guðspjallið: Lúk. 2. 1—20. hennar er þörf nú í dag. Og nú verður hið sama, sem eg hefi áður bent á. Það, sem sagt var í fyrstu jólaguðsþjónustunni á enn erindi til mannanna. Hvernig byrj- ar ræðan: „Verið óhræddir.“ Þarf ekki að halda þá ræðu á þessum jólum? Hví- lik jólagleði að mega tala þannig' til mannanna, að mega flytja þeim þessa kveðju: Verið óhræddir. Þá er eg ekki aðeins með jólakerti i hendi minni, til þess að birta sé yfir mínum vegi. En þá er eg einnig sendur með jólakerti til ann- ara, mer er sagt að kveikja á kertinu hjá þeim, að kalla á þá burt frá dimmunni inn í birtuna. Prédikunin heldur áfram, og hún eykst að kraf ti og gleði. Það er vaxandi kraftur i hinni fyrstu jólaræðu. „Sjá, eg boða yð- ur mikinn fögnuð.“ Hvílíkt jólastarf, að vera boðberi gleðinnar, að mega tala við mennina um gleði, miklu meir, mega f 1 y t j a þeim gleðina, miklu meir, •mega flytja þeim m i k i n n f ö g n u ð. Það hefir ekkert dregið úr þessum fögn- uði. Það er enn í dag hinn m i k 1 i fögn- iiður. En er hann ekki aðeins handa fá- einum? Er ekki boðið fáeinum útvöld- um til þess að fá hlutdeild í þessum fögnuði? Nei, hlustum á hvað prédikar- inn segir. Hann talar um hinn mikla fögnuð, já, liann boðar hann hinum fá- tæku fjárhirðum. En hann veit, að hann er handa fleirum en þeiip, því að hann mun veitast ö 11 u m 1 ý ð n u m. Jóla- gleðin er handa öllum, hún er handa hin- um glöðu, svo að gleði þeiiTa verði heilög, og hún er handa hinum sorgbitnu, svo að sorgin megi breytast í fögnLið. Hver er sú gleði, sem á þann mátt, að hún geti veitt öllum blessun? Með hverju rökstyður engillinn sitt mál? Eg stend við hlið hirðanna og lilusta: „Því að“ — já, með þessu er boðskapur gleðinnar rökstuddLir — „þvi að yðLir er i dag frels- ari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg I)aviðs.“ Þessi orð hafa geymst um aldir. En á jólunum nú er eins og á fyrstu jólunum sagt: Yður er í dag frelsari fæddur. Hugsum um nútíð jóláboðskap- arins. Gleðjumst yfir því, að hin mikla jólagjöf er ætluð oss. Við oss er sagt í dag: Y ð u r er í dag frelsari fæddur. Gjöfin er handa þér. Það er kveikt á ljós- unum. Það er kallað á þig. Þú átt ekki að standa út í myrkrinu. Hlustum vel á hina fyrstu jólaræðu, hlustum á fagnaðarboðskapinn, og tök- um eftir jólatákninu. Við hirðana var sagt: „Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi i jötu.“ Það er horft á þetta barn í dag. Þetta barn var sent með hinar dýrustu gjafir til mannanna. Með þessu barni kom fylling kærleikans til jarðar- innar. Með Jesú Kristi kom hinn mikli fögnuður til mannanna barna. Þessi fognuður hefir nægt kynslóðum mann- anna á liðnum öldum, hann hefir nægt hinni einu sál. Þessi jólagleði nægir þér, ef þú tekur á móti henni, þessi jólagleði eyðir hverju dinunu skýi. Prédikunin er ekki lengri. Hún er nógu löng, því að skýrt og greinilega hef- ir verið sagt frá því, sem mönnunum ri&ur á að vita. Á eftir jólaprédikuninni

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.