Forvitin rauð - 01.01.1974, Side 3
£ ftRUÐSOKKffMREVFfN<álN
Bréf sent til allra alþingismanna veqna frum-
varps um nýja fðstureyðingalöggjöf, sem lagt
var fram á alþingi 1 nóvember 1973.
Frumvarp um nýja fóstureyðingalöggjöf, sem nú
liggur fyrir alþingi, og felur i sér breytingar
er stefna að auknu frjélsræði kvenna til fóstur-
eyðinga hefur vakið upp nokkurn úlfaþyt, sem
vænta mátti um svo róttækar breytingar þótt
sjálfsagðar séu. I þvi sambandi má benda á,
að 1 nágrannalöndum okkar hefur frjélsræði
verið stóraukið og i Danmörku, Sviþjóð og
Englandi hafa nú verið lögleiddar frjálsar
fóstureyðingar. hessi þróun mun óhjákvæmi-
lega hafa það í för með sér, ef frumvarpið um
nýja fóstureyðingalöggjöf verður ekki samþykkt,
að stúlkur, er þurfa á fóstureyðingu að halda,
leysi vanda sinn með þvi að taka sér ferð S
hendur til þessara landa, og eru slík ferða-
lög algeng nú þegar. En hvaða konur hafa
bolmagn til að standa straum af dýrri utan-
landsferð? Margar alls ekki, og það eru þá
e.t.v. þær, sem helst þyrftu á henni að halda
þ.e.a.s. þær konur er lifa við ömurlegustu
aðstæður og eru litilmagnar þjóðfélagsins i
sérhverju tilliti andlega sem fjSrhagslega.
Samþykkt fyrirliggjandi fr-umvarps i ðbreyttri
mynd ætti einnig að hafa í för með sér, að
ólöglegar fóstureyðingar legðust af og þar me5
væri úr sögunni auðmýking, sem fjöldi kvenna
hefur lStið sig hafa, og ekki verður með orð-
um lýst, en af eðlilegum ástæðum hafa lifs-
reynslusögur kvenna er hafa látið eyða fóstri
S ólöglegan hátt ekki verið dregnar mjög fram,
i dagsljósið í umræðum þeim er um þessar mundj.r
fara fram um þessi mál.
Margvislegar skoðanir hafa komið fram á
opinberum vettvangi einkanlega S móti þvi
er tekur til sjálfsákvörðunarréttar konunnar
i framvarpinu og bregður þá oft við næsta
undarlegri röksemdafærslu.
I>vi hefur verið haldið fram að fóstureyðing
væri sambærileg við morð, Það munu vera til
einar þrjár skilgreiningar á þvi hvenær ein-
staklingur verður til, og hefur hver sina,
páfinn, læknirinn og lögfræðingurinn. Er ekki
hæpið að tala um að eyða mannslifi, þegar
fárra vikna hnúður er fjarlægður úr móður-
kviði? I>að sem skiptir hér meginmSli er að
fóstureyðing kemur i veg fyrir að fóstur
verði' að manneskju.
Mikið hefur verið rætt um þá hættu, sem
lifi og heilsu konunnar er stefnt i við
fóstureyðingu, og hafa einkum læknar látið
sér tiðrætt um þetta atriði. Hér eru þó
ekki allir á einu máli. Sumir læknar halda
þvi fram að fóstureyðingar séu hættulegar
aðgerðir, aðrir skipa þeim S bekk með al-
gengustu skurðaðgerðum. En flestir munu þó
sammSla um að fæðing feli i sér meiri hættu
PriAjudagur 4. desember 1973.
Allt miöast viö aö halda llfinu og tilgangurinn helgar meöaliö,
jafnvel þaö aö selja börn sln eöa drekkja þeim.
Hungursneyðin í Indlandi:
Sef/a börnin sín
fyrir brauðbita
SALA ungbarna á Indlandi fer
nú mjög vaxandi og tala
þeirra barna, sem deyja úr
hungri, hækkar einnig. Hjálp
arstarfsemi sú, sem stjórnin
hefur komið á, nægir engan
veginn. Þaö er skömm fyrir
stjórnina og þjóðina aö sjá
foreldra selja börn sín fyrir
brauöbita vegna hungurs-
neyöar og þaö I landi, sem hef
ur veriö sjálfstætt I 26 ár.
Þannig skrifar dönsk stúlka,
sem starfar I hjálparmiðstöö I
Indlandi og hún heldur áfram :
— Ung móöir I Ondipudur
drekkti tveimur börnum sin
umi stööuvatni og framdi siö-
an sjálfsmorö. Eiginmaöurinn
var aö heiman, þegar þetta
geröist, en ástæöa harmleiks
þessa var hungur. Þannig er
ástandiö i nokkrum héruöum I
grennd viö Kalkútta. Um þetta
var fjallaö I smáfréttum i
tveimur blööum. Þaö vekur
greinilega ekki mikla athygli
og manni liggur viö aö halda,
aö sala á ungbörnum sé dag-
legt brauö.
Verö á matvælum er hátt
þarna ytra, geitakjöt kostar
um 170 krónur kilóiö, fiskur
um 200 krónur kilóiö, en hveiti,
sykur og smjör er ófáanlegt
nema á svörtum markaöi á
svimandi háu veröi Hrisgrjón
kosta um 60 krónur kilóiö. Enn
er uppskeran ekki komin á
markaöinn og fólk fær hris-
grjón i mesta lagi vikulega.
Annars lifir þaö á grasi og rót-
um. Ungbörn, sem borin eru
út á göturnar vegna fátæktar
foreldranna, hafa til þessa
verið hirt og sett á heimili, en
nú hefur þvi viöa veriö hætt,
þar sem ekki er hægt aö út-
vega mjólk handa þeim. Þurr-
mjólk fæst ekkllengur.
Astandiö er hörmulegt á þvi
svæöi, sem þessi danska
stúlka starfar. Fólk selur allt,
sem þaö á. Sumir fara til stór-
borganna og þar eru börnin
seld. Allt miðast aö þvi aö
halda lifi og tilgangurinn helg-
ar meöaliö.
—SB.